„Ömurlegt að vera svona upp á aðra komin“ Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2014 08:00 Mynd/Aðsend/Pjetur „
Það er hreint út sagt ömurlegt að vera svona upp á aðra komin. Að þurfa svo að takast á við peningaáhyggjur ofan á allt annað sem að maður stendur frammi fyrir er náttúrulega bara skammarlegt,“ segir Guðný Linda Óladóttir í tölvupósti sem hún sendi til forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra í fyrradag og deildi í framhaldinu á Facebook. Guðný er 42 ára öryrki, með ónýt lungu og bíður eftir því að komast í lungnaígræðslu í Gautaborg. Þann 1. mars síðastliðinn fékk hún 26.081 krónu frá Tryggingastofnun, sem er einungis brot af því sem hún er vön að fá. Ástæða þess að Guðný fékk svona lítið er að síðastliðna tólf mánuði hefur hún verið meira en 180 daga á sjúkrastofnun. Þar af 20 af síðustu 30 dögum. „Þetta er mjög ósanngjörn regla og hún er ómannúðleg,“ segir Guðný í samtali við Vísi. „Henni þarf að breyta. Með póstinum vildi ég vekja athygli á þessu og þá ekkert endilega fyrir mig persónulega. Heldur hve ósanngjörn reglan sé yfir höfuð. Það þarf einhverja umfjöllun til að eitthvað verði gert í þessu. Fólk veit af þessu en það er ekkert gert.“ Í janúar var Guðný kölluð til Gautaborgar til að fá ný lungu, en þegar hún kom þangað voru lungun ónýt svo hún þurfti að snúa aftur til Íslands. „Nú er svo komið að ég get ekki verið heima hjá mér. Ég er 100% súrefnisháð og get ekki gengið tvö skref jafnvel með súrefnið á fullum krafti og þarf því að vera keyrð um allt í hjólastól.“ Hún segist hafa komið á Landspítalann þann 3. febrúar og verið aðframkomin. Læknar tóku þá ákvörðun um að best væri að hafa hana á spítalanum þar til kallið kæmi frá Gautaborg. „Engin veit hvenær það verður. Gæti orðið á eftir en gæti líka orðið eftir 5 mánuði,“ skrifar Guðný. En nú er hún búin að missa bæturnar frá TR. „Rökin fyrir því eru að ríkið sé að halda mér uppi og ég þurfi ekki á þeim að halda. En það vill svo til að þótt að ég sé hér lasin að bíða að þá á ég fjölskyldu, ég á barn, ég á heimili og ég á reikninga sem þarf að borga.“ „Það getur vel verið að ríkið sé að halda mér uppi á húsaskjóli og mat á meðan á biðinni stendur en það þarf samt sem áður að borga af íbúðinni minni, borga reikninga og sjá barninu mínu farborða á meðan ég er hér,“ skrifar Guðný. Guðný segist vera nú í aðstöðu sem hún óski engum. Hún myndi frekar vilja vera að vinna og taka þátt í lífinu heldur en að vera negld niður við stól á Borgarspítalanum, þar sem hún er núna. „Það er hreint út sagt ömurlegt að vera svona upp á aðra komin. Að þurfa svo að takast á við peningaáhyggjur ofan á allt annað sem að maður stendur frammi fyrir er náttúrlega bara skammarlegt.“ Hún segir þá staðreynd að þeir, sem séu svo óheppnir að verða veikir og þurfa á sjúkrahúsdvöl að halda til lengri tíma, hljóti að vera brot á stjórnarákvörðun mannréttinda. Að þessu þurfi að breyta og að strax. „Það er í ykkar höndum þarna niður á alþingi að breyta þessu ásamt kjörum öryrkja almennt. Með von um svör og fljót viðbrögð í þinginu,“ skrifar Guðný að lokum í bréfi sínu.
Mest lesið „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Innlent Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Innlent Voru send í skólasund eftir slysið Innlent Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Innlent Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Innlent Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Innlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Innlent Fleiri fréttir „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Tvöfaldur verðmunur á Súðavíkurgöngum Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Grímuklæddir menn vistaðir í fangaklefa Voru send í skólasund eftir slysið Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Börn send fótgangandi í sund eftir bílslys Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Nýr sendiherra Bretlands í fullu námi í íslensku Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Sjá meira