Jafnræði að laun allra sem lækkuðu séu hækkuð á ný 3. júlí 2012 06:30 Reykjavíkurborg er sökuð um að mismuna starfsmönnum sínum eftir því hvort laun þeirra heyra undir kjararáð eða ekki. Hvorki náðist í borgarstjóra né formann borgarráðs við vinnslu fréttarinnar. fréttablaðið/gva
Kópavogsbær hækkaði laun allra starfsmanna sem tóku á sig launalækkun 2009, líka þeirra sem ekki heyra undir kjararáð. Vildum tryggja jafnræði, segir upplýsingafulltrúi bæjarins. Kallað er eftir því að Reykjavíkurborg geri slíkt hið sama. Bæjarráð Kópavogs samþykkti í febrúar að draga launahækkanir allra þeirra sem urðu fyrir launaskerðingu árið 2009 til baka. Ákvörðunin var tekin í kjölfar ákvörðunar kjararáðs, en hluti yfirstjórnenda fylgir ákvörðunum þess í launum. Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir að með þessu hafi bæjaryfirvöld viljað tryggja jafnræði starfsmanna sinna. „Þegar kjararáð ákvað í vetur að draga til baka launalækkanir þeirra sem heyra undir ráðið, ákvað Kópavogsbær að láta þær leiðréttingar ekki einungis ná til þeirra yfirstjórnenda sem eiga samkvæmt ráðningarsamningum að fylgja kjararáðsákvörðunum um starfsmenn ríkisins, heldur einnig til þeirra millistjórnenda hjá bænum sem líka höfðu tekið á sig launalækkanir árið 2009. Þannig vildi bærinn tryggja jafnræði meðal þeirra starfsmanna sem tekið höfðu á sig beinar launalækkanir árið 2009. Að óbreyttu hefðu einungis æðstu stjórnendur bæjarins fengið launalækkanir sínar til baka en ekki millistjórnendur.“ Bandalag háskólamanna (BHM) hefur kallað eftir því að Reykjavíkurborg geri slíkt hið sama. Samið var um launaskerðingu í janúar 2009 og laun yfir 300 þúsund krónum voru lækkuð um 4 til 10%. Það var gert með minni yfirvinnu. Skýrt var tekið fram að lækkunin ætti að vera tímabundin. Hjá Kópavogsbæ var lækkunin 5 til 10% á laun yfir 500 þúsund krónur. Laun þeirra yfirmanna hjá borginni sem tengjast kjararáði hækkuðu við ákvörðun ráðsins, en ekki annarra. Í svari Reykjavíkurborgar við umleitan BHM segir að hámark yfirvinnu hafi verið lækkað úr 48 klukkustundum á mánuði í 35. Þar er því hafnað að um vangoldin laun sé að ræða. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Sjá meira