Fleiri fréttir

Lokatölur yfir landið: Ólafur 52,78%

Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 52,78% atkvæða yfir landið allt, en Þóra Arnórsdóttir 33,16% samkvæmt lokatölum sem birtust um klukkan hálfátta í morgun á kosningavef RÚV. Ólafur Ragnar hefur því verið endurkjörinn forseti Íslands til næstu fjögurra ára. Ari Trausti Guðmundsson hlaut 8,64%, Herdís Þorgeirsdóttir 2,63%, Andrea Ólafsdóttir 1,8% og Hannes Bjarnason 0,98%. Heildarkjörsókn yfir landið allt var 69%.

Boðar aukna þátttöku í opinberri umræðu

Ólafur Ragnar Grímsson sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi í morgun að það væri margan lærdóm hægt að draga af nýloknum forsetakosningum, en Ólafur Ragnar var endurkjörin með um 53 prósent atkvæða. Meðal annars sagði hann að almenningur kallaði eftir vitrænni samræðu og að tími auglýsinga og slagorða væri liðinn.

Tólf látnir eftir storm í Bandaríkjunum

Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjár milljónir heimila og fyrirtækja eru án rafmagns í norðvesturhluta Bandaríkjanna eftir öflugan fellibyl sem gekk þar yfir. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Washington, Ohio og Virginíu vegna mikilla skemmda og hefur Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, heitið skjótri hjálp.

Bein útsending frá úrslitum Landsmóts

Úrslit Landsmóts hestamanna frá Víðidal verða send beint út á Vísi og Stöð 2 Sport og hefst útsendingin fimm mínútur í tíu. Kynnir verður Telma L. Tómasson fréttamaður og með henni verður Hafliði Halldórsson hestamaður, dómari og hrossaræktandi, sem mun skýra það sem fyrir augu ber, fara yfir keppnisreglur og greina frá ýmsum spennandi hliðum á hestamennsku og gæðingakeppni.

Úðaði málningu á bíla

Lögreglan í Hafnarfirði leitar að skemmdarvargi sem úðaði málningu á bifreiðar við Stórás í Hafnarfirði um miðnætti síðastliðna nótt. Þegar lögreglan kom á vettvang var vargurinn á bak og burt og er hans því leitað. Þá var einnig tilkynnt um rúðubrot á Dalshrauni í Hafnarfirði á svipuðum tíma og bílarnir voru skemmdir.

Herdís sér ekki eftir neinu

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist ekki sjá eftir neinu sem hún hafi gert á undanförnum mánuðum.

Talningu atkvæða lokið í Reykjavík

Búið er að telja atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls hafa 30.837 atkvæði verið talin. Ólafur fékk flest atkvæði í kjördæminu. Næst á eftir honum kom Þóra Arnórsdóttir.

Ari Trausti útilokar ekki framboð á ný

Þótt Ólafur Ragnar Grímsson sé augljós sigurvegari kosninganna eru niðurstöðurnar ekki upplífgandi fyrir hann, segir Ari Trausti Guðmundsson, forsetaframbjóðandi. Hann útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta aftur að fjórum árum liðnum. Ari Trausti ræddi við Jóhönnu Margréti Gísladóttur, fréttamann Stöðvar 2 og Vísis, um miðnættið í kvöld.

Ólafur er sigurvegari kosninganna

Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið endurkjörinn sem forseti lýðveldisins. Eins og staðan er núna á landinu öllu fær Ólafur 51,5% atkvæða. Þóra Arnórsdóttir fær 33,7% atkvæða. Ari Trausti er í þriðja sæti með 8,9%. Herdís og Andrea fá báðar 2,5% atkvæða og Hannes rekur lestina með minna en eitt prósent atkvæða.

Fjallað um sigur Ólafs erlendis

Fjallað er um íslensku forsetakosningarnar á forsíðu fréttamiðilsins BBC. Þar er því slegið fram að Ólafur eigi fyrir höndum fimmta kjörtímabilið á Bessastöðum og að Þóra hafi þegar lýst sig sigraða.

Engar líkur að falsaðir seðlar séu í kössunum

Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hverfandi líkur á því að fölsuð atkvæði hafi komist í kjörkassana í forsetakosningunum í dag.

Þóra: Sigur að ná þriðjungi atkvæða

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og fjölmiðlamaður var kampakát eftir að fyrstu tölur voru kynntar í kvöld. "Það að ná meira en þriðjungi atkvæða er alveg ótrúlegur sigur,“ sagði hún í samtali við fréttamann á Stöð 2 og Vísi. Kjörsókn hefur verið afar dræm en Þóra sagðist ekki geta tjáð sig hvaða áhrif það hefði. "Hún hefur sjálfsagt eitthvað að segja en í hvaða átt get ég ekki sagt,“ sagði Þóra.

Ólafur leiðir í Reykjavík

Þegar 22.654 atkvæði hafa verið talin í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Ólafur baráttuna með 45,1% fylgi. Þóra fylgir á hæla hans með 36,5%.

Minna en helmingur kaus í Reykjavík norður

Kosningaþáttakan var mjög lág í Reykjavíku norður kjördæmi. Þar mætti minna en helmingur kosningarbærra manna á kjörstað. 49,66% kusu. Í Reykjavíkurkjördæmi suður kusu 55,21%.

Ólafur enn með yfirburði í Reykjavík

Ólafur Ragnar Grímsson er enn með sterka stöðu þegar um 19 þúsund atkvæði hafa verið talin í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Hann er með um 50,5% atkvæði í Reykjavík suður en um 46% í Reykjavík norður.

Barn Þóru heitir Ásdís Hulda

Þóra opinberaði nafn nýfæddrar dóttur sinnar í kvöld. Hún á að heita Ásdís Hulda Svavarsdóttir. Í ræðu sem Þóra hélt á kosningavöku sinni í Hafnarhúsinu hélt hún því fram að stúlkan væri pottþétt á topp fimm lista yfir feitustu fimm vikna börn á landinu. Því þyrfti fólk ekki að hafa áhyggjur af velferð þessa unga fjölskyldumeðlims þó móðir hennar hefði verið í kosningabaráttu. Stúlkan hefur hingað til gengið undir nafninu Litla Ský.

Þóra segist hafa brotið blað í sögunni

Þóra Arnórsdóttir segist hafa brotið blað í Íslandssögunni með framboði sínu. Þetta sagði hún þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína á kosningavöku í Hafnarhúsinu í kvöld. Þar sagði hún að með framboðinu hefði verið og uppskar mikil fagnaðarlæti stuðningsmanna sinna.

Hannes Bjarnason: Niðurstöðurnar komu ekki á óvart

"Þetta kemur ekki á óvart,“ sagði Hannes Bjarnason frá Varmahlíð þegar rætt var við hann í kosningasjónvarpi RÚV í kvöld. Hannes er, eins og kannski hefur verið ljóst í skoðanakönnunum hingað til, sá frambjóðandi sem hefur hlotið minnst fylgi í kosningunum. Hannes sagðist enn bíða eftir tölum úr sínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, en þær tölur hafa ekki verið áreiðanlegar eins og þær hafa birst á RÚV í kvöld, þar sem þær stemmdu ekki.

Guðni: Ólafur er að uppskera þakklæti þjóðar sinnar

Guðni Ágústsson er mjög ánægður með fyrstu tölur úr forsetakosningunum. "Það er glæsilegt að fá helming þjóðar sinnar á bak við sig í kosningu. Ólafur er að vinna góðan sigur," segir Guðni sem var meðal þeirra sem skoruðu á Ólaf að bjóða sig fram aftur.

Þóra ætlar hvorki að bjóða sig fram til þings né aftur til forseta

Þóra Arnórsdóttir sagði í kosningasjónvarpi RÚV að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram til forseta eftir fjögur ár. "Þetta er eitthvað sem maður gerir bara einu sinni á ævinni,“ sagði hún. Þóra sagðist hinsvegar með gleði í hjarta eftir baráttuna, "þannig maður gengur frá þessu með gleði í hjarta.“

"Gamla Ísland lifi að eilífu! Sad but true!"

Nú dælast inn örfærslur á samskiptamiðilinn Twitter um fyrstu tölur í forsetakosningunum. Fólk hefur sterkar skoðanir, ýmsir básúna þar bölsýnisspár og vanda samlöndum sínum ekki kveðjurnar.

Segir tveggja turna tal hafa haft áhrif á kjósendur

"Þetta staðfestir að þetta eru kosningar á milli tveggja flokka, turna, eins og kosningar á milli stórra flokka eins og Repúblikana og Demókrata,“ sagði Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi um atkvæðin sem hafa verið talin. Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson hefur afgerandi forystu. Herdís segir þetta sýna að tveggja turna tal um Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar hafi haft áhrif á kjósendur.

Andrea segir fyrstu tölur vonbrigði - Þóra bara glöð

"Þetta er í samræmi við skoðanakannanir, en auðvitað ákveðin vonbrigði,“ sagið Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún var spurð um fyrstu viðbrögð eftir að tölur úr Norðausturkjördæmi voru kynntar. Raunar var aðeins búið að telja þúsund atkvæði en Andra hlaut 18 atkvæði og er því með 1,8 prósent.

Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi birtar

Ólafur Ragnar Grímsson er með 45% greiddra atkvæða í Norðausturkjördæmi, en fyrstu tölur voru birtar nú rétt fyrir klukkan hálfellefu. 1000 atkvæði voru talin.

Búið að loka kjörstöðum

Nú er búið að loka kjörstöðum um allt land. 236 voru á kjörskrá á landinu öllu og hefur kosningaþátttaka verið fremur dræm. Fylgst verður með gangi mála á Vísi í allt kvöld og í nótt. Fyrstu tölur eru væntanlegar á næsta hálftímanum.

Fyrstu tölur klukkan 22:30 - fylgst með gangi mála á Vísi

Nú eru aðeins nokkrar mínútur í fyrstu tölur úr forsetakosningunum en kjördagur var í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er búist við að fyrstu tölur verði kynntar um klukkan 22:30. Kosningaþátttakan virðist vera heldur dræm en klukkan átta í kvöld höfðu ekki einu sinni helmingur kjósenda kosið. Fylgst verður með gangi mála hérna á Vísi í kvöld og fram á nótt.

Kjörseðlarnir hefðu getað verið skýrari

Þórunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, telur að kjörseðlarnir fyrir forsetakosningarnar hefðu getað verið skýrari. Hún telur að óskýrleikinn geti skilað sér í fleiri vafaatkvæðum en vant er.

Lögreglan rannsakar kjörseðlamál

Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavik norður hefur óskað eftir því að lögreglan rannsaki hvað veldur því að ungir menn stóðu í miðborg Reykjavíkur í dag og dreifðu seðlum. Eins og Morgunblaðið greindi frá er annað hvort um að ræða raunverulega kjörseðla, eða seðla sem líktust þeim gríðarlega mikið. Katrín Theodórsdóttir telur þó útilokað að mönnum hafi tekist að stela seðlum úr kjördeildum. Meiri líkur séu á að seðlarnir séu falsaðir.

Tökur á Oblivion samkvæmt áætlun

Þótt erlendir fjölmiðlar fullyrði að Tom Cruise sé niðurbrotinn maður eftir að fréttir bárust í gær af skilnaði hans og leikkonunnar Katie Holmes er leikarinn enn staddur á Íslandi eftir því sem Vísir kemst næst.

Þrír ferðamenn slasaðir eftir bílslys

Þrír menn voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir bílslys í Finnafirði á sjötta tímanum í dag. Einn þeirra er talinn alvarlega slasaður en að sögn vakthafandi læknis á slysavarðstofu Landspítalans er hann ekki í lífshættu.

Jón Hákon: Kosningabaráttan alveg hræðilega leiðinleg

"Mér finnst þetta hafa verið alveg hræðilega leiðinleg kosningabarátta,“ segir Jón Hákon Magnússon, almannatengill hjá KOM, þegar hann er spurður hvað honum hafi fundist um kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar. Hann segir baráttuna hafa verið allt of langa og bendir á að hún hafi meira eða minna staðið yfir síðan í apríl.

Tæplega helmingur kosið í Suðvesturkjördæmi

Tæplega 30 þúsund manns höfðu kosið í Suðvesturkjördæmi klukkan átta í kvöld eða 48,3 prósent kosningabærra manna. Á sama tíma í fyrra fyrir Icesavekosningarnar var kjörsóknin 61,5 prósent og árið 2010 55,6 prósent. Fyrir þingkosningarnar árið 2009 höfðu 71,2 prósent kosið. Það er því nokkuð ljóst að kosningaþátttakan í ár er töluvert minni en undanfarin ár.

Enginn fékk fimm milljónirnar - tvöfaldur næst

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og því verður potturinn tvöfaldur næsta laugardag. Fimm foru með fjórar tölur réttar auk bónustölu og fá þeir rúmar 45 þúsund krónur í sinn hlut. Enginn var með jókertölurnar réttar.

Úrslit Landsmótsins í beinni á Vísi

Úrslit í gæðingakeppni á landsmóti hestamanna verða sýnd í beinni útsendingu og opinni dagskrá hér á fréttavefnum á sunnudag. Landsmótið fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík að þessu sinni.

Lítil kjörsókn afleiðing hrunsins

Nokkuð ljóst er að það stefnir í minni kjörsókn en búist var við að mati prófessor í stjórnmálafræði. Hann telur minni kosningaþátttöku geta verið ein af afleiðingum hrunsins.

Freyja braut kosningalög í dag - segir þau ganga á mannréttindi sín

Freyja Haraldsdóttir kaus í dag og naut liðsinnis eigin aðstoðarmanns, en slíkt gengur gegn kosningalögum. Í yfirlýsingu sem Freyja sendi frá sér í dag segir hún að lögin gangi þvert á nokkrar greinar stjórnarskráarinnar. Þannig geti hún ekki orðið við því ákvæði kosningalaganna sem hún segir að brjóti á mannréttindum sínum.

Herdís: Fólk leitar skjóls hjá stjórnvöldum sem það finnur ekki

"Þetta hefur verið yndislegur dagur,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi en hún hóf daginn á því að kjósa í Ráðhúsi Reykjavíkur. Og andrúmsloftið var gott að sögn Herdísar, þannig glampaði sólin á tjörnina þar sem svanapar synti í rólegheitum. "Mér leið eins og Dimmalimm,“ segir Herdís.

Sjá næstu 50 fréttir