Sætta sig ekki vð sérstaka skattlagningu til að greiða niður lánsveð Höskuldur Kári Schram skrifar 15. maí 2012 18:54
Lífeyrissjóðirnir ætla ekki sætta sig við sérstaka skattlagningu til að hægt sé að greiða niður lánsveð. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að látið verði reyna á lögmæti þeirrar ákvörðunar ef til hennar kemur. Fulltrúar lífeyrissjóðanna funduðu með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í gær vegna vanda þeirra rúmlega tvö þúsund einstaklinga sem eru með lánsveð. Lífeyrissjóðirnir hafa til þessa hafnað hugmyndum ríkisstjórnarinnar um lækkun skulda og segjast ekki hafa heimildir til að gefa eftir eigur sjóðsfélaga. Þetta ítrekuðu fulltrúar þeirra á fundinum í gær en buðu stjórnvöldum þess í stað að kaupa kröfurnar. „Við gætum tekið ríkisskuldabréf eða aðrar eigur í staðinn til langs tíma, en hins vegar hefur alltaf legið fyrir frá upphafi að lífeyrissjóðirnir hafa ekki heimildir til þess að gefa eftir eigur lífeyrisþeganna, það myndi alltaf leiða til skerðingar á lífeyrisgreiðslum," sagði Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að þessari hugmyndir verði skoðaðar en kostnaður gæti hlaupið á milljörðum. „Já, við ætlum ekki að hafna því fyrr en við erum búin að láta á reyna skilmálana í kringum það og hvernig það getur komið út fyrir aðila einfaldlega vegna þess að þetta snýst um að leysa vandamál þessara fjölskyldna og við látum þær njóta vafans jafnvel þó að þetta sé aðferð sem gæti orðið kostnaðarsamari fyrir ríkið og jafnvel erfiðari og flóknari í framkvæmd." Fréttablaðið greinir frá því í dag að innan ríkisstjórnarflokkanna vilji menn kanna þá hugmynd að skattleggja sjóðina sérstaklega til að kostnaðurinn lendi ekki á ríkinu. „Við erum mjög mótfallinn skattlagningu og það verður látið reyn á það hvort hún sé lögmæt, hvernig útfærsla það er, en það er alveg ljóst að skattlagning verður aldrei með afturvirkum hætti," segir Þórey. Steingrímur vildi ekki tjá sig sérstaklega um þessar hugmyndir „Ég ætla ekki út í þá umræðu og vil ekki blanda henni inn í þetta," sagði hann að lokum.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira