Telja að útflutningur á hestum muni aukast Erla Hlynsdóttir skrifar 27. júní 2012 22:28
Íslenskir hestamenn telja að útflutningur hesta komi til með að aukast á árinu. Útflutningurinn minnkaði verulega í kjölfar hestapestarinar sem hér geisaði árið 2010. Sérstökum sölubásum með íslenskum hestum hefur verið komið upp á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir enda þar saman komnir hestaáhugamenn víða að úr veröldinni. Langflestir hestar eru fluttir til Þýskalands, þá Svíþjóðar og svo Danmerkur. Árið 2008 voru um átján hundruð hestar fluttir út og litlu færri árið 2009. Það var síðan árið 2010 sem hestapestin geisaði og aðeins tæplega tólf hundruð hestar voru fluttir út. Í fyrra voru þeir enn færri, um ellefuhundruð.Býstu við að markaðurinn sé að taka við sér aftur? „Já, mér finnst það," segir Eysteinn Leifsson, hestaútflytjandi. Salan fer hægt af stað fyrstu dagana á Landsmóti. „Mest er það nú fólk að leita sér að hrossum í keppni. Áhuginn virðist liggja þar. Það er verið að leita í meiri gæði. Svo er fólk líka að leita sér að sínum reiðhesti en mest liggur áhuginn þar í keppnishrossum," Síðan eru það sumir sem kíkja í sölubásana af hreinni forvitni. „Það er náttúrlega oft sem fólk ætlar ekkert að kaupa sér hest en svo bara stenst það ekki freistinguna," segir Eysteinn. Meðal þeirra sem eru til sölu eru Ofsi frá Margrétarhofi sem er keppnishestur, en hann er undan hinum víðfræga Orra frá Þúfu. En hvað vill eigandinn fá fyrir Ofsa? „Kringum þrjár milljónir kannski. En þú getur ábyggilega fengið hann fyrir eitthvað minna ef þú ert með peninginn á þér," segir Reynir Örn Pálmason, eigandi Ofsa.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira