Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðmundur Steingrímsson: Þetta er okkar hjartans mál "Ég varpaði þessum hugmyndum fram í lok síðasta árs, um að þeir peningar sem væru bundnir í bönkunum væru að hluta til notaðir til fjárfestinga í skapandi greinum, nýsköpun og rannsóknum sem ættu að auka á hagvöxt,“ segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, en hann ásamt Heiðu Kristínu Helgadóttur, komu að aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í Iðnó fyrr í dag. 18.5.2012 17:56
Vefsíða opnuð til höfuðs forseta Íslands Ónafngreindir aðilar hafa opnað vefsíðu sem leynt og ljóst er beint gegn Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. Á vefsíðunni er ekkert birt annað en kafli úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem fjallar um þátt forsetans í aðdraganda að bankahruninu. 18.5.2012 17:03
Mál Gunnars komið til Ríkissaksóknara Ríkissaksóknari kannar nú hvort grundvöllur er fyrir því að gefa út ákæru á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. 18.5.2012 16:44
Áætlun um afnám hafta skilar ekki árangri Áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta skilar ekki árangri og skaðinn af höftunum fer vaxandi dag frá degi. Þetta sagði Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Illugi var málshefjandi í umræðum um afnám gjaldeyrishafta á Alþingi í dag. 18.5.2012 16:26
Listahátíð sett í dag Listahátíð verður sett í Hörpu í dag með því að Retro Stefsson leikur tónlist og dansarar dansa nýtt verk með þeim. Skrúðganga var farin frá Hörpu til Ráðhússins í dag, þar sem almenningi var boðið að taka þátt. Á morgun verða myndlistaopnanir og á sunnudag mun svo rússneski píanósnillingurinnn Arcaldi Volodos leika á einleikstónleikum. 18.5.2012 15:47
Björk í Konunglegu sænsku tónlistarakademíuna Tónlistarkonan og listamaðurinn Björk Guðmundsdóttir hefur verið valin í stjórn Konunglegu sænsku tónlistarakademíunnar. 18.5.2012 15:02
Talað í 30 klukkustundir um stjórnarskrá Síðari umræða um tillögu meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu í stjórnarskrármálinu stendur nú yfir á alþingi. Þingmenn hafa talaði í tæplega þrjátíu klukkustundir um málið en fimmtán eru á mælendaskrá. Upphaflega var lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram samhliða forsetakosningunum í sumar en ekki náðist að klára umræður á tilsettum tíma. Meirihluti stjórnskipunar og eftirlitsnefndar lagði því fram breytingartillögu sem gerir ráð fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram eigi síðar en 20. október næstkomandi. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt tillöguna sem og nokkrir þingmenn Framsóknarflokks. 18.5.2012 14:55
Þóra búin að eiga Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi er búin að eiga. Stúlka kom í heiminn klukkan sex mínútur í sjö í morgun og var 18 merkur og 55 sentimetrar. Móður og barni heilsast vel, samkvæmt upplýsingum frá Svavari Halldórssyni, föður barnsins. 18.5.2012 14:00
Starfsfólk RÚV mun sjá um kosningaumfjöllunina Ekki kemur til greina að fá utanaðkomandi aðila til að stýra kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins líkt og einn forsetaframbjóðendanna hefur farið fram á. Útvarpsstjóri segist hafa fullan skilning á áhyggjum forsetaframbjóðenda en ekki sé hægt að breyta sögunni. 18.5.2012 13:24
Horfið frá stefnu sjálfstæðis- og framsóknarmanna í atvinnumálum Jóhanna Sigurðardóttir boðaði nýjar áherslur í atvinnumálum á fundi sem hófst í Iðnó nú klukkan eitt. Hún sagði að um væri að ræða fráhvarf frá þeirri einhæfu atvinnustefnu sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hefðu stuðlað að og fólu aðallega í sér stóriðju. 18.5.2012 13:19
Bók Helga um Fischer nýtur vinsælda „Ég er nokkuð ánægður með þetta,“ segir Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák. Bók hans Bobby Fischer Comes Home situr í efsta sæti á vinsældarlista hins öfluga forlags New in Chess, sem gefur bókina út. Hún fjallar um heimsmeistarann sáluga Bobby Fischer, og þar er megináhersla lögð á síðustu ár hans á Íslandi. 18.5.2012 13:00
Golfarar fóru að hlæja eftir að þeir meiddu litla stúlku Tveir karlmenn, líklega um tvítugt, ógnuðu lífi og limum nokkurra barna í gær, með því að skjóta vísvitandi golfkúlum í átt að þeim, sem endaði með því að sex ára stúlka slasaðist og þeir stungu af. 18.5.2012 12:15
Jóhanna kynnir fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar að kynna fjárfestingaráætlun fyrir Ísland 2013 - 2015: Nýjar áherslur í atvinnumálum klukkan eitt í dag. Áætlunin var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Markmið áætlunarinnar er að styðja við frekari hagvöxt og aukna fjölbreytni atvinnulífs um allt land á komandi árum m.a. með eflingu rannsókna og tækniþróunar, sóknaráætlana landshluta, ferðaþjónustu, skapandi greina og græna hagkerfisins auk stóraukinna framkvæmda á vegum hins opinbera m.a. á sviði samgöngumála 18.5.2012 11:29
Tveir þriðju umsækjenda fá ekki sumarstarf hjá borginni Reykjavíkurborg hefur synjað nálægt tveimur þriðju umsækjenda um sumar- og afleysingastörf síðan sumarið 2009. Fjöldi umsækjenda nær tvöfaldaðist eftir efnahagshrunið, en fjöldi starfa hefur ekki breyst mikið, að undanskildu sumrinu í fyrra þegar tæplega tvö þúsund störf voru í boði. Í ár eru þau tæplega 1.400 og umsækjendur rúm fjögur þúsund. 18.5.2012 10:00
Karlmaður lést á Litla - Hrauni Karlmaður á fimmtugsaldri sem vistaður var í fangelsinu að Litla - Hrauni lést í klefa sínum um átta leytið í gærkvöld. Maðurinn átti erfitt með að anda þegar hann óskaði eftir aðstoð fangavarða. Kallað var eftir sjúkrabíl og lækni og lífgunartilraunir voru hafnar en án árangurs og var maðurinn því úrskurðaður látinn stuttu seinna. 18.5.2012 09:24
Hundur beit mann í bílskúr Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að hundur hefði bitið mann. Maðurinn var í bílskúr sínum þegar stór hundur kom þar inn. Maðurinn reyndi að klappa saman höndunum til að hrekja hann út en hundurinn brást við með því að bíta hann í höndina og hafði sig síðan á brott. Maðurinn leitaði til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vegna bitsins. Lögreglu berast svo til í hverri viku tilkynningar um lausa hunda, en lausaganga þeirra er bönnuð, svo sem kunnugt er. Lögregla beinir þeim tilmælum til hundeigenda að fara að lögum við dýrahald sitt. 18.5.2012 13:52
Ætla að framkvæma fyrir 88 milljarða Ríkisstjórnin hyggst ráðast í framkvæmdir fyrir 88 milljarða króna samkvæmt nýrri fjárfestingaáætlun sem kynnt var í dag. Þar af er gert ráð fyrir að 39 milljarðar verði fjármagnaðir úr sjálfri fjárfestingaáætluninni, annars vegar með sérstöku veiðigjaldi og leigu aflahlutdeilda. Segir í tilkynningu frá ríkisstjórninni að gera megi ráð fyrir því að aukin veiðigjöld skili milli 40-50 milljörðum króna næstu þrjú ár. 18.5.2012 13:41
Ísland í ljósaskiptunum - verðlaunamyndband Verðlaunamyndband sem sýnir Ísland í sínu fegursta ljósi hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Það var Bandaríkjamaðurinn og ferðalangurinn Joe Capra sem tók myndirnar og vann í kjölfarið til verðlauna. 18.5.2012 12:56
Meirihlutasamstarf í Árborg í uppnámi Meirihluti sjálfstæðismanna í Árborg er í uppnámi en einn bæjarfulltrúa þeirra íhugar að ganga til liðs við minnihlutann. Sjálfstæðismenn eru með fimm bæjarfulltrúa af átta og hreinan meirihluta í Árborg. Einn af bæjarfulltrúunum þeirra, Elfa Dögg Þórðardóttir, íhugar hins vegar alvarlega samkvæmt heilmildum fréttastofu að segja skilið við meirihlutann. Hún er að sögn óánægð með nýlega ákvöðunn um að Árborg segi sig úr Skólaskrifstofu Suðurlands, sem er samtstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurlandi um ýmsa sérþjónustu og ráðgjöf í leik- og grunnskólum. 18.5.2012 12:03
Vill að þjóðin kjósi um aðildarviðræður að ESB Þjóðin þarf að fá að taka afstöðu um aðild að evrópusambandinu fyrir næstu þingkosningar, jafnvel þótt aðildarsamningur liggi þá ekki fyrir. Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hún sagði að staða Evrópu væri mjög flókin og vandasöm og vandséð að það sé skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið núna. Það var Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem spurði Svandísi út í afstöðu hennar í málinu. Eftir að Svandís hafði svarað sagði Illugi að yfirlýsingar hennar fælu í sér stórpólitísk tíðindi. 18.5.2012 11:00
Uppsögn þung fyrir reksturinn Uppsögn Ásmundar Friðrikssonar sem bæjarstjóra í Garði kostar bæjarfélagið tugi milljóna. Kostnaður vegna uppsagnarinnar nemur stórum hluta af tekjum sveitarfélagsins. 18.5.2012 11:00
Um 130 kannabisplöntur fundust í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 130 kannabisplöntur við húsleit í Garðabæ í fyrrakvöld. Á sama stað var einnig lagt hald hald á nokkur hundruð grömm af kannabisefnum. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu og viðurkenndi jafnframt sölu fíkniefna. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 18.5.2012 09:32
Skaut golfkúlu í sjö ára stúlku - sjö spor saumuð Lögregla rannsakar nú atvik sem átti sér stað við Elliðavatn, þegar golfkúlu var skotið í andlit sjö ára stúlku með þeim afleiðingum að sauma þurfti sjö spor í vör hennar. 18.5.2012 08:16
Sömu skólarnir ítrekað í efstu sætunum Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda við skólann skiptast eftir því úr hvaða framhaldsskóla nemendurnir koma. Munurinn á skólunum er ekki afgerandi en sumir skólar raðast oftar ofarlega en aðrir. 18.5.2012 08:00
Skaut flugeldum á bíl og kýldi síðan farþegann Logandi flugeldum var kastað út úr bíl á ferð á annan bíl, sem líka var á ferð eftir Reykjanesbraut á tólfta tímanum í gærkvöldi. Ökumaður bílsins, sem varð fyrir flugeldaárásinni reyndi í ofboði að komast undan með því að beygja út á vegslóða og forða sér, en slóðinn endaði þannig að hann komst í sjálfheldu. 18.5.2012 07:09
Dregur úr losun gróðurhúsaloftegunda Útstreymi gróðurhúsalofttegunda dróst saman um þrjú prósent á Íslandi milli áranna 2009 og 2010. Þetta kemur fram í frétt Umhverfisstofnunar. Losun gróðurhúsaloftegunda nam 4,5 milljónum tonna árið 2010 en mest var hún fimm milljónir tonn árið 2008. Minni eldsneytisnotkun við fiskveiðar, í vegasamgöngum og byggingarstarfsemi er talin helsta ástæða þess að dregið hefur úr losun gróðurhúsaloftegunda hér á landi. 18.5.2012 16:00
Strandstígar ekki á dagskrá Ekki er gert ráð fyrir stígum meðfram ströndinni á Arnarnesi í þeirri tillögu að deiliskipulagi sem nú liggur fyrir hjá bæjaryfirvöldum í Garðabæ. Í Fréttablaðinu sagði frá því að samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæinn eiga landeigendur ströndina en ekki bærinn. 18.5.2012 11:00
Tóku dópsala í Breiðholti Lögreglan handtók í gærkvöldi karlmann í Breiðholti, grunaðann um fíkniefnasölu. Við leit á honum fundust fíkniefni í smásöluumbúðum og er maðurinn vistaður í fangageymslum þar til hann hann verður yfirheyrður nánar í dag. 18.5.2012 08:08
Fimm teknir úr umferð í gær ölvaðir eða dópaðir Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu á aðeins þremur klukkustundum í gærkvöldi og fram yfir miðnætti, vegna ölvunaraksturs eða aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þrír voru ölvaðir og tveir dópaðir. 18.5.2012 08:04
Slökkviliðið hefur lokið störfum Slökkviliðið hefur lokið við að gera sýru hlutlausa sem lak niður í efnaverksmiðjunni Mjöll-Frigg í Hafnarfirði. Eiturefnabíll slökkviliðsins var kallaður á staðinn og að sögn varðstjóra reyndist auðvelt að eiga við lekann, sem reyndist ekki mikill. 18.5.2012 08:02
Bensínið lækkar Atlantsolía lækkaði bensínverð um tvær krónur í morgun og dísillítrann um þrjár krónur. Bensínlítrinn kostar nú liðlega 255 krónur og dísillítrinn tæpar 254 krónur. 18.5.2012 07:44
Sýruleki hjá Mjöll-Frigg Sýra virðist hafa lekið út í sápuverksmiðjunni Mjöll-Frigg í Hafnarfirði í morgun. Boð bárust til slökkviliðsins um klukkan sex og taldi starfsmaður Securitas sig finna torkennilega lykt í húsinu. Þegar eiturefnasérfræðingar mættu á vettvang kom í ljós að einhverskonar sýra hefur lekið út. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að gera hana hlutlausa með öðrum efnum. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu stendur ekki til að rýma svæðið í kringum verksmiðjuna. 18.5.2012 07:21
Jeppafólk í vandræðum við Þingvelli Björgunarsveit Landsbjargar á Laugarvatni var kölluð út um miðnætti til að aðstoða fólk í föstum jeppa á vegslóða í grennd við Gjábakkaveg, austur af Þingvöllum. Þar var krapi og aurbleyta og ekki ætlast til að menn ækju þar um. Björgunarmenn náðu bílnum upp og fylgldu honum niður á þjóðveg 18.5.2012 07:13
Shell hefur ekkert viðurkennt Olíufyrirtækið Shell ber ábyrgð á stórfelldri olíumengun á óseyrum Nígeríufljóts, sem staðið hefur yfir áratugum saman. 18.5.2012 06:00
Sextán fornbílar í lúxusferð um Ísland Í júníbyrjun getur fólk átt von á því að sjá á þjóðvegum landsins 16 lúxusfornbíla á leiðinni frá Egilsstöðum til Reykjavíkur, með viðkomu á mörgum helstu ferðamannastöðum. Þarna verður á ferð hópur ferðamanna á vegum franska fornbílaklúbbsins Imperial Rallye. 18.5.2012 06:00
Pappírstunna við öll heimili Í byrjun júní verður komin blá sorptunna fyrir pappír við öll heimili í Kópavogi. „Markmiðið er að hvetja til endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar,“ segir í frétt á vef Kópavogsbæjar sem með þessu er sagður verða fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að dreifa slíkum tunnum til allra íbúa. - gar 18.5.2012 05:00
Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs „Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar Árnason, eigandi Hestaleigunnar Lukku í Vestmannaeyjum. Svo bar við að hryssan Gæfa frá Lágafelli kastaði fallegu folaldi í skjóli við álfasteininn í garði Árna Johnsen. Árni flutti steininn til Eyja á þriðjudag en steinninn var settur niður við íbúðarhús hans, Höfðaból. 18.5.2012 04:00
Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi var ákveðið að félagið LeiðtogaAuður yrði framvegis starfrækt sem fagdeild innan FKA. 18.5.2012 03:15
Hér má sjá hvernig heiðagæs vegnar við Kárahnjúka Viðamiklar rannsóknir á áhrifum stórframkvæmdanna á Austurlandi á síðasta áratug þykja einstakar í heiminum en hartnær fimmtíu þættir eru til skoðunar. Þegar framkvæmdirnar hófust við Kárahnjúka og á Reyðarfirði settu Landsvirkjun og Alcoa í gang svokallað sjálfbærniverkefni til að fylgjast með áhrifunum en fjallað var um stöðu þess á fundi í Reykjavík í vikunni. 17.5.2012 22:30
Utanaðkomandi einstaklingar stýri kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi vill að utanaðkomandi einstaklingar verði fengnir til að stýra kosningaumfjöllum Ríkisútvarpsins til að tryggja það að hún verði hlutlaus. 17.5.2012 19:47
Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar mætir ekki á fundi Af þeim fjörutíu og tveimur fundum sem haldnir hafa verið í efnahags- og viðskiptanefnd á árinu hefur varaformaður nefndarinnar, Þráinn Bertelsson, mætt á fjóra. Hann mætti síðast á fund þann átjánda janúar. 17.5.2012 18:48
Donna var mjög viðkunnaleg og laus við stjörnustæla "Þetta var mjög viðkunnaleg ung kona þegar ég kynntist henni og það voru aldrei neinir stjörnustælar í henni, jafnvel þegar hún var orðin heimsfræg,“ segir Þórir Baldursson tónskáld, sem vann mikið með Donnu Summer og útsetti mörg af hennar frægustu lögum. Donna lést í dag, 63 ára að aldri. 17.5.2012 17:43
Ólafur Ragnar fundaði með forseta Tékklands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Václav Klaus, forseti Tékklands, funduðu í morgun um þróun mála í Evrópu, afleiðingar fjármálakreppunnar fyrir efnahagslíf álfunnar og hvort stöðugleiki kunni að skapist á evrusvæðinu. Fundurinn, sem haldinn var í Pragkastala, var upphaf opinberrar heimsóknar forseta Íslands til Tékklands. Að loknum viðræðum forsetanna var fundur hinnar íslensku sendinefndar og tékkneskra ráðamanna; sátu hann, auk Össurar Skarphéðinssoar utanríkisráðherra, embættismenn utanríkisráðuneytisins og forsetaskrifstofunnar. 17.5.2012 15:59
Fatasöfnunardagur Rauða krossins er í dag Rauði kross Íslands stendur fyrir fatasöfnun um allt land í dag, uppstigningardag. Á höfuðborgarsvæðinu verða fatagámar við allar sundlaugar ÍTR í Reykjavík og við sundstaði í Kópavogi, Hafnarfirði, á Álftanesi, í Garðabæ og Mosfellsbæ. Á landsbyggðinni verður tekið á móti fötum, skóm og vefnaðarvöru á móttökustöðvum Eimskips Flytjanda, en fatasöfnunin er unnin í samstarfi við Eimskip. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að fataverkefnið sé orðið eitt af mikilvægustu fjáröflunarverkefnum Rauða krossins og skilaði 84 milljónum á síðasta ári. 17.5.2012 12:00
Bjarni fundaði með utanríkisráðherra Breta William Hague utanríkisráðherra Bretlands segir það almennt sjónarmið ríkjanna innan Evrópusambandsins að færeyingar og íslendingar séu of stífir þegar kemur að samningaviðræðum um makríldeiluna svokölluðu. Þetta segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sem fundaði með ráðherranum í London í gær. Þeir ræddu einnig evrukrísuna og stöðuna sem komin er upp vegna erfiðleika grikkja. 17.5.2012 11:31