Milljóna króna halli hjá kaffistofu Samhjálpar Lóa Pind Aldísardóttir. skrifar 27. júní 2012 20:18
Það stefnir í milljóna króna halla á rekstri kaffistofu Samhjálpar í ár. Rekstrarstjórinn segir fordóma ríkja til kaffistofunnar. Þó fjölgi skjólstæðingum þeirra um leið og matvælaaðstoð annarra hjálparsamtaka fer í sumarfrí. Ása Óskarsdóttir hefur komið reglulega á kaffistofu Samhjálpar síðustu fimm ár. „Ég er öryrki, hef mjög litlar bætur og neyðist til að koma á svona hjálparstofnanir. Ég hef farið í mæðrastyrksnefnd, þar er lokað. Líka fjölskylduhjálpin. Þá hef ég náð í næringu hér," segir Ása þegar hún er spurð hvers vegna hún komi á kaffistofu Samhjálpar. „Um leið og það dregst eitthvað saman í matargjöfum þá koma fleiri hingað," segir Kolbrún Pálína, matseljan á kaffistofunni.Er þetta nánast eini maturinn sem þú færð? spyr fréttakona. „Ég á núðlusúpur og svona heima," segir Ása.Hún segir að þú sért heimalingur, segir fréttakona. „Það má segja það. Þetta er það eina sem maður hefur að éta," segir Guðjón Stefánsson, gestur á kaffistofunni. Guðjón og Ása eru bæði á örorkubótum en segja bæturnar ekki hrökkva til. „Ég get keypt í byrjun mánaðarins rosalegan mat. Og svo þegar mánuðurinn er hálfnaður fer maður að skrimta," segir Ása. Auralitlir gestir stinga samt klinki í baukinn, eigi þeir eitthvað aflögu og þótt birgjar séu örlátir segir Vilhjálmur Svan að 8 milljóna króna halli hafi verið á rekstrinum í fyrra - og stefni í svipaðan halla í ár. Gestirnir eiga allir blankheit sameiginleg, en andinn er góður. „Sumir halda að þetta sé logandi í fylliríi og dópneyslu alla daga en það er ekki. Hér er bara friður og ró. Hérna geta allir komið og fengið sér að borða án þess að verða fyrir neinu áreiti," segir Vilhjálmur Svan, rekstrarstjóri kaffistofu Samhjálpar. Vilji einhver veita kaffistofunni liðsinni sitt er hægt að leggja inn á reikning hennar. Reikningsnr. 101-26-31880 Kt. 690109-2880
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira