Fleiri
Bannað að henda pappír með almennu sorpi 26.6.2012 19:15 Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. 26.6.2012 19:15 Gott veður og þurrt óvenju lengi Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann. 26.6.2012 17:44 Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. 26.6.2012 14:18 Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn. 26.6.2012 13:52 Bjargaði kind á hvolfi Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar. 26.6.2012 10:38 Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. 26.6.2012 09:55 Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur "Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. 26.6.2012 06:00 Sjá næstu 50 fréttir
Lífshættulegt að leyfa börnum að hlaupa meðfram bílum Það er mjög hættulegt þegar vegfarendur ganga eða hlaupa meðfram ökutækjum sem eru á hreyfingu. Sérstaklega þarf að gæta varúðar þegar börn eiga í hlut. Ökumenn geta hæglega misst sjónar af börnum vegna smæðar þeirra. Þetta kemur fram í varnaðarorðum Rannsóknarnefndar umferðarslysa sem lauk nýverið rannsókn fimm banaslysa í umferðinni sem urðu árið 2011. 27.6.2012 14:00
Morðrannsókn eftir gassprengju í Oldham Lögreglurannsókn er hafin eftir að barn deyr í gassprengju í Oldham, Bretlandi. 27.6.2012 13:35
Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi Börkur Birgisson var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á skikkju héraðsdómara og kallaði hana "tussu“. Börkur mætti ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að eigin ósk en síðast þegar hann mætti þangað reyndi ungur karlmaður að koma úlpu í hans hendur þvert á vilja lögreglunnar. Sá var handtekinn og verður líklega einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórn. 27.6.2012 11:37
Oddný komin í hóp olíumálaráðherra og olíuforstjóra Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra er fulltrúi Íslands á ráðherrafundi um olíuleit á Norðurslóðum, sem fram fer í Þrándheimi í Noregi í dag. Olíu- og orkumálaráðherrar ríkja við Norðurskautið eru meðal þátttakenda á fundinum ásamt fulltrúum stærstu olíufyrirtækja heims, eins og ExxonMobil, BP, Statoil, Gazprom, ConocoPhilips og Shell. 27.6.2012 11:02
Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 10% milli ára í maí Í maí s.l. voru gefin út 6.344 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.753 vegabréf í maí í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 10,3 % milli ára. 27.6.2012 10:02
Tófa á tölti um Garðabæ í morgun Ökumaður sem var að aka framhjá golfvelli Oddfellowa í Garðabæ í morgun sá hvar tófa rölti yfir veginn ekki fjarri afleggjaranum inn í Heiðmörk. "Tófan labbaði bara yfir veginn," sagði Úlfar Antonsson líffræðingur en hann var að aka eftir svokölluðum Ofanbyggðavegi á milli golfvallarins og Vífilsstaðavatns um hálfsjöleytið. "Ætli hún hafi ekki verið að koma úr mat í Garðabænum," sagði Úlfar. "Tófurnar eru miklu nær okkur en við höldum. Þær eru alveg ofan í byggðinni." Úlfar segir að tófan hafi ekki virst hrædd. Hann kvaðst hafa verið á Snæfellsnesi fyrir nokkrum dögum og séð þá tófu í Breiðuvík. "Hún hegðaði sér allt öðruvísi og var stressuð. Þessi sem ég sá í morgun var miklu rólegri. Tölti bara í rólegheitum yfir í veginn og hvarf svo inn í kjarrið," sagði Úlfar. 27.6.2012 09:30
Yfir tíu skip komin á makrílveiðar Tíu til 15 skip eru nú byrjuð makrílveiðar hér við land og veiðist hann bæði út af Suðausturlandi, Suðurlandi og Vesturlandi. 27.6.2012 07:23
Þyrla sótti veikan mann á Arnarvatnsheiði Karlmaður veiktist alvarlega þegar hann var staddur í litlu veiðihúsi á Arnarvatnsheiði í gærkvöldi. Þar sem hann þótti sýna einkenni heilablóðfalls var óskað eftir þyrlu Gæslunnar, sem sótti hann og kom með hann til Reykjavíkur á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann var lagður inn á Landsspítalann. 27.6.2012 07:08
Ógnuðu starfsmanni í ráni í söluturni Rán var framið í söluturni við Langholtsveg í Reykjavík upp úr klukkan níu í gærkvöldi. Af skeyti frá lögreglu má ráða að fleiri en einn hafi verið þar að verki og hafi þeir ógnað starfsmanni og komist undan með einhverja fjármuni. 27.6.2012 07:05
Lífshættuleg flog vegna lyfja Ný samheitalyf við flogaveiki hafa að undanförnu orsakað alvarleg flog hjá sjúklingum. Dæmi eru um að einstaklingar sem hafa verið lausir við flog í mörg ár verði alvarlega veikir eftir að hafa verið teknir af lyfinu Keppra og settir á samheitalyf. 27.6.2012 07:00
Fólk hvatt til að láta mæla sig Allir sem eru með öndunarfæraeinkenni eins og hósta eða áreynslumæði eru hvattir til að fara í öndunarmælingu vikuna 24. júní til 1. júlí. Alþjóðlegur dagur öndunarmælinga er í dag. 27.6.2012 06:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Selfossi Töluvert tjón varð á húsnæði og á munum innanstokks, þegar eldur kviknaði í nytjamarkaði Hvítasunnusafnaðarins vi Eyrarveg á Selfossi í gærkvöldi. 27.6.2012 06:33
Stjórnsýslan verður gerð aðgengilegri Stýrihópur um rafræna stjórnsýslu og rafrænt lýðræði kom til fyrsta fundar á mánudag en verkefni hópsins er að vinna úr tillögum nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins varðandi rafræna stjórnsýslu og lýðræði. Hópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu til innanríkisráðherra í október. 27.6.2012 06:30
Lifandi pöddur hjá Yggdrasil Yggdrasill heildverslun hefur innkallað hýðishrísgrjón og döðlur eftir að aðskotahlutir fundust í vörupakkningum frá fyrirtækinu. Um var að ræða lítil lifandi skordýr. 27.6.2012 06:15
Vilja veðbanka á kappreiðarnar "Við erum ekki alveg úrkula vonar um að leyfið fáist endurnýjað, svo menn geti starfrækt veðbanka á kappreiðunum. Það væri gaman ef menn mættu veðja aðeins á þann hest sem þeir telja líklegastan,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssamtaka hestamannafélaga. 27.6.2012 06:00
Hafa vart undan að tína rusl í hrauninu Árvakur lesandi sendi Fréttablaðinu ábendingu um mikið rusl við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. 27.6.2012 05:45
Lögreglumaður káfaði á stúlku Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt fyrrverandi lögregluvarðstjóra í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára dóttur vinahjóna sinna. Honum er jafnframt gert að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur. 27.6.2012 05:15
Þrjú ár ætluð í þriðja bindið Bæjarráð Akraness hefur samþykkt samning við Hjálmar Gunnlaug Haraldsson um áframhaldandi ritun Sögu Akraness. Tvö bindi, sem ná út átjándu öld, eru þegar komin út en áætlað er að ritun þriðja bindis fari fram á árunum 2012 til 2014. Einn bæjarfulltrúinn sagði að vegna fjárhagsstöðu Akraneskaupstaðar teldi hann ekki forsvaranlegt að ganga til samninga um ritun þriðja bindis Sögu Akraness. Verkið hefur verið gagnrýnt vegna mikils kostnaðar sem þegar er kominn yfir eitt hundrað milljónir króna. Þá hafa verið skiptar skoðanir meðal gagnrýnenda um vinnubrögð höfundarins.- gar 27.6.2012 05:00
Húsbíll tókst á loft og endaði í skurði Hjónin Vilhelm Guðbjartsson og Guðrún Ragnarsdóttir lentu í kröppum dansi á dögunum þegar þau óku milli Hofsóss og Siglufjarðar. Húsbíll þeirra tók á sig vindhviðu og valt að minnsta kosti tvær veltur út af veginum áður en hann staðnæmdist í skurði undir vegbrúninni. 27.6.2012 04:45
Söngkonur sækja í sixtís-kjólana Fjöldi litskrúðugra kjóla er nú meðal þess sem hægt er að kaupa á nytjamarkaði Fjölskylduhjálpar Íslands, sem er opinn í höfuðstöðvum samtakanna í Eskihlíð alla virka daga frá tólf til hálffimm. 27.6.2012 04:30
Breyting á stiga skoðuð nánar Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs hefur frestað afgreiðslu erindis um breytingar á áður samþykktum laxastiga við svokallaðan Steinboga í Jökulsá á Dal. Stiginn á að opna laxfiskum tugkílómetra leið á efri hluta Jöklu. Veiðifélagið vill nú lengja stigann um 20 metra og gera breytingar til að minnka notkun steypu. Skipulags- og mannvirkjanefnd hyggst fá umsagnir frá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun, Fiskistofu og umhverfis- og héraðsnefnd auk þess að kynna almenningi framkvæmdina áður en breytingarbeiðnin er afgreidd.- gar 27.6.2012 04:15
Ólafur Ragnar með mest fylgi Þjóðarpúls Capacent Gallup, sem birtur var í gær, mælir Ólaf Ragnar Grímsson með rétt tæplega 45% fylgi, Þóru Arnórsdóttur með 37%, Ara Trausta Guðmundsson með tæplega 11% fylgi, Herdísi Þorgeirsdóttur með 5,3%, Andreu J. Ólafsdóttur með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8% fylgi. 27.6.2012 04:15
Bæta netsamband á nesinu Vinna stendur nú yfir á símamastri í Ólafsvík til að bæta 3G samband á Snæfellsnesinu. Verið er að koma nýjum búnaði fyrir í mastrinu og lækka það, úr 40 metrum í 30. Við það mun minna hvína í mastrinu í vindi. Skessuhorn greinir frá þessu. 27.6.2012 03:15
Sagðist sjálfur hafa stungið sig Lögregla handtók í gærmorgun þrjá menn vegna hnífsstungu í bakhúsi við Njálsgötu. Maðurinn sem var stunginn var í mjög annarlegu ástandi og fullyrti við lögreglumenn að hann hefði veitt sér áverkann sjálfur. 27.6.2012 03:15
Íslendingar fylgja ákvörðunum annarra Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES. 27.6.2012 02:45
Kópavogsbær fær gæðavottun Kópavogsbær hefur fyrst íslenskra sveitarfélaga hlotið alþjóðlega vottun (ISO 9001) fyrir gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Unnið hefur verið að innleiðingu gæðakerfisins síðustu misseri. Markmiðið er að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. 27.6.2012 02:45
Verður kynnt á Ríó-ráðstefnu Sameinaði leikskólinn Drafnarborg og Dvergasteinn fékk fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt í samkeppni sem helguð var degi umhverfisins í Belgíu. 27.6.2012 02:30
Eldi á flúru getur hafist Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir fiskeldisstöð Stolt Sea Farm Holdings Iceland hf. við Reykjanesvirkjun. 27.6.2012 02:15
Vel gekk að slökkva eldinn Eldur kom upp í viðbyggingu við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi um klukkan átta í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang og vel gekk að slökkva eldinn. 26.6.2012 23:26
Fyrsta kartöfluuppskeran hálfum mánuði fyrr en vant er Fyrsta kartöfluuppskeran er komin í hús á Auðsholti í Hrunamannahreppi.Uppskeran fer beint á bændamarkað á Flúðum. 26.6.2012 22:18
Löggan gerir status um hraðamælingar Lögreglan hefur tekið upp á því að láta vita fyrirfram á Facebook hvar hún er við hraðamælingar. 26.6.2012 22:02
Hannes trúir á Guð Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, er kristinn og trúir á Guð. Þó hann sé ekki alltaf sammála því sem prestar segja í prédikunum sínum segir hann barnatrúna hafa hjálpað sér á erfiðum stundum. 26.6.2012 21:38
Varð stjörf þegar hún frétti af stórvinningnum Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir 9. júní og leitað hefur verið síðustu vikurnar varð stjörf þegar hún heyrði af tíðindunum. Hún keypti miðann um leið og hún setti bensín á bílinn sinn og hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið væri yfir miðann hennar í gær. 26.6.2012 21:32
Andrea styður þjóðaratkvæðagreiðslu um samband ríkis og kirkju Andrea Ólafsdóttir fær ekki skilið hvers vegna ekki hefur verið haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um samband ríkis og kirkju. "Samband ríkis og kirkju er ekki órjúfanlegt og það á að vera í höndum þjóðarinnar að ákveða það,“ segir hún. 26.6.2012 21:20
Eldur á Selfossi Eldur kom upp í gámi við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi rétt í þessu. Eldurinn barst frá gámnum og yfir í húsnæði þar við hliðina á. Allur tiltækur mannskapur slökviliðsins á Selfossi var kallaður út. Þegar hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn er uppi grunur um íkveikju. Fréttastofa mun greina nánar af framvindu mála þegar upplýsingar berast. 26.6.2012 20:52
Eldur fyrir ofan Gallerí 17 Eldur kom upp á þriðju hæð við Laugarveg 91 í kvöld. Mikill reykjarmökkur stóð upp af húsnæðinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn. Fljótlega kom þó á daginn að eldsvoðinn var minniháttar og öllu liðinu var snúið við nema einum dælubíl. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins með handslökkvitækjum. 26.6.2012 20:04
Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins. 26.6.2012 19:28
Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. 26.6.2012 19:15
Gott veður og þurrt óvenju lengi Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann. 26.6.2012 17:44
Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. 26.6.2012 14:18
Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn. 26.6.2012 13:52
Bjargaði kind á hvolfi Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar. 26.6.2012 10:38
Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. 26.6.2012 09:55
Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur "Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. 26.6.2012 06:00