Fleiri fréttir

Slasaðist í árekstri við Litlu kaffistofuna

Ökumaður fólksbíls slasaðist í hörðum árekstri fólksbíls og flutningabíls á Suðurlandsvegi rétt austan við Litlu Kaffistofuna um klukkan hálf tíu í morgun.

Framkvæmdir í miðbænum ógna jólaverslun

Kaupmenn segja framkvæmdir á Hverfisgötu trufla jólaverslun. Framkvæmdum átti að ljúka í nóvember en þær munu ekki klárast endanlega fyrr en eftir jól. Miðborgarstjóri er bjartsýnn og segir hátíðarstemningu alltaf ríkja í bænum.

Hafísröndin færist nær landi

Veðurstofan býst við að hafísröndin norður af landinu færist nær landi á næstu dögum þar sem spáð er fremur hvassri vestan- og suðvestanátt.

Umferð gengur hægt

Leiðindafærð er á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun og gengur umferðin hægt fyrir sig. Tiltölulega lítið hefur orðið um óhöpp í morgun.

Þingmenn vilja áhættumat vegna ferðamennsku

Átta þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að unnið verði áhættumat með tilliti til ferðamennsku í landinu, í samvinnu við þá sem koma að björgunar- og ferðamálum.

Bílveltur í vetrarfærðinni

Ökumaður slasaðist þegar bíll hans valt út af þjóðveginum i Reykhólasveit í gærkvöldi og var hann fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík. Meiðsl hans reyndust ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu.

Þótti líklegra að bróðir sinn yrði sjálfur einhverjum að bana

Bróðir Sævars Rafns Jónassonar sem var skotinn til bana í Hraunbæ á mánudagsmorgun bjóst frekar við því að hann yrði einhverjum að bana en ekki öfugt. Hann hafði verið í fangelsi og á stofnunum allt sitt líf. Eftir að fíknin náði tökum á honum hvarf karak

Virðing gagnvart verslunarfólki

VR afhenti fyrstu barmmerki sín þar sem fólk er hvatt til að sýna kurteisi, vera jákvætt og sýna störfum verslunarfólks virðingu.

Embætti talsmanns neytenda lagt niður

Embætti talsmanns neytenda verður lagt niður og verkefni embættisins verða færð til Neytendastofu, samkvæmt nýsamþykktum lögum frá Alþingi.

„Ég væri ekki leikari án RÚV“

Hópur leiðandi lista- og fræðafólks tjáir sig í nýju myndskeiði um mikilvægi menningar- og fræðsluhlutverks Ríkisútvarpsins.

1500 nýja blóðgjafa vantar

Nú vantar 1500 nýja blóðgjafa en virkum blóðgjöfum hefur fækkað um 9% frá árinu 2005. Konur gefa síður blóð en karlar og mikilvægt er að ná til þeirra og ungs fólks.

Slakur árangur íslenskra nemenda: "Öllum brugðið"

Um 30% íslenskra drengja eru ófærir um að lesa sér til gagns þegar skólaskyldu lýkur og frammistaða íslenskra nemenda hefur versnað verulega síðustu ár. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar.

ESB stöðvar IPA-verkefni á Íslandi

Skrifstofa stækkunarmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) hefur einhliða og án fyrirvara tilkynnt ákvörðun um að hætta öllum IPA-verkefnum sem hafin voru á Íslandi.

Afhverju var þessi maður með byssu?

Tvær dagmömmur, sem voru meðal nágranna skotmannsins, segja að eitthvað mikið sé að kerfinu þegar fársjúkur maður fær íbúð innan um barnafjölskyldur. Þær spyrja hvernig standi á því að svona maður hafi byssu undir höndum.

Verslun með læknadóp á facebook

Morfínfíklum í viðhaldsmeðferð fjölgar á Vogi og virðist vandinn vera að aukast. Lyfjaeftirlitsstofnun fær tugi ábendinga í hverjum mánuði um ólöglega sölu á lyfseðilskildum lyfjum sem fer fram á facebook. Erfitt er að halda úti eftirliti með slíkri sölu.

Búið að finna viðbótarfjármagn fyrir Landspítalann

Fjárframlög til Landspítalans verða aukin um 3-4 milljarða króna frá upphaflegum forsendum fjárlagafrumvarpsins ef samstaða tekst innan stjórnarflokkanna um sparnað í ríkisfjármálum á móti. Gangi þetta eftir verður fjárlagafrumvarpi breytt í þessa veru fyrir aðra umræðu í þinginu í næstu viku.

Þórey nýr formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, var kjörin formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á aðalfundi samtakanna á laugardaginn en fundurinn fór fram í Valhöll.

Lögregla rannsakar íbúð byssumannsins

Íbúð byssumannsins við Hraunbæ er eins og eftir sprengingu. Blóðslóð liggur um stigaganginn og för eftir haglabyssuskot sjást á veggjum og hurð nágranna.

Byssumaðurinn var ekki með byssuleyfi

Sævar Rafn Jónasson, maðurinn sem lést, eftir skotbardaga við sérsveit Ríkislögreglustjóra í Árbænum í gær mun ekki hafa verið með byssuleyfi fyrir haglabyssu en fréttastofa RÚV hefur heimildir fyrir því.

Slysalausir dagar í desember

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til allra í umferðinni að huga að hættum og gera þá daga sem eftir eru af árinu slysalausa.

Kemur ekki á óvart að staða drengja fari versnandi

"Almennt eru þetta mjög vondar fréttir,“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi sem á sæti í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar, um niðurstöður PISA rannsóknarinnar.

"Harmsaga veiks manns“

Systir Sævars Rafns Jónassonar segir hann hafa fundið það að hann væri fyrir alls staðar og ekkert væri hlustað.

Dularfulla málverkahvarfið

Ólafur Gunnarsson rithöfundur saknar sárlega stórs og ómetanlegs málverks úr sinni eigu en það hvarf með dularfullum hætti úr fórum Sigurðar Örlygssonar listmálara.

Óljóst hvort sprengingar hafi virkað

Ekki liggur fyrir hvort eitthvað af síld fældist út úr Kolgrafafirði þegar tilraunir voru tvívegis gerðar í síðustu viku til að flæma hana út með því að sprengja hvellhettur neðansjávar. Næst verður reynt að flæma síldina út með drápshljóðum úr háhyrningum.

Treður sér milli kóngs og drottningar

Villi naglbítur ætlar að reynast "svarti hesturinn“ þessi jólin. Samkvæmt glænýjum bóksölulista er hann með 3. söluhæstu bókina -- milli þeirra Arnaldar og Yrsu.

„Samfélagið brást honum“

„Af hverju var þessi maður ekki á stofnun, mér finnst við hafa brugðist honum, samfélagið hefur brugðist honum,“ segir Kristen Mary Swenson, íbúi í Hraunbæ, þar sem hinir skelfilegu atburðir áttu sér stað í gær.

Sjá næstu 50 fréttir