Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búist við stýrivaxtahækkun í dag Búist er við því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynni um stýrivaxtahækkun í dag. Verðbólga það sem af er ári hefur reynst meiri en spár bankans sögðu til um þrátt fyrir að bankinn hafi tvisvar hækkað vexti síðasta hálfa árið. 16.5.2012 07:00
Heimaey sigldi í höfn í Vestmannaeyjum í gær Heimaey VE 1, glæsilegt uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins í Vestmanneyjum, kom til heimahafnar í gær. Skipið hefur verið í smíðum í fimm ár, en smíði þess tafðist vegna náttúruhamfara í smíðalandinu Síle. Fjölmenni safnaðist saman í Friðarhöfn í Eyjum til að taka á móti hinu glæsilega skipi og áhöfn þess en það var Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins, sem tók á móti landfestum þegar til hafnar var komið. 16.5.2012 05:30
Fólkið frætt í matjurtagarði Grasagarðurinn í Laugardal býður nú í maí áhugafólki um matjurtarækt að líta við og fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu matjurta. Þar er að mestu búið að stinga upp og jarðvegsbæta garðinn eftir því sem þörf krefur. 16.5.2012 05:00
Ríkiskaup semja um flugferðir Ríkiskaup hafa gert nýjan samning við Flugfélag Íslands um afsláttarkjör á flugsætum innanlands. Allar opinberar stofnanir munu njóta að lágmarki 20 prósenta afsláttar af fullu verði sé greitt með svokölluðu Flugkorti Flugfélags Íslands. Þær stofnanir sem ekki eru með Flugkort þurfa að sækja um slíkt. 16.5.2012 04:15
Útlendingastofnun fái fjármagn Innanríkisráðuneytið leggur til að fjárframlög til Útlendingastofnunar verði aukin svo hægt verði að flýta málsmeðferð hælisleitenda hér á landi. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. 16.5.2012 04:00
Brynjar Níelsson: Heimild til þess að refsa piltunum, annað er þvæla "Ég er ósáttur við að það sé ráðist að dómnum og verjandanum og þeir séu sakaðir um að brjóta reglur, en allt saman er þetta rangt,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn Brynjar Níelsson sem er jafnframt formaður Lögmannafélags Íslands, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag, en þar gagnrýndi hann umræðuna um tvo flóttamenn sem hingað komu til lands og voru dæmdir í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals í Héraðsdómi Reykjaness. 15.5.2012 21:30
Iðnaðarráðherra óskar eftir íbúðaskiptum Hótelkostnaður Íslendinga, sem eru staddir erlendis, hækkaði snarlega eftir hrunið með tilheyrandi gengisfellingu krónunnar. Það gerði það að verkum að útsjónarsamir Íslendingar hafa stundum óskað eftir íbúðaskiptum erlendis í sumarfríinu. Fjölmargar netsíður bjóða upp á slíka kosti og hefur slíkt verið mjög vinsælt á Norðurlöndunum síðasta áratuginn. 15.5.2012 20:30
Segja enga ógn stafa af pilti sem stakk konu tólf sinnum Samkvæmt áhættumati sem barnaverndaryfirvöld gerðu fyrir lögregluna stafar konu sem stungin var tólf sinnum í lok apríl ekki lengur ógn af árásarmanninum. Móðir konunnar segir að engan hefði getað grunað að drengurinn væri árásargjarn en það hafi samt reynst raunin. 15.5.2012 20:00
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir eru næstum jöfn samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR sem kannaði stuðning almennings við forsetaframbjóðendur á tímabilinu 10. til 15. maí. Þannig hefur Þóra misst töluvert forskot sem hún hafði á Ólaf Ragnar samkvæmt fyrri skoðanakönnunum, sem sýndu allt að 10 prósentu mun á milli Þóru og Ólafs Ragnars. 15.5.2012 18:09
Sætta sig ekki vð sérstaka skattlagningu til að greiða niður lánsveð Lífeyrissjóðirnir ætla ekki sætta sig við sérstaka skattlagningu til að hægt sé að greiða niður lánsveð. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að látið verði reyna á lögmæti þeirrar ákvörðunar ef til hennar kemur. 15.5.2012 18:54
Fundu amfetamín og hnífa - meðlimur Outlaws handtekinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á amfetamín og hnífa við húsleit í austurborginni í dag. Hún tók einnig í sína vörslu talsvert af íblöndunarefnum og sterum. 15.5.2012 18:11
Stöðvuðu kannabisrækt í miðborginni Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Kannabisræktun var stöðvuð á tveimur stöðum í miðborginni en þar var einnig lagt hald á lítilræði af marijúana og amfetamíni. 15.5.2012 17:25
Refsiaðgerðir ESB gegn Íslandi ekki lengur fjarlægur möguleiki Evrópuþingið mun í næsta mánuði fjalla um lagareglur sem heimila Evrópusambandinu að beita Ísland viðskiptaþvingunum vegna makríldeilunnar. Talsmaður sjávarútvegsstjóra ESB segir að þótt Evrópuþingið samþykki reglurnar sé ekki sjálfgefið að þeim verði beitt. 15.5.2012 17:00
Bað barnunga systur unnustu sinnar að nota kynlífshjálpartæki Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot gegn barnungri systur unnustu sinnar. 15.5.2012 16:49
Lést í hlíðum Esjunnar Maðurinn sem varð bráðkvaddur í hlíðum Esjunnar á sunnudaginn hét Kjartan Jónsson. Hann var 59 ára gamall og starfaði sem rafmagnsverkfræðingur hjá Símanum. 15.5.2012 16:11
Vigdís tók við nýju Símaskránni Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, tók í dag við fyrsta eintakinu af nýju Símaskránni úr höndum Magnúsi Geirs Þórðarsonar, núverandi leikhússtjóra Borgarleikhússins. 15.5.2012 15:43
Kjartan fer ekki í tónleikaferðalag með Sigur Rós Kjartan Sveinsson, hljómborðs- og gítarleikari Sigur Rósar, fer ekki með hljómsveitinni í tónleikaferðalag um heiminn í sumar. Hann segist þó ekki vera endanlega hættur í Sigur Rós. 15.5.2012 15:03
Annþór og Börkur ákærðir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir og ólögmæta nauðung. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Sjö sátu í gæsluvarðhaldi vegna málsins þegar mest lét og hefur þeim nú öllum verið sleppt. Annþór og Börkur eru grunaðir um að tengjast tveimur alvarlegum líkamsárásum sem gerðar voru fyrir nokkrum mánuðum í Hafnarfirði og Mosfellsbæ, skipulagðri glæpastarfsemi, innbrotum og þjófnaði, auk annars. Í byrjun þessa mánaðar úrskurðaðir Hæstiréttur að Annþór og Börkur skyldu afplána eftirstöðvar dóma sem þeir hlutu fyrir nokkrum árum. Annþór fyrir fíkniefnasmygl og Börkur fyrir tilraun til manndráps. 15.5.2012 12:41
Þorgerður Katrín vildi verða forstjóri Hörpu - átök í stjórninni Fjórir umsækjendur um forstjórastöðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu komu helst til greina, eftir langt og strangt ferli. Það voru auk Halldórs Guðmundssonar, sem tilkynntur var sem forstjóri 3. maí sl., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórólfur Árnason, verkfræðingur og Hrönn Greipsdóttir, fyrrverandi hótelstýra. 15.5.2012 12:01
60 prósent þjóðarinnar notar símaskrána "Það hafa auðvitað orðið miklar tæknibreytingar á síðustu fimm árum en staðreyndin er samt sú að stór hópur notar símaskrána,“ segir Sigríður Margrét Björnsdóttir, forstjóri Já, sem fagnar útgáfu símaskrárinnar í dag. Sigríður var í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag þar sem hún útskýrði fyrir þeim félögum að ekki aðeins lifði skráin góðu lífi, heldur notuðu fleiri bókina árið 2011 en árið 2010. 15.5.2012 21:00
Fullur og fáklæddur undir stýri Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvunarakstur. Maðurinn, sem er á fertugsaldri reyndist vera mjög ölvaður og að auki harla klæðlítill undir stýri. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var hann látinn sofa úr sér þar til tekin var af honum skýrsla. Þá kom akandi á lögreglustöð annar karlmaður, sem taldi sig eiga þangað erindi. Af honum lagði megna áfengislykt og var hann handtekinn, grunaður um ölvun við akstur. 15.5.2012 12:24
Helmingur þeirra sem létust 17 ára og yngri Helmingur þeirra sem létu lífið í umferðinni á síðasta ári voru 17 ára og yngri, fjórir sautján ára ökumenn og tvær fótgangandi stúlkur. Þetta kemur fram í nýrri nýrri slysaskýrslu Umferðarstofu. 15.5.2012 12:22
Hells Angels stofnuðu góðgerðarsamtök til að halda utan um "varnarsjóð“ Hells Angels á Íslandi hafa um nokkurt skeið stefnt að því að opna húðflúrstofu á undir merkjum House of Pain en það er alþjóðleg keðja á vegum Hells Angels. Í skýrslu starfshóps lögreglunnar um starfsemi Hells Angels hér á landi segir að þar hafi líka staðið til að selja ýmsan varning og fatnað til stuðnings samtökunum en lögregla telur að sala slíks varnings sé hugsuð til að byggja upp svokallaðan "varnarsjóð“. 15.5.2012 11:41
Herdís búin að safna undirskriftum "Þetta gekk bara fljúgandi vel,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, sem hefur nú lokið að safna meðmælendum fyrir forsetakosningarnar 30. júní næstkomandi. Söfnunin um allt land gekk mjög vel að sögn Herdísar. Á vefsíðu sinni þakkar hún þeim sem stóðu að söfnuninni sem og þeim sem tilbúnir voru að mæla með framboðinu. 15.5.2012 10:59
Braut gegn 4 ára systurdóttur sinni - situr þrjá mánuði í fangelsi Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðbundna, fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára systurdóttur sinni. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa í tölvu sinni tæplega þrjú þúsund myndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. 15.5.2012 10:12
Vítisenglar safna upplýsingum um lögreglumenn Lögregluyfirvöld, bæði hér á Íslandi og erlendis, hafa orðið þess áskynja að meðlimir vélhjólasamtakanna Vítisengla safni upplýsingum um lögreglu og starfsmenn hennar. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögreglan vann um starfsemi Vítisengla og Vísir hefur undir höndum. 15.5.2012 08:00
Björn Ingi verður aftur ritstjóri Pressunnar Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Pressunnar. Við starfinu tekur Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður og útgefandi Vefpressunnar, og jafnframt aðaleigandi fyrirtækisins ásamt Arnari Ægissyni, framkvæmdastjóra. "Þetta leggst bara vel í mig, ég þekki íslenskan fjölmiðlaheim mjög vel og hlakka til að spreyta mig aftur á ritstjórahlutverkinu,“ segir Björn Ingi í frétt á Pressunni. 15.5.2012 11:27
Útiveitingastaður á flotbryggju Arkitekt Ráðhúss Reykjavíkur hefur spurst fyrir um það hjá byggingarfulltrúa borgarinnar hvort koma megi fyrir flotbryggju í Tjörninni framan við Ráðhússkaffi. 15.5.2012 10:00
Hugmyndum um nýjan skatt á lífeyrissjóði vex fylgi Landssamtök lífeyrissjóða höfnuðu í gær hugmyndum um að færa niður fasteignalán, sem tryggð eru með lánsveðum hjá ábyrgðarmönnum, að 110 prósentum af fasteignamati. Efnahagsráðherra, fjármálaráðherra, innanríkisráðherra og velferðarráðherra lögðu drög að samkomulagi þar um fyrir fulltrúa sjóðanna á fundi í gær. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs sátu fundinn einnig. 15.5.2012 08:30
Hundrað eftirskjálftar við Herðubreið Hátt í hundrað eftirskjálftar hafa orðið eftir skjálftan sem varð laust fyrir klukkan eitt í gærdag, þrjá til fjóra kílómetra suðvestur af Herðubreið og mældist 3,2 stig. 15.5.2012 08:05
Forseti gæti tekið völdin af ríkisstjórn „Vandi núgildandi stjórnarskrár er að í upplausnarástandi gæti forseti hreinlega tekið völdin af ríkisstjórn.“ Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í grein í nýjasta hefti Skírnis. Greinin fjallar um breytta stöðu forseta Íslands og frumvarp Stjórnlagaráðs. 15.5.2012 08:00
Gagnrýndi fyrirhugaðar aðgerðir ESB Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi harkalega hugmyndir sem eru til umræðu innan ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi vegna makríldeilunnar, á fundi EES-ráðsins í gær. Þar voru fulltrúar EFTA-ríkjanna og Danir fyrir hönd ESB. 15.5.2012 07:30
Jón dregur framboð sitt til baka Jón Lárusson lögreglumaður á Selfossi hefur dregið framboð sitt til embættis forseta Íslands til baka. Hann segir í tilkynningu að sér hafi ekki tekist að afla tilskilins fjölda meðmælenda og eigi ekki annarra kosta völ en að draga framboðið til baka. Eftir þetta standa sjö frambjóðendur eftir. 15.5.2012 07:13
Almenningur fái dorgaðstöðu Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt tillögu formannsins Hjálmars Sveinssonar um að láta kanna möguleika þess að koma fyrir dorgaðstöðu fyrir almenning í tengslum við uppsátur fyrir smábáta við Eyjarslóð. 15.5.2012 07:00
Styðja búsetu óháð formi Nýtt kerfi húsnæðisbóta verður kynnt í dag. Það kemur í stað húsaleigu- og vaxtabóta. Um samtímagreiðslur verður að ræða og verða greiðslurnar óháðar því hvort fólk leigir eða á eigið húsnæði. 15.5.2012 06:30
Tómlegt eftir fall risatrés Stóreflis birkitré rifnaði upp með rótum á lóð við Reynimel í hvassviðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á aðfaranótt mánudags. 15.5.2012 06:00
Foreldrar komi að ráðningum Tekið verður upp samráð við foreldra þegar skólastjórar eru ráðnir, nái tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn fram að ganga. Hún var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en afgreiðslu frestað. 15.5.2012 05:30
Almenn niðurfærsla forsenda stuðnings Samþykki ríkisstjórnin að fara í almennar skuldaniðurfellingar og beita sér í öðrum málum sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að nái fram að ganga mun þingflokkur Hreyfingarinnar verja stjórnina vantrausti. 15.5.2012 05:00
Bjarni Benediktsson: Undarlegt samstarf og örvæntingafullt "Já, er það ekki dálítið athyglisvert að við heyrum það frá Hreyfingunni að ríkisstjórnin njóti ekki meirihlutastuðnings á þinginu? Mér finnst það mjög athyglisvert að Jóhanna [Sigurðardóttir] og Steingrímur [J. Sigfússon] telji stöðu sína svo veika, eftir ráðherrakapalinn síðasta vetur, að þau finni sig knúin til þess að funda með Hreyfingunni til þess að verja ríkisstjórnina falli,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Reykjavík síðdegis. 14.5.2012 23:00
Tíu sótt um tíu störf sem auglýst voru á Suðurnesjum Einungis tíu hafa sótt um tíu störf sem voru auglýst á Suðurnesjum í síðustu viku. Atvinnuleysi á svæðinu er það mesta á landinu en eigandi fyrirtækisins sem auglýsti undrast áhugaleysi Suðurnesjamanna. 14.5.2012 21:15
Vildi þyngri dóm yfir dýraníðingi "Ég fagna því að það sé búið að dæma í málinu, að hann hafi fengið fangelsisdóm, þó hann sé skilorðsbundinn,“ segir Sif Traustadóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, sem ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um nýfallin dóm yfir dýraníðingi á Þingeyri. 14.5.2012 21:00
Dorrit um keppinautana: "Gott hjá Þóra“ Það er í mörg horn að líta við upphaf kosningabaráttu. Forsetahjónin hófu sína fundarherferð um landið í Grindavík í morgun og Ólafur Ragnar spjallaði þar meðal annars við yngstu þjóðfélagsþegnana. Þannig heillaði Ólafur Ragnar háa sem lága. Hjónin komu svo við í fiskvinnslunni Stakkavík þar sem alvaran tók við. 14.5.2012 20:15
Óttast að þúsundir farfugla muni drepast í hretinu Fuglafræðingur óttast að þúsundir farfugla muni drepast í vorhretinu sem gengur nú yfir landið. Hretið er það versta á sex ár. 14.5.2012 20:00
Vill Norðlingaölduveitu í nýtingarflokk Landsvirkjun býðst til að hafa rennslisstýringu á Dynk og öðrum fossum í Efri-Þjórsá til að halda ásýnd þeirra og telur mikilvægt að Norðlingaölduveita verði tekin úr verndarflokki rammaáætlunar. 14.5.2012 17:40
Ylurinn smýgur inn í moldina Sumir leggja meiri vinnu í matjurtagarða sína en aðrir. Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari á Salon Reykjavík er einn þeirra. Hann hefur smíðað volduga viðarkassa til að bæta ræktunarskilyrðin. 14.5.2012 22:00