Fleiri fréttir

Týr málaður rauður

Varðskipið Týr er nú í slipp á Akureyri og hefur verið málað rautt vegna leiguverkefnis sem mun hefjast frá byrjun maí næstkomandi.

Telja að staðbundin mengun í Hellnahrauni nái ekki út fyrir hverfið

Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis telur í ljósi upplýsinga sem fram komu á fundi nefndarinnar þann 3.mars sl. að gögn bendi til þess að staðbundin mengun í iðnaðarhverfinu í Hellnahrauni nái ekki út fyrir hverfið en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnafjarðarbæ.

Aðeins ein viðbragðsáætlun til vegna gróðurelda

Búnaði og þjálfun slökkviliða er ábótavant með tilliti til gróðurelda. Sveitarfélög hafa enga burði til að bregðast við sífellt meiri hættu á miklum gróðureldum. Aðgerða er þörf strax var mat innan fjögurra lögregluumdæma árið 2011.

„Ég skrifaði ekki þetta bréf“

"Ég skrifaði ekki þetta bréf og hefur þetta aldrei verið mín afstaða,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í viðtali í Kastljósinu í gær.

Geðdeild breytt í heilsuhóteli

Félagið Fylkir sem á eignina Arnarholt á Kjalarnesi hefur sótt um leyfi til að breyta byggingunum í heilsuhótel.

Loðnuskipin með fullfermi

Góð loðnuveiði var úr ný fundinni vesturgöngunni út af Ísafjarðardjúpi í gær og eru nokkur skip á landleið með fullfermi , en önnur bíða birtingar til að geta fyllt sig.

Stappi stálinu í framhaldskólanema

Stjórn Foreldrafélags Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur sent foreldrum og forráðamönnum nemenda hvatningu um að styðja vel við bakið á börnum sínum í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríki vegna hugsanlegs verkfalls kennara.

Hálka víða um land

Krapi og töluverð hálka er víðast hvar á vegum á Suðurlandi eftir snjókomu í nótt. Sömuleiðis er víða hálka og ísing á vegum á Suðurnesjum og töluvert snjóaði á Vesturlandi, þar sem hreinsun vega er hafin. Allar aðalleiðir á þessu svæði eru þó færar.

Verkfall á Herjólfi yfirvofandi

Alllt stefnir í að verkfall sjómanna á Herjólfi hefjist klukkan fimm í dag, þar sem mikið ber í milli, samkvæmt tilkynningu frá Eimskipum, sem reka Herjólf.

Kvartað vegna titrings í húsum

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fóru í gær fyrir umræðu um uppbyggingu á þéttingarreitum með tilliti til reynslu af Lýsisreitnum svokallaða í Vesturbænum.

Antíkbúðum í miðborginni fækkar

Tvær af fjórum antikverslunum í miðborginni ætla að loka um næstu mánaðarmót. Antikmunir hættir eftir 40 ára rekstur. Eigandinn segir of dýrt að reka verslanir eins og þessa í miðbænum. Fríða frænka hættir á toppnum segir eigandinn.

Fengu undanþágu til að kynda á Þingeyri

Dýrfirðingar og aðrir notendur sundlaugarinnar á Þingeyri geta tekið gleði sína á ný. Ísafjarðarbær hefur tilkynnt að fengist hafi undanþága til að kaupa forgangsorku.

Hátt í fjögurra tíma hitafundi lokið

Listi uppstillingarnefndar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ var samþykktur á hitafundi sem lauk fyrr í kvöld. Margar breytingartillögur voru lagðar fram, en engin sammþykkt. Eingöngu einn núverandi bæjarfulltrúi á möguleika á sæti í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili.

Segir ummæli um kröfur ESB ekki standast

„Þetta stenst auðvitað ekki miðað við þau opinberu gögn sem liggja fyrir í málinu,“ segir Árni Páll um ummæli forsætisráðherra í Kastljósi.

Auðugasta fólk veraldar

Það tæki manneskju á lágmarkslaunum í Bandaríkjunum 472 ár að vinna sér inn það sem annar ríkasti maður heims þénar á dag. Tímaritið Forbes hefur nú birt árlegan lista sinn yfir auðugustu íbúa jarðarinnar.

„Segjum grænmetisætum stríð á hendur"

Vertinn á Múlakaffi var ánægður með sprengidaginn, sem er sá næst annasamasti á árinu. Um eitt tonn af saltkjöti var eldað fyrir viðskiptavini dagsins og um 600 kíló af baunum.

„Hann er breyttur maður“

Mæðgur frá Akureyri flugu í dag til Bandaríkjanna til að heimsækja íslenskan fanga sem setið hefur inni í Greensville-fangelsinu í Virginiu í sextán ár.

Stamandi útvarpsstjóri

Ný útvarpsstöð hefur útsendingar í kvöld, en henni er gert að auka sýnileika stams og skapa jákvæða umræðu um þátttöku þeirra sem glíma við talmein í ljósvakamiðlum.

Útreikningar Vilhjálms sagðir meiningarlausir

"Þetta er ekki einu sinni eins og að bera saman epli og appelsínur, þetta er meira eins og að bera saman mangó og lime. Þetta er meiningarlaust,“ segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor.

Skattsvik í ferðaþjónustu rannsökuð

„Umræðan um skattsvikin og neðanjarðarhagkerfið í ferðaþjónustunni er svo fyrirferðarmikil að full ástæða er til að gera skipulega rannsókn á málinu.“

Þingmanni barst líflátshótun

Haraldi Benediktssyni barst líflátshótun fyrir störf sín hjá Bændasamtökunum. Málið var kært til lögreglu.

Einfættur Elvis væntanlegur á sviðið

Jósef Ólafsson Elvis-eftirherma númer eitt á Íslandi lenti í því óláni að það þurfti að nema af honum vinstri fót við hné. Hann er hvergi nærri af baki dottinn.

Leitin að Kristni engan árangur borið

Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hvetur fólk í kringum Vallahverfið í Hafnarfirði og víðar til að hafa augun hjá sér.

Máli Tony Omos enn frestað

Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar.

Grútspældir og reiðir viðskiptavinir IKEA

Saltkjöt & baunir kosta nú 995 krónur en ekki túkall. Í fyrra át fólk yfir sig, svo mjög að þeir hjá IKEA höfðu áhyggjur af því að það gæti endað með ósköpum.

Flókin staða en Eygló fer til Sotsjí

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, mun vera viðstödd Ólympíumót fatlaðra í Sotsjí en hún segir að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld.

Óvænt loðnuganga fyrir vestan

Vísbendingar eru nú um að óvænt loðnuganga að vestan, sé að koma inn í veiðarnar, eftir að loðnuskip fékk 350 tonn af loðnu í einu kasti út af Ísafjarðardjúpi undir kvöld í gær.

Sjá næstu 50 fréttir