Fleiri fréttir

Laug til um fingurinn

Kona, sem fullyrti að hafa fundið fjögurra sentímetra fingurstubb í chilli-rétti sem hún pantaði á skyndibitastaðnum Wendy´s í San Jose í Bandaríkjunum, hefur verið handtekin. Hún lýsti því yfir að hún myndi krefjast skaðabóta frá skyndibitakeðjunni eftir fingurfundinn í chilli-skálinni en eftirgrennslan lögreglu sýndi fram hún sviðsetti atvikið.

Leiðtogar Japans og Kína funda

Þjóðarleiðtogar Japans og Kína munu funda í dag til að draga úr þeirri spennu sem myndast hefur milli þjóðanna undanfarnar vikur. Koizumi, forsætisráðherra Japans, og forseti Kína, Ju Jintao, eru staddir á ráðstefnu asískra og afríska þjóðarleiðtoga sem fram fer í Jakarta.

Ný ríkisstjórn mynduð

Ný ríkisstjórn Ítalíu, undir forsæti Silvio Berlusconi, hefur verið mynduð. Talsmaður forsetaskrifstofunnar segir að hún taki formlega við stjórnartaumum síðar í dag. Þar með er endir bundinn á það upplausnarástand sem ríkt hefur í ítölskum stjórnmálum síðustu vikur.

Lögreglustöð vantar í Kristjaníu

Sér lögreglustöð verður að vera í fríríkinu Kristjaníu, segja þingmenn dönsku stjórnarandstöðunnar í framhaldi af skotárás þar á fimmtudag. Hugmyndin hefur verið á langtíma áætlun lögreglunnar, en yfirmenn lögreglunnar í Kaupmannahöfn eru ósammála um ágæti hennar. Sighvatur Jónsson er í Danmörku.

Handjárnuðu 5 ára stúlku

Lögreglumenn í Flórída-fylki í Bandaríkjunum liggja undir ámæli vegna óhefðbundinna aðferða við að róa niður fimm ára gamla stúlku í óþekktarkasti. Þeir handjárnuðu barnið í leikskólanum.

Sættir í deilunni

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, segist hafa átt opinskáar og gagnlegar viðræður við Hu Jintao, forseta Kína, í dag. Hann segir þá hafa sammælst um að deila ekki um atburði úr fortíðinni.

John Major aðlaður

John Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var aðlaður í dag. Major var leiðtogi breska Íhaldsflokksins á árunum 1990-97 en hann tók við því hlutverki af Margaret Thatcher.

10 þúsund listaverk haldlögð

Spænska lögreglan handtók sextán meinta listaverkafalsara í stórtækri aðgerð víða um landið í dag. Einnig var hald lagt á yfir 10 þúsund listaverk sem talin eru fölsuð, m.a. eftir fræga spænska málara.

4 tonnum af sprengiefni stolið

Fjórum tonnum af efnum til sprengjugerðar var stolið úr vöruhúsi í Frakklandi í dag. Grunur leikur á að ETA, hin herskáu aðskilnaðarsamtök Baska, hafi verið að verki.

Stjórnarandstaðan stendur sterk

Ný ríkisstjórn Ítalíu, undir forsæti Silvios Berlusconi, hefur verið mynduð. Skoðanakannanir hafa sýnt að vinstri og miðju stjórnarandstöðuflokkarnir njóta sterkrar stöðu.

Sex í haldi vegna þyrluslyss

Bandarískir hermenn hafa handtekið sex einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í að granda þyrlu norður af Bagdad á fimmtudaginn með þeim afleiðingum að tíu létust.

Höfuðpaurinn gómaður

Lögreglan í Osló í Noregi hefur handtekið 37 ára gamlan mann grunaðan um aðild að þjófnaði á tveimur málverkum úr Munch-safninu í ágúst í fyrra.

Sátt virðist í sjónmáli

Sátt virðist í sjónmáli í milliríkjadeilu Kínverja og Japana sem hefur farið stigvaxandi undanfarnar víkur. Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans og Hu Jintao, forseti Kína, funduðu saman í Indónesíu í gær þar sem fram fer ráðstefna leiðtoga Asíu- og Afríkuríkja. 

Biðst afsökunar á grimmdarverkum

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, hefur beðist afsökunar á grimmdarverkum Japana í Seinni heimsstyrjöld. Koizumi hélt í nótt ávarp á ráðstefnu Asíu- og Afríkuþjóða í Jakarta á Indónesíu og sagði þar að grimmdarverk Japana hefðu valdið öðrum Asíuþjóðum gríðarlegu tjóni og þjáningum.

Skotbardagi í Kristjaníu

Einn maður beið bana og þrír voru fluttir með skotsár á sjúkrahús eftir að til skotbardaga kom á Pusher Street í fríríkinu Kristjaníu í Kaupmannahöfn undir kvöld í gær. Árásarmennirnir fjórir komust undan í stolnum bíl og er þeirra enn leitað. Að sögn sjónarvotta beittu þeir m.a. vélbyssum.

Játar aðild að hryðjuverkunum

Marokkómaðurinn Zacarias Moussaoui mun í dag játa aðild sína að hryðjuverkunum 11. september árið 2001 fyrir dómstóli í Virginíu í Bandaríkjunum. Hann er sá eini sem þegar hefur verið ákærður í Bandaríkjunum vegna hryðjuverkanna og gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu.

Lýsa ábyrgð á ódæðinu

Hópur sem kallar sig „Íslamska herinn í Írak“ segist bera ábyrgð á því að búlgörsk þyrla var skotin niður í Írak í gær, með þeim afleiðingum að tíu manns létust. Þá segist hópurinn hafa náð þeim eina úr áhöfninni sem komst lífs af og að hann hafi verið drepinn í gær.

62% Frakka andvíg

Meira en 62 prósent Frakka ætla að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins, samkvæmt skoðanakönnun sem birtist í frönsku dagblaði í dag. Aldrei áður hefur andstaða við stjórnarskrána mælst meiri en sextíu prósent í skoðanakönnun í Frakklandi.

Fjórir fallnir í Sádi-Arabíu

Minnst fjórir hafa fallið í valinn í bardögum lögreglumanna og uppreisnarmanna í borginni Mekka í Sádi-Arabíu í gærkvöldi og í nótt. Bardagarnir byrjuðu þegar fjórir uppreisnarmenn í dulargervi reyndu að smygla sér inn í borgina í gærkvöldi.

Japanar horfa mest á sjónvarp

Japanar eiga heimsmetið í sjónvarpsglápi. Samkvæmt nýrri könnun horfa þeir að jafnaði á sjónvarp í um fimm klukkustundir á hverjum degi. Það er nærri klukkutíma meira en Grikkir sem horfa mest allra Evrópuþjóða á sjónvarp, eða í rétt rúmar fjórar klukkustundir á degi hverjum.

Gæti valdi algjörri ringulreið

Verði stjórnarskrá Evrópusambandsins hafnað gæti það valdið algjörri ringulreið. Þetta segir Peter Mandelson, viðskiptastjóri Evrópusambandsins. Hann telur að höfnun myndi hafa afar neikvæð áhrif á efnahagslíf innan sambandsins og að stöðnun væri líkleg.

Enn beðið nýrrar stjórnar

Enn verður bið á því að ný ríkisstjórn taki til starfa í Írak. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks í viðtali í gærkvöldi. Hann segir að enn eigi eftir að nást samkomulag um það með hvaða hætti súnnítar muni koma að stjórninni, sem sé nauðsynlegt eigi að nást fram breið sátt allra landsmanna um hina nýju stjórn.

HIV-sýktum fjölgar í Þýskalandi

HIV-sýkingum meðal samkynhneigðra karlmanna í Þýskalandi fjölgar nú og er munurinn sex prósent á milli áranna 2003 og 2004. Ástæða þessa mun vera sú að smokkanotkun hefur minnkað og það færist í vöxt að ákveðnir þjóðfélagshópar stundi kynlíf án varna.

Berlusconi myndi nýja stjórn

Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, boðaði fyrir stundu Silvio Berlusconi á sinn fund síðdegis í dag. Þar hyggst hann biðja Berlusconi að mynda ríkisstjórn á ný. Ciampi hefur í gær og morgun fundað með leiðtogum ítalskra stjórnmálaflokka til að kanna hvort Berlusconi nyti nægilegs stuðnings til að mynda ríkisstjórn á ný.

Gríðarleg öryggisgæsla á Spáni

Gríðarleg öryggisgæsla er vegna réttarhalda yfir tuttugu og fjórum meintum hryðjuverkamönnum al-Qaida á Spáni. Krafist er sextíu þúsund ára fangelsis yfir hverjum þeirra.

Ákæran á Clinton hefnd

Herferð repúblíkana gegn Bill Clinton og ákæran á hendur honum vegna meinsæris voru hefnd fyrir ákæruna á hendur Richard Nixon. Þetta segir Henry Hyde, einhver reyndasti þingmaður repúblíkana á Bandaríkjaþingi og formaður dómsmálanefndar þingsins.

Leiðtogar Kína og Japans funda

Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, segist vera á leið til fundar við Hu Jintao, forseta Kína. Koizumi baðst fyrr í morgun opinberlega afsökunar á grimmdarverkum Japana í Seinni heimsstyrjöld.

Flóttamenn efstir á blaði

Flóttamenn og hælisleitendur eru efst á blaði í kosningabaráttunni í Bretlandi. Íhaldsmenn leggja ofuráherslu á að fækka innflytjendum og Blair forsætisráðherra tekur orðið í sama streng.

Þýska mannætan aftur fyrir rétt

Mál þýsku mannætunnar Armin Meiwes, sem dæmdur var í átta og hálfs árs fangelsi á síðasta ári fyrir að drepa mann og leggja hann sér til munns að því loknu, verður tekið upp að nýju. Hinn vægi dómur olli hneykslan víða um heim þegar hann féll.

Upptaka af morði á borgurum

Hryðjuverkamenn í Írak sendu í dag frá sér upptöku þar sem sjá má þyrlu með óbreyttum borgurum skotna niður. Blóðugar árásir kostuðu á annan tug lífið í Írak í dag.

Berlusconi falin stjórnarmyndun

Forseti Ítalíu fól í gær Silvio Berlusconi að mynda nýja ríkisstjórn. Tveimur dögum fyrr hafði Berlusconi beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í kjölfar mikils ósigurs stjórnarflokkanna í héraðskosningum.

Skósprengjumaður dæmdur

Dómstóll í Lundúnum dæmdi í gær Saajid Badat, breskan ríkisborgara af arabískum uppruna, til þrettán ára fangelsisvistar fyrir að hafa áformað að granda farþegaþotu með sprengiefni földu í skósólum sínum. Til refsimildunar taldist að hinn dæmdi hætti af sjálfsdáðum við að fremja hryðjuverkið.

Moska sprengd og þyrlu grandað

Bílsprengja sprakk við mosku sjía-múslima á meðan föstudagsbænir stóðu yfir í Bagdad í gær, með þeim afleiðingum að átta manns féllu í valinn og tuttugu særðust. Tveir hópar uppreisnarmanna eignuðu sér ábyrgð á því að hafa skotið niður þyrlu með ellafu manns. Þá var birt myndbandsupptaka sem sagt var að sýndi þrjá rúmenska gísla.

Krefjast 60 þúsund ára fangelsis

Sextíu þúsund ára fangelsisvistar er krafist yfir mönnum sem komu að skipulagningu hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september. Engin fordæmi eru fyrir annarri eins öryggisgæslu og við dómhúsið í Madríd á Spáni í dag. Þetta eru stærstu réttarhöld sem haldin hafa verið í Evrópu yfir meintum hryðjuverkamönnum al-Qaida.

Sprengja sprakk við híbýli Allawis

Öflug sprengja var sprengd fyrir utan híbýli bráðabirgðaforsætisráðherra Íraks, Iyads Allawis, í gærkvöldi. Í morgun lýsti al-Qaida í Írak því yfir að samtökin hefðu sent hryðjuverkamenn sína til þess að ráða Allawi af dögum. Mennirnir hefðu verið sendir til höfuðstöðva trúleysingjanna og bandamanna þeirra úr röðum gyðinga og kristinna. Allawi komst undan þessari ör, segir í tilkynningunni, en það eru fleiri örvar til.

Afskipti ekki sögð tímabær

Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna ræddu í gær hlutverk bandalagsins í Miðausturlöndum og komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært fyrir NATO að hafa afskipti af framgangi mála þar. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, hefur lagt til að bandalagið styðji friðarsamkomulag fyrir botni Miðjarðarhafs verði þess farið á leit en þær hugmyndir voru ekki studdar.

Kannar stuðning við Berlusconi

Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, ræðir sem stendur við fulltrúa allra flokka á ítalska þinginu til að reyna að skera úr um hvort að Silvio Berlusconi njóti nægs stuðnings til að fá umboð til stjórnarmyndunar. Berlusconi sagði af sér embætti í gær en vill mynda nýja stjórn með sömu flokkum og mynduðu fyrri stjórnina.

Þyrla skotin niður í Írak

Níu eru taldir látnir eftir að þyrla var skotin niður í Írak í morgun. Þetta hefur Reuters-fréttaveitan eftir heimildarmanni innan Bandaríkjahers. Þyrlan var á ferð fyrir norðan Bagdad þegar henni var grandað, en um borð voru þrír í áhöfn og sex farþegar, allt óbreyttir borgarar. Ekki er vitað hverrar þjóðar þeir voru.

Útiloka ekki trúarbragðastríð

Blóðsúthellingar og pólitískar deilur magna spennuna í Írak og virðist sem trúarbragðastríð sé ekki útilokað. Í dag stóð til að greina frá skipan nýrrar ríkisstjórnar Íraks en því hefur verið frestað eftir að til deilna kom enn á ný í gærkvöldi.

Vill breytingar í Hvíta-Rússlandi

Hvíta-Rússland er síðasta einræðisríkið í Mið-Evrópu og þar er tímabært að breytingar verði gerðar, segir Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Jemenar læra af Íslendingum

Stjórnvöld í Jemen hafa ákveðið að leita á náðir Íslendinga og læra af reynslu íslenskra stjórnvalda af rafrænum ríkisrekstri. Jemenar vilja fara að íslenskri fyrirmynd, segir í þarlendum fjölmiðlum, og auka færni, skilvísi og samskipti innan hins opinbera. Í <em>Yemen Times</em> segir að íslenska tilraunin hafi leitt í ljós að rafræn samskipti og samvinna ráðuneyta auki mjög á skilvirkni.

Creuzfeld-Jakob finnst í Hollandi

Hollensk stjórnvöld greindu frá því í dag að fyrsta tilfellið af Creuzfeld-Jakob sjúkdómnum hefði greinst í landinu. Að sögn talsmanna innanríkisráðuneytis Hollands greindist maður sem lagður var inn á sjúkrahús í borginni Utrecht með veikina, en hana má rekja til neyslu á kúariðusýktu kjöti. Heilbrigðisyfirvöld innan Evrópusambandsins hafa  þegar verið látin vita af tilfellinu.

Gutierrez fær hæli í Brasilíu

Lucio Gutierrez, hinum brottrekna forseta Ekvadors, var í dag veitt pólitískt hæli í Brasilíu, daginn eftir að þing landsins vék honum úr embætti. Gutierrez leitaði til brasilíska sendiráðsins í Quito, höfuðborg Ekvadors, í gær í kjölfar brottvikningarinnar en eftirmaður hans, varaforsetinn Alfredo Palacio, hafði gefið út handtökuskipun á hendur honum.

Létust í rútuslysi í Víetnam

Þrjátíu og einn maður lét lífið þegar rúta ók út af fjallvegi í Kon Tum héraði í Víetnam í dag. Hinir látnu voru allir fyrrverandi hermenn á leið til Ho Chi Minh borgar til að minnast þess að 30 ár eru síðan Víetnamstríðinu lauk. Aðeins tveir úr rútunni lifðu slysið af, annar þeirra rútubílstjórinn.

Segja 11 hafa farist með þyrlu

Eigendur þyrlunnar sem skotin var niður í Írak í dag segja að ellefu hafi látist þegar hún féll til jarðar. Aðsögn talsmanna Heli Air, búlgarsks fyrirtækis sem átti þyrluna, lést þriggja manna búlgörsk áhöfn og sex bandarískir farþegar auk tveggja varða, en þjóðerni þeirra er ekki á hreinu.

Sjá næstu 50 fréttir