Braut gegn 4 ára systurdóttur sinni - situr þrjá mánuði í fangelsi 15. maí 2012 10:12
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðbundna, fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára systurdóttur sinni. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa í tölvu sinni tæplega þrjú þúsund myndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Dómurinn féll í gær en maðurinn braut gegn stúlkunni í nóvember árið 2010 þegar hann passaði hana. Maðurinn játaði að hafa myndirnar á tölvunni sinni en neitaði að hafa áreitt stúlkuna. Fyrir dóminn var lögð sálfræðiskýrsla þar sem lagt var mat á þroska, hvatir, almennt heilbrigðisástand og hugarfar mannsins, þar með talið hættumat. Þar segir að maðurinn sé misþroska, félagslega einangraður og óöruggur í samskiptum við annað fólk. „Um kynferðislegar hvatir segir að ljóst sé að ákærði (maðurinn, innsk.blm.) hafi kynferðislegan áhuga á stúlkubörnum og hafi haft í mörg ár. Þá hafi hann kynferðislegar þráhyggjuhugsanir varðandi barnaklám. Honum sé þó ljóst að kynlíf milli barna og fullorðinna sé ólöglegt og hann átti sig á því að hann megi ekki eiga kynferðislegt samband við börn eins og það er orðað í skýrslunni." Um hugarfar gagnvart sakamálinu segir að maðurinn hafi ekki reynt að fegra sig sérstaklega eða blekkja og hafi hann almennt virst heiðarlegur í samtölum. „Hins vegar sé ljóst að hann hafi sýnt mikil streitueinkenni eftir að málið kom upp. Hann hafi reynt sjálfsvíg og leitað sér aðstoðar. Ákærði hafi greint frá því að hann sjái eftir því sem hann gerði og átti sig á afleiðingum þess og ekkert komi fram sem bendi til að svo sé ekki." Við ákvörðun refsingar segir í dómnum: „Ákærði, hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot svo kunnugt sé. Það er ákærða til refsiþyngingar að brot hans í fyrri tölulið ákæru er trúnaðarbrot sem beindist að ungri telpu á heimili hennar þar sem hún átti sér griðastað. Með því brást ákærði trúnaðarskyldum sínum gagnvart brotaþola. Þó svo ráða megi af gögnum málsins og framburði vitna að telpan hafi ekki beðið tjón af háttsemi ákærða er til þess að líta sem fram kom í framburði sálfræðings Barnahúss að það sé algengt í tilvikum sem þessum að börn upplifi atvik sem þessi á annan hátt þegar þau eldast og þurfi þá á meðferðarviðtölum að halda. Þá er einnig til þess að líta að háttsemi ákærða hefur haft slæm áhrif á samskipti brotaþola við hluta af nærfjölskyldunni. "
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira