Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Benedikt skipar nýjan sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð Benedikt páfi XVI hefur í dag (28. júní 2012) skipað sendiherra páfa í Nikaragúa, Henryk Jozef Nowacki erkibiskup, sendiherra páfa á Íslandi og í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kaþólsku kirkjunni hér á landi. 28.6.2012 11:11
Vantar leikara til að leika á móti Þorvaldi Davíð Vonarstræti er heiti á nýrri mynd sem Baldvin Z leikstýrir. Þetta er önnur kvikmynd hans, en hann leikstýrði jafnframt myndinni Órói. Um er að ræða mikla dramamynd sem verður tekin upp í byrjun næsta árs á Íslandi og víðar. "Ég er að byrja þetta skemmtilega ferli að finna leikara inn í Vonarstræti," segir Baldvin í samtali við Vísi. Hann bætir því við að hann vanti þrjár 5-8 ára gamlar stelpur og eina 13 - 17 ára til að leika í myndinni. 28.6.2012 10:39
Herdís gagnrýnir stjórnmálaprófessor harðlega Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðanda gagnrýnir orð Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði, sem sagði í viðtali við RÚV á þriðjudaginn, að opið bókhald frambjóðenda væri merkingarlítið þar sem upplýsingarnar yrðu ekki sannreyndar af Ríkisendurskoðanda fyrr en eftir kosningar. Hann benti jafnframt á að krafa annarra frambjóðanda um að opna bókhaldið væri eðlileg taktík fyrir þá sem hafa minna fé milli handanna í kosningunum og til þess fallið að snúa veikleikum slíkra frambjóðanda í styrk. 28.6.2012 10:35
Nýja brúin stendur ónotuð - veginn vantar Þorpin tvö í Reykholtsdal í Borgarfirði, Kleppjárnsreykir og Reykholt, fá betri tengingu með nýrri brú yfir Reykjadalsá, sem er að verða tilbúin. Brúin verður þó ekki opnuð fyrr en eftir rúmt ár þar sem fjárveitingu vantar í vegagerð að henni. Gamla brúin er mjó og einbreið en verður leyst af hólmi með nýrri brú sem risin er um eitthundrað metrum austar. 28.6.2012 10:30
Fyrsta slætti víða lokið Fyrsta slætti er lokið víða á Suðurlandi. Sigurður Ágústsson bóndi í Birtingaholti í Hrunamannahreppi og slátturverktaki segir í samtali við Dagskrána að hann hafi klárað fyrsta slátt þann 15. júní hjá sér og ellefu öðrum bændum í nágrenninu. 28.6.2012 09:50
Laumufarþegar aftur gripnir í Sundahöfn Enn og aftur voru erlendir hælisleitendur gripnir við að komast um borð í flutningaskip í Sundahöfn í gærkvöldi. 28.6.2012 07:00
Meira en 1.300 á biðlistum eftir félagslegum íbúðum Meira en 1.300 manns eru á biðlistum eftir íbúðum innan félagslegra kerfa stærstu sveitarfélaga landsins. Algengasti biðtími eftir íbúðum er á bilinu eitt til tvö ár og eru hlutfallslega flestir á biðlista hjá Kópavogsbæ miðað við fjölda íbúða í boði. 28.6.2012 07:00
Vélarvana hraðfiskibátur dreginn til hafnar Björgunarsveitarmenn Landsbjargar í Neskaupstað mönnuðu í skyndi harðbotna björgunarbát og héldu út, eftir að beiðni um aðstoð barst frá yfirbyggðum hraðfiskibáti, sem varð vélarvana aðeins hálfa sjómílu út af Barðneshorni við Norðfjörð. 28.6.2012 06:58
Strandveiðar stöðvaðar á suðursvæðinu Strandveiðar voru stöðvaðar á suðursvæðinu í gær, eða frá Hornafirði að Snæfellsnesi, þar sem júní-kvótinn kláraðist. 28.6.2012 06:48
Skotar og Norðmenn ræða aðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum Sjávarútvegsráðherrar Noregs og Skotlands hittast í Bergen nú í vikulokin til að ræða aðferðir til að beita Íslendinga og Færeyinga auknum þrýstingi vegna makrílveiða þjóðanna. 28.6.2012 06:42
Vesturbæjarlaug rýmd og þrír fluttir á slysadeild Vesturbæjarlaug í Reykjavík var rýmd í gærkvöldi eftir að torkennileg lykt fannst í kjallara laugarinnar. 28.6.2012 06:38
Endurheimti stolnar tölvur Farangri kanadísks ferðamanns var stolið á hóteli í miðborginni um síðustu helgi. Í farangrinum var töluvert um verðmæti, meðal annars fartölva og Ipad-spjaldtölva. 28.6.2012 06:00
Iceland Express mun stundvísari en áður „Niðurstaðan er fyrst og fremst sú að Iceland Express hefur bætt sig mjög mikið á þessu eina ári. Stundvísi Icelandair rokkar aðeins en er alla jafna góð,“ segir Kristján Sigurjónsson sem byrjaði fyrir ári síðan að taka saman upplýsingar um stundvísi íslenskra flugfélaga. Hann segir meginniðurstöður eftir árið sýna miklar breytingar á starfsháttum Iceland Express. 28.6.2012 05:30
Gagga eftir hvolpafóðri um nætur „Við ætlum að hafa þau hérna hjá okkur í sumar. Þau eru öll að braggast, borða vel og leika sér úti í grasinu, þó þau séu nú enn óttalega ósjálfbjarga,“ segir Andri Johnsen, annar skálavarðanna í Langadal. 28.6.2012 05:30
Stonehenge-ráðgátan leyst Stonehenge var byggt til að sameina stríðandi fylkingar. Þessu hafa enskir vísindamenn komist að eftir tíu ára rannsóknir. 28.6.2012 05:15
Eldhætta af völdum brunavarnabúnaðar Neyðarlínunni barst tilkynning um eld á þriðju hæð í húsi við Laugaveg í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Slökkvilið var sent á staðinn og slökkti og reykræsti. Þar var ekki mikill eldur en töluverður reykur. Talið er að kviknað hafi í neyðarútgangsljósi í húsinu. 28.6.2012 05:00
Yfir 900 teknir Vikuna 11. til 17. júní voru 484 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur eftir að hafa myndast í hraðamyndavélum sem staðsettar eru víða um land, en lesið er af þeim í Stykkishólmi. Skessuhorn.is segir frá. 28.6.2012 04:45
Spurt og svarað um Evrópumál Fréttablaðið hefur efnt til samstarfs við Evrópuvefinn, sem rekinn er í samstarfi Alþingis og Vísindavefjar Háskóla Íslands, um að birta stuttar greinar um Evrópumál. Greinarnar eru unnar upp úr svörum sérfræðinga Evrópuvefjarins við spurningum almennings um Evrópusambandið og aðildarferli Íslands. 28.6.2012 04:15
Bleikjan bjargaði Blöndutúr Sjö manna holl sem var við veiðar á tveimur efstu svæðum Blöndu um síðustu helgi kom þaðan laxlaust. Bleikjan í Rugludalshyl bjargaði andliti hópsins. 28.6.2012 04:00
Blind móðir hætti við að kjósa forseta og hélt á braut „Kona sem ætlaði að kjósa utankjörfundar í síðustu viku og fór með dóttur sína var meinað að nota hana sem aðstoðarmann og hún gekk burt án þess að kjósa,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður stjórnar Blindrafélagsins, sem skorar á alþingismenn að breyta lögum svo þeir sem þurfi aðstoð í kjörklefum geti valið eigin aðstoðarmann en séu ekki háðir liðsinni starfsmanna kjörstjórnar. 28.6.2012 04:00
Vill láta kanna vanvirkni samheitalyfja Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður Landssambands áhugafólks um flogaveiki, er ósátt við að vanvirkni samheitalyfja flogaveikilyfsins Keppra hafi ekki komist í umræðuna fyrr en nú. Hún heyrði fólk fyrst tala um málið sín á milli í kringum síðustu áramót. 28.6.2012 03:45
Slæmt ástand vegna kettlinga Ófremdarástand ríkir nú í Kattholti vegna fjölda kettlinga. 28.6.2012 03:15
Ábyrgðin hjá húsfélögunum Nokkrir númerslausir bílar hafa staðið óhreyfðir á bílastæðaplani við Veghús í Grafarvogi. Lesandi Fréttablaðsins benti á bílana og sagði þá hafa staðið á planinu í nokkur ár. 28.6.2012 03:00
Ákærðir fyrir fjárkúgun og nauðung Ríkissaksóknari hefur ákært Elís Helga Ævarsson og Steindór Hrein Veigarsson fyrir að svipta tvo bræður frelsi sínu, kúga fé út úr öðrum þeirra og annan þeirra fyrir að reyna auk þess að ræna hann nokkrum mánuðum seinna. 28.6.2012 03:00
Vegfarendum beint annað Aðkoma bíla og götur umhverfis mótsstað Landsmóts hestamanna í Víðidal í Reykjavík anna ekki umferð þúsunda bíla. Umferðarstofa hefur því hvatt vegfarendur og íbúa í hverfinu umhverfis mótstaðinn til að hjóla eða ganga um svæðið, annars velja aðrar leiðir. 28.6.2012 02:45
ETS-kerfið fyrir losun tilbúið Umhverfisstofnun (UMST) hefur opnað ETS-skráningarkerfið fyrir losunarheimildir fyrir allt EES-svæðið. Kerfið er rekið miðlægt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins en UMST heldur utan um og hefur umsjón og eftirlit með kerfinu hér á landi. 28.6.2012 02:30
Nýr Stúdentakjallari byggður Félagsstofnun stúdenta hefur undirritað samning við Íslenska aðalverktaka um byggingu 561 fermetra Stúdentakjallara í viðbyggingu við Háskólatorg. Að auki verður torgið sjálft stækkað um 238 fermetra og 194 fermetra geymslu- og sorpbygging reist. 28.6.2012 02:15
Tom Cruise farinn frá Akureyri Tom Cruise er farinn frá Akureyri. Nágrannar hans við lúxusvilluna Hrafnabjörg, gegnt Akureyri, þar sem leikarinn góðkunni hefur dvalið undanfarið fullyrða, í samtali við Akureyri Vikublað, að gæslubílll sé farinn þaðan og að flutningabíll hafi sótt dót sem leikarinn hafði með sér. Leikarinn góðkunni er staddur hér á landi til að taka upp myndina Oblivion, eins og þekkt er orðið. 28.6.2012 00:01
Gefa vöfflur og benda á skaðsemi hvalveiða SEEDS sjálfboðaliðar munu fræða vegfarendur um skaðsemi hvalveiða á Reykjavíkurhöfn næsta föstudag milli 11 og 14. Uppákoman er hluti af átakinu "Meet us, don't eat us". 27.6.2012 23:56
"Ég hefði eins getað keypt fjandans bílinn“ Jack Ass stjarnan Bam Margera hefur lent í ýmsum ævintýrum í dvöl sinni hér á landi, en hann þurfti meðal annars að greiða 1,2 milljónir króna vegna skemmda á bílaleigubíl sem hann var með á leigu. Fréttastofa rakst á hann á göngu á Hverfisgötu í dag, þar sem hann sagðist hafa málað bílinn. 27.6.2012 23:48
Forsetaefnin á þeytingi Keppinautarnir um Bessastaði eru á þeytingi núna á lokaspretti kosningabaráttunnar og það er æði margt sem brennur á kjósendum, eins og Lóa Pind Aldísardóttir komst að í hádeginu þegar hún fylgdi þeim eftir sem líklegastir eru til að fagna sigri á sunnudaginn. 27.6.2012 22:33
Telja að útflutningur á hestum muni aukast Íslenskir hestamenn telja að útflutningur hesta komi til með að aukast á árinu. Útflutningurinn minnkaði verulega í kjölfar hestapestarinar sem hér geisaði árið 2010. 27.6.2012 22:28
Aukinn stuðning þarf svo 85% hreyfi sig árið 2020 Þórdís Lilja Gísladóttir, sérfræðingur um íþróttir og heilsu, telur gerlegt að ná markmiði borgarstjórnar að meira en 85% borgarbúa stundi skipulega hreyfingu árið 2020. Hún segir hins vegar að til þess þurfi að koma stuðningur og fjármagn frá borginni til íþróttafélaga. 27.6.2012 22:06
Fyrsti dagurinn í fríinu var hrein martröð Íslenskir þremenningar lentu í gær í þeim hörmungum að vera rændir rétt fyrir utan Malaga á Spáni stuttu eftir að þeir stigu útúr flugvélinni. 27.6.2012 21:13
Fíkniefnastríðið er ekki tapað Stríðið við fíkniefni eins og við þekkjum það er ekki tapað. Við ætlum ekki að breyta okkar afstöðu eða aðferðum í bili. Þetta segir Héðinn Svarfdal Björnsson, fyrir hönd embætti Landslæknis. 27.6.2012 20:49
"Ég er eini lögreglumaðurinn á vakt í Þingeyjarsýslu“ Í kvöld er einn lögreglumaður á vakt á Norðaustur-landi á svæði sem spannar frá Víkurskarði og austur á Bakkafjörð. "Ég er eini lögreglumaðurinn á vakt í Þingeyjarsýslu. Og það eru ekki til peningar til að leysa menn af. Ef að ég myndi veikjast þá yrði bara lokað. Þá yrðu menn bara ræstir út ef upp kæmu neyðartilvik," segir lögreglumaður á vakt á Húsavík. 27.6.2012 19:42
Lottóvinningshafinn óskar nafnleyndar Konan sem vann 73 milljónir í lottó á dögunum og gaf sig fram í gær hefur óskað nafnleyndar. Þetta segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Almenningur mun því ekki fá að vita hver þessi heppna kona er. 27.6.2012 17:39
Milljóna króna halli hjá kaffistofu Samhjálpar Það stefnir í milljóna króna halla á rekstri kaffistofu Samhjálpar í ár. Rekstrarstjórinn segir fordóma ríkja til kaffistofunnar. Þó fjölgi skjólstæðingum þeirra um leið og matvælaaðstoð annarra hjálparsamtaka fer í sumarfrí. 27.6.2012 20:18
Mótmælir mosku með bréfi prýddu hauskúpu Íbúar í grend við Sogamýri hafa margir fengið bréf þar sem varað er við byggingu mosku á svæðinu og hætta sem bréfritari telur stafa af múslíum er tíunduð. Formaður Félags múslíma á Íslandi segir áróðurinn svipaður ruglinu í Breivik. 27.6.2012 20:02
Guðrún orðin fyrsti kvenkyns bæjarstjóri Hafnafjarðar Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir var í dag ráðin bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hún tekur við af Guðmundi Rúnari Árnasyni sem hefur verið bæjarstjóri frá því í júlí 2010. Bæjarstjóraskiptin eru hluti af samkomulagi sem meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna í Hafnarfirði gerðu í upphafi kjörtímabilsins. 27.6.2012 19:03
Lögreglustjóri hvetur stjórnsýsluna til að byrja á facebook Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, segir notkun samfélagsmiðla mikilvæga fyrir lögregluna í nýjum pistli. Hann segir lögregluna hafa jákvæða reynslu af notkun samfélagsmiðla og telur að hægt sé að yfirfæra hana á alla aðra opinbera starfsemi. 27.6.2012 18:28
Dómari á ekki að víkja sæti vegna hrákans Héraðsdómarinn Sveinn Sigurkarlsson er ekki vanhæfur til að fara með mál ákæurvaldsins gegn Berki Birgissyni, Annþóri Kristjáni Karlssyni og fleirum. Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð dómarans um að hann væri vanhæfur til að fara með sakamálið vegna þess að Börkur hrækti á annan dómara við sama dómstól. 27.6.2012 17:57
Heimsmeistari úr leik Heimsmeistarinn í fjórgangi í hestaíþróttum er úr leik á Landsmótinu í Víðidal eftir að hún viðbeinsbrotnaði í keppni í b-flokki gæðinga í gær. Heismeistarinn, Berglind Ragnarsdóttir, var að keppa á Frakki frá Laugavöllum þegar óhappið varð. Hún segir að það hafi verið bleyta á vellinum sem olli því að hesturinn rann og missti fótana þegar hann var á stökki 27.6.2012 13:13
Mekka íslenska hestsins er á Íslandi Sigurbjörn Bárðarson segir mikilvægt að selja graðhesta úr landi. Í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag var hann spurður hvort hestamenn væru að skjóta sig í fótinn með því að selja graðhesta úr landi og hvort hestaræktin myndi þá ekki færast alfarið til útlanda. 27.6.2012 00:02
Karl afhenti lyklana Karl Sigurbjörnsson, fráfarand biskup, afskrýddist biskupskápu sinni við athöfn við lok prestastefnu í Dómkirkjunni í dag. Hann afhenti svo Agnesi M. Sigurðardóttur nývígðum biskupi lykla embættisins. Agnes tekur svo formlega við störfum á biskupsstofu á mánudag. Sömuleiðis afhenti Karl henni hirðisstaf biskups sem var gjöf rússnesku kirkjunnar til embættisins og minnti hana í leiðinni á mikilvægi gestrisninnar. 27.6.2012 18:57