Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldurinn í Kópavogi: Nágrannar beðnir um að loka gluggum Fólk sem finnur fyrir reykjalykt vegna eldsvoðans í Vesturvör er vinsamlegast beðið um að loka fyrir gluggum í híbýlum sínum. Þetta kemur fram í fréttaskeyti sem slökkviliðið sendi fjölmiðlum nú rétt eftir klukkan hálfeitt. 4.7.2012 00:43
Eldur í Kópavogi Eldur kom upp í iðnaðarhúsi við Vesturvör í Kópavogi nú um miðnættið. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn. Samkvæmt sjónvarvottum teygja elddungurnar sig langt upp úr húsinu og leggur mikinn reyk yfir. 4.7.2012 00:10
Vélarvana fiskibátur við Neskaupstað Landhelgisgæslunni barst í völd aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var vélarvana um 15 sjómílur frá Neskaupstað. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupstað var kallað út til aðstoðar og er reiknað með að skipið verði komið á staðinn um miðnætti. 3.7.2012 23:15
Hlakka til að spila á Íslandi eftir ótrúlegt tónleikaferðalag Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er nú komin aftur til landsins eftir vel heppnað tónleikaferðalag um Bandaríkin. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona, segir að sterk vináttutengsl hljómsveitarmeðlima hafi reynst nauðsynleg þegar á ferðalaginu stóð. 3.7.2012 20:52
Eitt stærsta sterasmyglmál ársins Þetta er eitt stærsta málið í smygli og innflutningi á sterum á þessu ári, segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, um málið þar sem þrír starfsmenn Eimskips voru handteknir á sunnudaginn. Þeir höfðu meðal annars reynt að smygla tíu þúsund steratöflum til landsins. 3.7.2012 21:00
Ísland í dag: Föst inni vegna húsnæðisskorts "Þau eru föst inni á geðsjúkrahúsi og geta ekki verið útskrifuð þar sem þau fá ekki húsnæði við hæfi.“ 3.7.2012 20:45
Tom Cruise geðugur, kurteis og hógvær Kvikmyndaleikarinn heimsfrægi, Tom Cruise, fékk afmælisgjafir í Veiðivötnum í gærkvöldi í tilefni fimmtugsafmælis síns í dag en hann flaug síðan af landi brott fyrir miðnætti, eftir nítján daga dvöl hérlendis. Tom Cruise leið vel á Íslandi, þrátt fyrir allt, og erlenda kvikmyndatökuliðið var mjög ánægt með hversu vel tökurnar heppnuðust hérlendis. 3.7.2012 20:00
Vill leysa makríldeiluna fyrir næsta fiskveiðiár Sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins segist hafa sýnt mikinn sveigjanleika í makríldeilunni. Íslensk stjórnvöld þurfi nú að koma til móts við samningsaðila sína. Þá þurfi að finna lausn á málinu fyrir næsta fiskveiðiár. 3.7.2012 19:00
Húsnæði vantar fyrir útskrifaða sjúklinga á geðdeildum Um tuttugu einstaklingar með langvinna geðsjúkdóma eru fastir inn á Kleppi og öðrum geðdeildum Landspítalans þar sem þá vantar húsnæði að útskrift lokinni. Lengst hefur sjúklingur beðið í fjögur ár. Kona sem var lögð inn á Klepp fyrir tæpu ári líkir dvölinni við fangavist og harmar að komast ekki út í samfélagið að nýju vegna húsnæðisskorts. 3.7.2012 18:30
Hefur miklar áhyggjur af hækkunum hjá Farice „Við hjá Símanum höfum miklar áhyggjur af þessu. Við þurfum á þessum strengjum halda, svo að landið okkar sé tengt umheiminum." 3.7.2012 17:37
Eldur kom upp á sambýli Eldur kom upp á sambýli á Selfossi á fimmta tímanum í dag. Um smávægilegan eld var að ræða og náði starfsmaður á sambýlinu að ráða niðurlögum hans. 3.7.2012 17:14
Íslensk söfn bjóða í heimsókn Íslenski safnadagurinn þetta árið verður á sunnudaginn kemur. Söfn munu almennt bjóða fólki ókeypis aðgang á þessum degi sem nýtist vel til að kynna starf íslenskra safna fyrir almenningi. 3.7.2012 16:57
Tom Cruise fékk mótorhjól og Íslandskort í afmælisgjöf Tökulið Oblivion myndarinnar hélt Tom Cruise afmælisveislu áður en hann fór af landi brott í gær. Sem kunnugt er fagnar Cruise fimmtugsafmæli í dag. Heimildarmaður Vísis segir að Cruise hafi meðal annars fengið að gjöf vélhjól sem notað var við tökur á myndinni. Þá mun hann jafnframt hafa fengið gamalt Íslandskort að gjöf. 3.7.2012 16:47
Andrea vill snúa sér að réttlætisbaráttu Andrea Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, býst við því að hún muni snúa sér aftur að einhvers konar réttlætisbaráttu fyrst hún hlaut ekki kjör sem forseti Íslands. Áður en hún fór í forsetaframboð gegndi hún hlutverki formanns Hagsmunasamtaka Heimilanna. 3.7.2012 16:22
Ásdís Olsen handtekin í Rússlandi Ásdís Olsen aðjúnkt var handtekin og sett í stofufangelsi í Rússlandi á sunnudaginn þegar hún var í vegabréfsskoðun á leiðinni heim. Landvistarleyfið hennar hafði runnið út fyrir mistök því einhver ágalli hafði verið á Vegabréfinu. Ásdís segir að upplifunin hafi verið hryllileg og að landamæraverðir í Moskvu hafi komið fram við sig eins og úrhrak. 3.7.2012 16:12
Sýna pyndingar á Austurvelli Ungliðar í Amnesty international ætla að hafa sýningu á pyndingaraðferðum fyrir framan Alþingishúsið kl 12 á morgun. Þar gefst fólki tækifæri til að læra meira um pyndingar, skrifa undir mótmælabréf og jafnvel reyna á eigin skinni það sem fólk sem sætt hefur pyndingum hefur mátt þola. Tilefni sýningarinnar er alþjóðlegur dagur pyndinga sem var um daginn. 3.7.2012 15:44
Fimm hundruð stöðvaðir í átaki lögreglunnar Fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Níu þeirra þeirra reyndust ölvaður við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Eftirlitið fór m.a. fram í miðborginni og í Víðidal, en þar var haldið velheppnað Landsmót hestamanna. 3.7.2012 15:15
Höfðu ekki hugmynd um risasmyglmál Forsvarsmenn Eimskip vissu ekki af umfangsmikilli rannsókn lögreglu á smygli starfsmanna Eimskip. „Við vitum aldrei af rannsóknum fyrr en mennirnir eru teknir," segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskip. Hann segir félagið hins vegar vinna náið með lögregluyfirvöldum og Tollgæslunni eftir að tilkynnt er um málið og veita allar upplýsingar sem óskað er eftir. 3.7.2012 14:47
Efla eftirlit með brunavörnum Slökkviliðið, ásamt Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ) og Mannvirkjastofnun (MVS) skrifuðu í dag undir samstarfssamning um þróun hugbúnaðar til að efla eftirlit með brunavörnum á Íslandi. Hugbúnaðurinn hefur fengið vinnuheitið Brunavarnagáttir og kemur til með að halda utan um allt sem tengist brunavörnum í byggingum og ástandi þeirra. Gert er ráð fyrir að fyrsta útgáfa hans verði komin í notkun í desember 2014. 3.7.2012 14:32
Tíu þúsund steratöflur teknar Þrír karlar voru handteknir á sunnudag í aðgerðum lögreglunnar í tengslum við rannsókn hennar á umfangsmiklu smygli. Lagt var hald á áfengi, tóbak og mikið magn af töflum, en talið er að um steratöflur sé að ræða. Töflurnar eru um 10 þúsund talsins. Lögreglan tók einnig í sína vörslu 200 ambúlur og verulagt magn af sterum í vökvaformi. Þremenningarnir, sem allir eru skipverjar hjá Eimskipum, hafa játað aðild sína að málinu. 3.7.2012 14:06
Egill búinn að kæra stúlkuna Egill "Gillzenegger“ Einarsson, hefur kært stúlkuna sem sakaði hann um nauðgun til lögreglu. Hann óskar eftir lögreglurannsókn á tildrögum þess að hann, ásamt unnustu sinni var borinn sökum, um svívirðilegan glæp, sem hafi verið rangar. "Ég hef einsett mér að komast til botns í þessu máli," segir Egill í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. 3.7.2012 13:28
Engin heimild til að grípa inn í ferli um brottnám barna Barnaverndanefnd Kópavogsbæjar hefur ekki heimild til að breyta eða stöðva ferli sem felur í sér fullnustu ákvæða samkvæmt Haag-samningnum frá 25. október 1980 um brottnám barna, sem Ísland hefur fullgilt. Þetta segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ, en undanfarna daga hefur í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum verið fjallað um forsjármál sem Barnaverndanefnd Kópavogs hefur komið að. 3.7.2012 12:53
Mamma vann treyjuna fyrir son sinn Íslendingar tóku vel í söfnunina sem UNICEF stóð fyrir í tengslum við Evrópumótið í fótbolta. Alls söfnuðust 835.500 krónur með 557 smáskilaboðum en allir sem sendu inn fóru í pott þar sem verðlaunin voru árituð treyja frá liðsmönnum Barselóna. Ungur áhugamaður um knattspyrnu, Ari Sigfússon, vann treyjuna en hann hefur verið aðdáandi Börsunga í mörg ár. Það var reyndar móðir hans, Hildur Markúsdóttir, sem sendi skilaboðin í von um að vinna treyjuna fyrir Ara. 3.7.2012 12:30
Hjólar kringum landið fyrir 12 ára vinkonu Breiðdælingurinn Helga Hrönn Melsteð lagði á föstudaginn var í hjólreiðarferð hringinn í kringum landið. Ferðina kallar hún Thelmu-hringinn og tileinkar tólf ára stúlku sem berst við krabbamein. 3.7.2012 11:19
Segir gamla muni vinsælt skotmark skemmdarvarga Eignaspjöll voru unnin á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi í síðustu viku. Safnastjóri safnsins segir slík skemmdarverk hafa verið ákveðið vandamál upp á síðkastið og að "gamlir og sérstakir munir" verði frekar fyrir barðinu á skemmdarvörgum. 3.7.2012 10:54
Ól barn í bíl á leiðinni á sjúkrahús Lítilli stúlku lá svo á að komast í heiminn þegar foreldrarnir voru á leið á Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað um hálfáttaleytið í morgun að móðirin ól stúlkuna í bíl á leiðinni á sjúkrahúsið. Sjúkrabíll ók svo á móti fjölskyldunni og móðir og barn voru flutt á sjúkrahúsið með sjúkrabílnum. Samkvæmt upplýsingum frá Birni Magnússyni, forstöðulækni á sjúkrahúsinu, eru mæðgurnar enn á sjúkrahúsinu og heilsast þeim vel. 3.7.2012 10:48
Hélt konu nauðugri í tvær klukkustundir Eftir að hafa stungið kunningja sinn fjórum sinnum með litlum hníf ruddist karlmaður á þrítugsaldri óboðinn inn í íbúð á Ólafsfirði. Þar var ein kona fyrir sem hann varnaði útgöngu, hélt þar fanginni í um tvo tíma og kom í veg fyrir að hún hringdi á lögreglu. Atvikin áttu sér stað á aðfararnótt laugardagsins. 3.7.2012 09:59
Líkamsárás á mann á sextugsaldri í nótt Maður á sextugsaldri kom á slysadeild um tvö leytið í nótt og kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvað þar átti sér stað. 3.7.2012 06:30
Gjaldskrá vegna tannlækninga hækkar tímabundið um 50% Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Gjaldskrárbreytingin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn. 3.7.2012 15:22
Tökum á mynd Cruise lokið Tökum á myndinni Oblivion lauk í gærkvöld. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi myndarinnar Claire Raskind í samtali við Vísi. "Við erum hætt tökum hér. Þeim lauk í gærkvöldi. Það er það eina sem ég get sagt," sagði Raskind í samtali við Vísi. 3.7.2012 11:22
Ættum að framleiða okkar eigið eldsneyti Efnafræðingurinn Surya Prakash segir að Ísland sé betur til þess fallið en nokkur önnur þjóð að verða sjálfu sér nægt um eldsneyti. Íslenskt fyrirtæki hefur uppi áform um að framleiða 80 milljón tonn af metanóli á ári. 3.7.2012 08:00
Segja starfsöryggi sínu ógnað Reykjavíkurborg hefur nú ákveðið að hefja innritun barna sem eru fædd í janúar 2011 í leikskóla borgarinnar. 3.7.2012 07:00
Veðurupplýsingar geta forðað slysi Vindar og vindhviður skapa ferðalöngum með húsvagna oft mikla hættu. Dæmi eru árlega um að húsbílar fjúki af þjóðvegum landsins vegna strekkings, jafnvel svo að þeir velti og lífi fólks sé stefnt í hættu. Á landinu eru þjóðvegir þó misvarasamir. 3.7.2012 07:00
Jafnræði að laun allra sem lækkuðu séu hækkuð á ný Kópavogsbær hækkaði laun allra starfsmanna sem tóku á sig launalækkun 2009, líka þeirra sem ekki heyra undir kjararáð. Vildum tryggja jafnræði, segir upplýsingafulltrúi bæjarins. Kallað er eftir því að Reykjavíkurborg geri slíkt hið sama. Formaður kjarafé 3.7.2012 06:30
Kauphallarstjóri ánægður með breytt umhverfi Hlutabréf í fasteignafélaginu Regin, sem meðal annars á og rekur Smáralind og Egilshöll, voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í gærmorgun. Gengi bréfa félagsins stóð í stað í 8,2 í lok dags, en heildarvelta viðskipta með bréf í félaginu nam tæplega 40 milljónum á þessum fyrsta viðskiptadegi. Með Regin hafa nú tvö ný félög verið skráð á markað frá hruni, en auk Regins hefur smásölurisinn Hagar, sem á og rekur Bónus og Hagkaup, einnig verið skráður á markað. 3.7.2012 06:30
Gagnrýna nýtt gjald fyrir kafanir í Silfru Eigandi Arctic Adventures segir nýtilkomið gjald Þingvallanefndar á kafara og snorklara í gjánni Silfru mismuna gestum þjóðgarðsins og koma á óvart. Helmingur gjaldsins fari væntanlega í laun starfsmanns sem eigi að rukka það. 3.7.2012 06:00
Gæðaeftirlitsmenn skoða verkferla „Embættismenn Kópavogsbæjar hafa lagt ómælda vinnu við það undanfarin fjögur ár að endurskoða og skrá niður alla vinnuferla innan stjórnsýslusviðs sem snerta til dæmis vistun skjala, innheimtu, innkaup, fjárhagsáætlunargerð, upplýsingagjöf og mannaráðningar,“ segir Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar. 3.7.2012 06:00
Drottningin dregin í svaðið Hópurinn Handverkskonur á milli heiða gagnrýnir harðlega að íslenskar lopapeysur séu framleiddar í Kína eða löndum með ódýru vinnuafli. Fjórar vikur eru síðan Fréttablaðið benti á að íslenskar lopapeysur væru í miklum mæli prjónaðar erlendis. 3.7.2012 05:00
Fær ekki bætur fyrir varðhaldsvist Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu íslensks atvinnurekanda sem sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið haustið 2009 grunaður um aðild að mansalsmáli. Maðurinn var ákærður í málinu en fundinn sýkn saka. 3.7.2012 05:00
Fjórir í stærðfræði með ágætiseinkunn Fjórir stærðfræðinemar brautskráðust úr grunnnámi með yfir níu í meðaleinkunn frá Háskóla Íslands fyrir viku. Stærðfræði er nytsamleg, segir einn þessara nema, hún er notuð í hvert skipti sem lesa þarf úr talnagögnum. 3.7.2012 04:30
Fallegri undirgöng í vændum Veggjakrotarar voru ekki lengi að setja mark sitt á nýmálaða veggi í göngunum undir Miklubraut við Lönguhlíð. Stutt er síðan göngin voru máluð. 3.7.2012 04:30
Vatnsholt fær viðurkenningu Tripadviser Gistiheimilið Vatnsholt við Villingaholtsvatn hlaut nýlega viðurkenningu ferðasíðunnar Tripadviser fyrir framúrskarandi þjónustu. 2.7.2012 21:30
Vill sameina sjúkraflug á landinu "Við gætum hugsanlega gert betur með því að vera ávallt með vakt á staðnum og það hlýtur auðvitað að vera framtíðin,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi þar um þá hugmynd að sameina sjúkraflug á landinu og að hafa ávallt mannaða vakt á flugvöllum. 2.7.2012 20:45
Guðir og vættir takast á í nýjum íslenskum tölvuleik Nýr íslenskur tölvuleikur sem byggir að hluta á norrænu goðafræðinni er í burðarliðnum. Ef vel gengur búast framleiðendur hans við að milljónir manna um allan heim muni spila hann í nánustu framtíð. 2.7.2012 20:15
Strandaði við Skagaströnd Báturinn Eyjólfur Ólafsson HU-100 strandaði norðan við Spákonufellshöfða við Skagaströnd á fimmta tímanum í dag. Engin hætta skapaðist en einn maður var um borð. Hann kom sér sjálfur í land við strandstaðin. Björgunarbátur frá Landsbjörg dró bátinn til hafnar. 2.7.2012 19:25