Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný brú yfir Ölfusá gæti orðið tilbúin 2024 Nú styttist í að framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú við Selfoss hefjist en brúin mun kosta um fimm milljarða króna. Gjaldtaka verður yfir brúnna. 5.7.2020 13:11
Þrír reyndust smitaðir á landamærunum Niðurstöður úr skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum Íslands í gær skilaði þeim niðurstöðum að þrír sem komu til landsins hafi verið smitaðir af veirunni. 5.7.2020 11:35
Gul viðvörun á Suðausturlandi frá miðnætti Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðausturlandið frá og með miðnætti. 5.7.2020 11:13
Slökkviliðið grunar að fólk sé að gleyma „pestinni“ Sólarhringurinn var annasamur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dælubílar voru boðaðir í fimm minniháttar útköll í gær. 5.7.2020 10:33
Rafvæðingin að bresta á en kostnaðarsamt ef tengja á stóru skemmtiferðaskipin Framkvæmdir við rafvæðingu Tangabryggju á Akureyri eru vel á veg komnar. Þar verður hægt að tengja minni skemmtiferðaskip við rafmagn. Það mun þó kosta mikla fjármuni ef tengja á stærri skemmtiferðaskip við rafmagn. 5.7.2020 10:06
Mikið kvartað undan samkvæmishávaða í nótt Óvenju margar kvartanir vegna samkvæmishávaða í heimahúsi komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Alls voru átján slík mál bókuð frá því klukkan 17 í gær til 5 í nótt. 5.7.2020 07:36
Lögreglumaður talinn handleggsbrotinn eftir árás Talið er að lögreglumaður hafi handleggsbrotnað eftir að ráðist var á hann í miðborginni skömmu fyrir miðnætti. 5.7.2020 07:22
Hægt að sjá hvernig jörðin mun mögulega líta út eftir endalok mannkyns Enginn veit hvernig jörðin myndi líta út ef mannkynið liði undir lok, en á listasýningunni Solastalgia er hægt að komast nokkuð nálægt því að upplifa hugsanlega útkomu. 4.7.2020 21:00
Auka fjárheimildir til barnaverndar vegna kórónuveirufaraldursins Ákvörðunin er liður í aðgerðum borgarinnar vegna kórónuveirufaraldursins að sögn formanns borgarráðs. 4.7.2020 20:30
Hinsta kveðjan dýrari eftir lagabreytingu Útfarakostnaður sem aðstandendur látinna þurfa að bera eykst með nýjum lögum sem samþykkt voru í vikunni. 4.7.2020 18:45
Bæta þarf sóttvarnir í fyrirtækjum og verslunum en dæmi eru um að víða séu sprittbrúsar tómir Bæta þarf sóttvarnir í fyrirtækjum og verslunum en dæmi eru um að víða séu sprittbrúsar tómir, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Fimm greindust með kórónuveiruna við landamæraskimun í gær. 4.7.2020 18:44
Afköst Sultartangavirkjunar skert eftir skriðu Önnur vél Sultartangavirkjunar gengur ekki og hin er á hálfum hraða eftir að vatn gekk inn í virkjunina þegar skriða féll í afrennslisskurð fyrir neðan hana síðdegis í gær. 4.7.2020 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bæta þarf sóttvarnir í fyrirtækjum og verslunum en dæmi eru um að víða séu sprittbrúsar tómir, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 4.7.2020 18:18
Flugu til móts við óvæntar rússneskar sprengjuvélar Orrustuþotur ítalska flughersins, sem sinnt hafa loftrýmisgæslu hér á landi undanfarið, flugu í fyrrinótt til móts við rússneskar sprengjuflugvélar sem höfðu flogið án tilkynningar inn í íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið, 4.7.2020 17:00
Maðurinn sem leitað hefur verið frá áramótum fannst látinn Fjallgöngumaðurinn Andris Kalvans, sem leitað hefur verið á Snæfellsnesi frá áramótum, fannst í dag látinn. 4.7.2020 15:59
Kviknaði í gróðri á Akureyri Slökkvilið á Akureyri var kallað út rétt fyrir klukkan tvö í dag til þess að glíma við smávegis gróðureld sem kviknað hafði við göngustíg í bænum. 4.7.2020 14:19
Hálfur milljarður í nýtt hótel í Bláskógabyggð Framkvæmdir eru að hefjast við bygginu fjörutíu herbergja hótels í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð, sem mun kosta um hálfan milljarð króna. Hótelið verður tilbúið næsta vor. 4.7.2020 13:06
Vonbrigði að fólk fari ekki eftir fyrirmælum á stórum mannamótum Stór mannamót fara fram um helgina og þurfti lögregla að hafa afskipti af fótboltamóti á Akureyri þar sem gestir virtu ekki hólfaskiptingu. Aðalvarðstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra segir vonbrigði að fólk fari ekki eftir fyrirmælum en slíkt geti leitt til þess að ekki sé hægt að halda álíka viðburði. 4.7.2020 12:30
Samson kominn heim Svo virðist sem að Samson, klón hundsins Sáms, sé kominn í faðm eigenda sinna, þeirra Dorrit Mouissaeff og Ólafs Ragnars Grímssonar. Ólafur Ragnar greinir frá þessu á Twitter-síðu hans. 4.7.2020 11:40
Fimm smit greindust við landamærin í gær Fimm greindust með kórónuveiruna við landamæraskimun í gær. Beðið er eftir niðurstöðum mótefnamælingar í tveimur af smitunum fimm en mótefni mældust í sýnum þriggja aðila. 4.7.2020 11:30
Hlýtt fyrir norðan í dag en snýst við á morgun Hæglætisveður verður víðast hvar á landinu í dag, hlýjast í innsveitum norðanlands. Þetta snýst þó við á morgun þegar kólnar þar, en hlýnar sunnanlands. 4.7.2020 07:28
Yfirbuguðu mann vopnaðan hnífi á skemmtistað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem reyndist vopnaður hnífi á skemmtistað í miðborginni. Maðurinn reyndi að veitast að öðrum manni. 4.7.2020 07:20
„Það versta sem gæti komið fyrir okkur er önnur bylgja af faraldrinum“ Önnur bylgja faraldursins á Íslandi myndi skapa grafalvarlega stöðu, að sögn forstöðumanns hjá Landspítalanum. Hann óttast að fólk sé orðið of værukært í persónubundnum smitvörnum. 3.7.2020 21:00
Ósátt með þau áform að þrír búsetukjarnar fyrir fatlað fólk verði í sama hverfi Formaður Þroskahjálpar gagnrýnir áform Garðabæjar um að reisa tvo búsetukjarna fyrir fólk með fötlun í sama hverfinu. Mikilvægt sé að dreifa íbúðum fyrir fólk með fötlun svo það hafi val um búsetu. 3.7.2020 20:30
Stefnt að því að draga úr losun frá sjávarútvegi Stefnt er að því að draga úr losun frá sjávarútvegi og auka eftirspurn eftir heilnæmum íslenskum fiski með samstarfi stjórnvalda og atvinnugreinarinnar. Markmiðið er að samdráttur í losun verði um 50-60 prósent árið 2030 miðað við árið 2005. 3.7.2020 19:39
Hanna tunglhíbýli í Hallmundarhrauni Vísindamenn á vegum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar hafa unnið að uppbyggingu og hönnun tunglhíbýlis í Stefánshelli í Hallmundarhrauni í vikunni. Markmiðið er að hanna tímabundinn dvalarstað fyrir tunglfara. 3.7.2020 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Önnur bylgja faraldursins á Íslandi myndi skapa grafalvarlega stöðu, að sögn yfirlæknis. Hann óttast að fólk sé orðið of værukært í persónubundnum smitvörnum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 3.7.2020 18:01
Tveir í einangrun eftir komuna til Seyðisfjarðar Um fjögur hundruð farþegar Norrænu sem komu til landsins í gær þurftu að fara í sýnatöku við komuna en 634 farþegar voru um borð í skipinu. Tveir farþeganna reyndust smitaðir af kórónuveirunni. 3.7.2020 17:57
Þurftu að stöðva flóðið Rektor Háskólans á Akureyri segir að skólinn vilji að sjálfsögðu veita öllum sem sækja þar um nám inngöngu. Fjármagn skorti hins vegar til þess, nánar tiltekið 600 milljónir króna. 3.7.2020 16:43
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Sá handtekni áfram í gæsluvarðhaldi Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði karlmann á sjötugsaldri sem var handtekinn í kjölfar brunans mannskæða á Bræðraborgarstíg í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. júlí í dag. Rannsókn á brunanum er sögð miða vel áfram. 3.7.2020 16:07
Stjórn Rithöfundasambandsins vantreystir Storytel AB Kaup Storytel AB á Forlaginu vekja ugg í brjóstum rithöfunda. 3.7.2020 16:01
Göngukona slasaðist í Tálknafirði Björgunarsveitir á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út klukkan tvö í dag vegna göngukonu sem slasast hafði á fæti í Traðarvík undir Sellátrafjalli í Tálknafirði. 3.7.2020 15:43
Konan sem leitað var að fannst látin Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu nú á fjórða tímanum. 3.7.2020 15:33
Nafnlaust bréf komið í hendur lögreglu: Líkt við apa og sagt að drepa sig Steingrímur Ingi Gunnarsson, nítján ára, fékk nafnlaust bréf í pósti þar sem hann var sagður ljótur og honum sagt að drepa sig. Faðir hans, séra Gunnar Einar Steingrímsson sóknarprestur, greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær 3.7.2020 15:17
Hin sósíalíska Mál og menning komin hálf ofan í skúffu sænsks kauphallarfyrirtækis Rithöfundar óttast mjög um sinn hag eftir kaup Storytel AB á Forlaginu. 3.7.2020 15:01
Óbreyttar veirutakmarkanir til 26. júlí vegna bakslags Fjöldamörk samkomubanns verða óbreytt í þrjár vikur til viðbótar, þ.e. til 26. júlí og verður því áfram miðað við að ekki komi saman fleiri en 500 manns. 3.7.2020 13:45
Reyna að ná til kvenna af erlendum uppruna með hjálp Eflingar Aðeins rétt um fjögur og hálft prósent þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrra voru konur af erlendum uppruna. Stígamót hefur leitað til Eflingar til að reyna að ná betur til kvenna af erlendum uppruna því ljóst er að tölurnar endurspegla ekki með neinu móti þann raunveruleika sem konurnar búa við. 3.7.2020 12:48
Dæmi um að smitað fólk fái símtöl og skilaboð þar sem það er skammað Deildarstjóri hjá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra segir að fólk með Covid-19 hafi fengið skilaboð og hringingar þar sem það er sakað um að hafa ekki farið nógu varlega. Hann segir að þvert á móti hafi þeir sem hafa veikst undanfarið farið að öllum sóttvarnarreglum. 3.7.2020 12:40
Óttast að missa vinnuna leiti þau réttar síns Dæmi eru um að útlendingar sem starfa í íslenskri ferðaþjónustu veigri sér við að leita réttar síns, vegna hræðslu við að verða sagt upp störfum. 3.7.2020 12:12
Fimm greindust með veiruna í gær Beðið er eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu og eru viðkomandi einstaklingar í einangrun á meðan. 3.7.2020 11:39
„Allir helstu fýlupúkar landsins eru búnir að segja að þetta sé ömurlegt myndband“ Sindri Snær Jensson segist gríðarlega ánægður með kynningu KSÍ á nýjum búningum landsliða Íslands, sem og búninginn sjálfan. Hann gefur lítið fyrir háværa gagnrýni á framsetningu KSÍ á kynningarefni í kringum nýtt útlit landsliðanna. 3.7.2020 11:35
Björgunarsveitir aðstoða við leit að Maríu Leit lögreglu að Maríu Ósk Sigurðardóttur, sem lýst var eftir í nótt, stendur enn yfir og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til aðstoðar. 3.7.2020 11:03
Páley yfirgefur Vestmannaeyjar fyrir Norðurland eystra Páley Borgþórsdóttir, sem hefur gegnt embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, mun taka við sömu stöðu á Norðurlandi Eystra eftir rúma viku. 3.7.2020 09:21
Besta helgarveðrið fyrir norðan og í borginni Fólk sem á leið um innsveitir Norðurlands í dag má búast við allt að 20 stiga hita á þeim slóðum. 3.7.2020 07:42
Geðræktarstöð á Suðurnesjum lokað vegna smits Skjólstæðingur Bjargarinnar, geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja, hefur greinst með kórónuveirusmit. Af þeim sökum hafa tíu aðrir notendur Bjargarinnar verið skikkaðir í sóttkví og Björginni verið lokað meðan unnið er að sótthreinsun. 3.7.2020 06:52