Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir eldsneytisverð íþyngja fjölskyldum landsins Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að hækkandi eldsneytisverð íþyngi fjölskyldum landsins. Hann leggur til að fjármálaráðherra grípi til tímabundinna úrræða. 30.1.2012 20:27
Vilja breyta lögum um líffæragjafir Hópur þingmanna vill breyta lögum um líffæragjafir þannig að landsmenn verði sjálfkrafa líffæragjafar við andlát nema þeir hafi látið vita um annað áður. 30.1.2012 19:05
Allt tiltækt lið á Hringbrautina Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að íbúð í kjallara á fjölbýlishúsi að Hringbraut 109 nú undir kvöld þegar tilkynnt var um reyk. Þegar fyrsti bíll slökkviliðsins kom á staðinn kom í ljós að pottur hafði gleymst á eldavél. Húsið verður reykræst. 30.1.2012 20:20
Fundu 300 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjár kannabisræktanir í sama húsinu í Garðabæ í gær. Um er að ræða iðnaðarhúsnæði sem hefur verið breytt í íbúðir. Samtals var lagt hald á tæplega 300 kannabisplöntur og auk þess 250 grömm af marijúana. Ræktanirnar voru mjög fullkomnar en ein þeirra var með fullvaxnar plöntur tilbúnar til niðurskurðar. Starfseminni var jafnframt mjög haganlega fyrir komið á þessum þremur stöðum í húsinu og greinilegt að töluvert hefur verið í það lagt í íbúðunum. 30.1.2012 19:08
Vilja rannsóknarsetur á sviði utanríkis- og öryggismála Ríkisstjórnin vill að stofnað verði sjálfstætt rannsóknarsetur á Íslandi á sviði utanríkis- og öryggismála. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur skipað nefnd til mótunar þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, eins og kveðið er á um í þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi í haust. Það verður jafnframt hlutverk nefndarinnar að setja rannsóknarsetrið á fót. 30.1.2012 17:44
Móðir hins látna fær að bera vitni Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis að móðir grísks manns sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í maí árið 2010, fái að bera vitni í málinu. Ástæðan er sú að maðurinn lést í desember síðastliðnum. 30.1.2012 16:44
Ríkissaksóknari sendir nauðgunarkæru aftur til lögreglu Ríkissaksóknari hefur ákveðið að senda nauðgunarkæru sem lögð var fram á hendur Agli Einarssyni og unnustu hans aftur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til frekari rannsóknar. Þetta staðfestir Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari hjá embættinu í samtali við Vísi. Hulda segir að það sé mjög eðlilegt og algengt að mál séu send aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. 30.1.2012 15:39
Húsleit hjá meintum kynþáttahatara - tölva gerð upptæk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit á heimili á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við heimasíðu þar sem finna má kynþáttahatur. 30.1.2012 15:36
Lögmaður hermdi á niðurlægjandi hátt eftir fórnarlambi Hæstaréttarlögmanninum Jóni Egilssyni var í dag gert að greiða 100 þúsund krónur í réttarfarssekt þegar hann flutti mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta er í annað skiptið sem hann er sektaður fyrir slíkt brot. 30.1.2012 14:53
Loksins geta íbúar New York gætt sér á íslenskum hrossaþara Nú geta New York búar gætt sér á sölum og hrossaþara frá ströndum Suðurnesja - þökk sé fyrirtækinu Hafnotum í Grindavík, sem selur þetta sælgæti hafsins undir vörumerkinu Seaweed Iceland. 30.1.2012 14:01
Rændi tvær konur í miðbænum sama daginn Nítján ára gamall piltur var í dag dæmdur í tólf mánaða langt fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára fyrir rán, fjársvik, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. 30.1.2012 13:51
Karlmaður játar að hafa drekkt hundi og kastað honum í höfnina Einn maður hefur verið ákærður fyrir að drekkja hundi á Þingeyri samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Í tilkynningunni kemur fram að einstaklingurinn hafi viðurkennt að hafa drepið hundinn. 30.1.2012 13:23
Ákærður fyrir að kveikja í húsi - aftur Karlmaður hefur ákærður fyrir að kveikja í íbúðarhúsi á Leifsgötu i Reykjavík í júlí árið 2010. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í öðru húsi á Tryggvagötu í janúar 2009. Athygli vekur að manninum er gert að sök að hafa borið eld að húsinu tæplega mánuði eftir að Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í júní árið 2010. 30.1.2012 13:19
Lögðu hald á kristal MDMA Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi Árbæ fyrir helgina en um var að ræða rúmlega 60 grömm af amfetamíni, 50 grömm af marijúana, lítilræði af kókaíni og allnokkur grömm af kristal MDMA, en það síðastnefnda er sjaldséð hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 30.1.2012 12:59
Ammoníakskýið verulega hættulegt í fyrstu Deildarstjóri hjá slökkviliðinu segir að ammoníakskýið sem myndaðist í morgun í Skútuvogi hafi verið verulega hættulegt í fyrstu. Gríðarlega mikið magn ammoníaks lak út í andrúmsloftið í Skútuvogi í morgun þegar gat kom á fimm hundruð kílóa ammoníakshylki sem verið var að flytja úr gámi. Rýma þurfti nærliggjandi fyrirtæki á meðan á aðgerðum stóð. 30.1.2012 12:15
Allsherjarverkfall lamar Belgíu Nánast allt athafnalíf liggur nú niðri í Belgíu vegna allsherjarverkfalls sem hófst þar í gærkvöldi. Aðgerðirnar hafa áhrif á fund leiðtoga Evrópusambandins sem haldinn verður í höfuðborginni síðdegis. 30.1.2012 12:07
Vopnað rán í Árbæ: Kynntist tálkvendinu á Netinu Létt daður á Netinu þróaðist upp í vopnað rán í Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Tilkynnt var um málið á ellefta tímanum í gærkvöldi og var aðdragandi málsins sá að húsráðandi hafði átt í sambandi við konu á Netinu um skeið, sem leiddi til þess að hún þáði heimboð til hans. 30.1.2012 11:45
Slökkviliðsstjóri ryður bíl af götunni - en ekki er allt sem sýnist "Síminn þagnar ekki," segir Svanur Tómasson, slökkviliðstjóri á Ólafsvík, en myndband birtist á netinu um helgina sem sýnir Svan í heldur sérkennilegum aðstæðum þegar Svanur er að ryðja snjó af götum bæjarins. 30.1.2012 11:44
Vilja rannsaka sölu þriggja banka Hópur þingmanna úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, mun í vikunni leggja fram á Alþingi tillögu um rannsókn á einkavæðingu bankanna frá árinu 1998 til 2003. 30.1.2012 11:00
Ólafur á Suðurskautið með Cameron, Gore og Branson Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er á leið til Suðurskautslandsins í fríðu föruneyti. Forsetinn þáði boð frá Al Gore, Nóbelsverðlaunahafa og fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og með í för eru menn á borð við kvikmyndaleikstjórann James Cameron og milljarðamæringana Richard Branson og Ted Turner. 30.1.2012 10:50
Aðgerðum vegna ammoníaksleka lokið Aðgerðum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu vegna ammoníaklekans í Skútuvogi, er lokið. Þá er búið að opna fyrir umferð inn í hverfið en, þar var lokað á meðan slökkviliðið athafnaði sig í morgun. 30.1.2012 10:40
300 starfsmönnum Vodafone gert að yfirgefa vinnustaðinn Um þrjú hundruð starfsmönnum Vodafone var gert að yfirgefa vinnustaðinn í morgun vegna ammoníaklekans. 30.1.2012 10:09
Búnir að finna uppruna ammoníaklekans Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur fundið uppruna ammoníaklekans í Skútuvogi. Í ljós kom að gámur innihélt sex frystitanka en þar af lak einn. 30.1.2012 09:40
Skútuvogi lokað vegna ammóníaksleka Lögregla og slökkvilið hafa ákveðið að loka Skútuvogi vegna ammoníaklekans sem upp kom í morgun. Í tilkynningu frá Neyðarlínunni segir að ef fólk á svæðinu finni fyrir óþægindum eigi það að koma sér í burtu af svæðinu. 30.1.2012 09:10
Megn ammoníakslykt í Skútuvogi Starfsmenn Vodafone eru að rýma húsnæði sitt í Skútuvogi vegna þess að megn ammoníakslykt finnst í götunni. 30.1.2012 09:00
Verðhækkun í Víkingalottó Búið er að hækka verð á einni röð í Víkingalottói úr 50 krónum og í 70 krónur en verð á röðinni hefur haldist óbreytt í rúm 7 ár, eða síðan í ágúst 2004. 30.1.2012 08:30
Hálka á vegum víðast hvar á landinu Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum, Mosfellsheiði og á Lyngdalsheiði. Hálkublettir eru víða í uppsveitum á Suðurlandi. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á Suðurstrandavegi. 30.1.2012 08:04
Stálu töluverðu af fartölvum Brotist var inn í lager við raftækjaverslun í Garðabæ í nótt og þaðan stolið mörgum nýjum fartölvum, sem eru í umbúðunum. 30.1.2012 07:26
Engin niðurstaða í Kópavogi Fjögurra klukkustunda fundi bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Sjálfsæðisflokks í Kópavogi lauk í gærkvöldi án þess að marka upphaf formlegra meirihlutaviðræðna. 30.1.2012 07:19
Vopnað rán í Árbæjarhverfi Karl og kona frömdu rán á heimili í Árbæjarhverfi í gærkvöldi og er þeirra leitað. 30.1.2012 07:05
Tuttugu norsk loðnuskip á miðunum Tuttugu norsk loðnuskip eru nú komin á miðin austur af landinu og nokkur eru á heimleið með fullfermi. 30.1.2012 07:02
Fjöldi lýtalækna til skoðunar hjá skatti Skattrannsóknarstjóri ríkisins aflar nú gagna um lýtalækna á landinu eftir að ábendingar bárust frá velferðarráðuneytinu um að læknarnir höfðu framið skattsvik. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri vonast til þess að ákvörðun um rannsókn á málinu verði tekin í næstu viku. 30.1.2012 07:00
Safnað fyrir sýningarbúnaði Í tilefni af sjötíu ára afmæli Akraneskaupstaðar setur bærinn átta milljónir króna í sjóð vegna endurnýjunar sýningarbúnaðar Bíóhallarinnar. Heildarkostnaður er áætlaður 17 til 19 milljónir. Bærinn verður bakhjarl og hefur umsjón með sjóðnum. Efna á til söfnunarátaks, meðal annars með styrktartónleikum. Með endurnýjun sýningarbúnaðarins eiga til dæmis að opnast möguleikar til beinna útsendinga frá menningar- og íþróttaviðburðum. - gar 30.1.2012 07:00
Vegagerðarmenn og verktakar stóðu í ströngu í nótt Vegagerðarmenn og verktakar unnu fram á nótt við að laga þjóðveginn á milli Núpsvatna og Gígjukvíslar á Skeiðarársandi. Leysingavatn hafði skolað efni úr vegkantinum þannig að farið var að brotna úr malbikinu og vegurinn að mjókka. 30.1.2012 06:44
Vilja ná sátt um nýtingu Öskjuhlíðar Halda á hugmyndasamkeppni um framtíð útivistar- og skógræktarsvæðisins í Öskjuhlíð. Í greinargerð sem lögð var fyrir skipulagsráð Reykjavíkur kemur fram að markmiðið sé að skapa sátt um framtíð og nýtingu svæðisins. 30.1.2012 06:00
Samningur við 5 sveitarfélög Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) hefur gert starfssamning við fimm sveitarfélög til að auka þekkingu og gæði á leikskólastarfi. Sveitarfélögin eru Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes. Samningurinn er til þriggja ára og verður fyrsta rannsóknin um tengsl leiks við námssvið aðalnámskrár leikskóla frá árinu 2011. Starfendarannsókn og þróunarvinna verður unnin í fimm leikskólum, einum í hverju sveitarfélagi, árin 2012 til 2014.- sv 30.1.2012 06:00
Íslensk steypa umhverfisvæn Steinsteypa sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Readymix Abu Dhabi hafa þróað, undir stjórn Ólafs Haraldssonar Wallewik, var nýverið valin umhverfisvænasta steinsteypa heims. Steypan var verðlaunuð á Heimsþingi hreinnar orku sem fór fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hverju kílói af steypunni sem er framleitt fylgja einungis 50 grömm af koltvísýringi. Það er fjórðungur þess sem fylgir framleiðslu á hefðbundinni steypu af sama styrkleika. Árlega losar framleiðsla á steinsteypu um 3 milljarða tonna af koltvísýringi á heimsvísu. 30.1.2012 05:00
Dregið hefur úr vindstyrk í Reykjavík „Mælingar á vindhraða í borginni seinustu áratugi sýna að vindstyrkur hefur farið lækkandi og má ætla að gróður og ný byggð spili stóran þátt í þeirri þróun,“ segir í umsögn skipulagssviðs vegna ábendinga frá borgarbúum á vefnum Betri Reykjavík um að auka skjólmyndun með markvissari notkun trjágróðurs. 30.1.2012 04:00
Aldraðir reisa blokk í Kópavogi Tímamót urðu hjá Samtökum aldraðra fyrir helgi þegar tekin var skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi á Kópavogstúni. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem samtökin byggja utan Reykjavíkur. Leitað var til bæjaryfirvalda í Kópavogi þar sem ekki náðist samkomulag um lóð sem aldraðir höfðu hug á við Skógarveg í Reykjavík. Nýja húsið á að afhendast í nóvember 2013. Það þykir frábærlega staðsett á svokölluðum Landspítalareit, rétt við hlið Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og í göngufæri við Sundlaug Kópavogs. - gar 30.1.2012 03:15
Jákvæð teikn á lofti í atvinnumálum þrátt fyrir minni atvinnuþátttöku Þrátt fyrir minnkandi atvinnuþáttöku eru jákvæð teikn á lofti en alls hafa fjögur fyrirtæki nýtt sér lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga til að örva atvinnulífið hér á landi og þá eru tíu sambærilegar umsóknir í vinnslu. 29.1.2012 21:20
Atvinnuþátttaka aldrei mælst lægri á Íslandi Atvinnuþátttaka mældist 78,4 prósent á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og er það lægsta hlutfall sem mælst hefur frá upphafi mælinga á Íslandi. 29.1.2012 21:13
Tilkynnt var um reyk á Rauðarárstíg Tilkynnt var um reyk frá íbúð á Rauðarárstíg síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var dælubíll sendur á staðinn og reykkafarar sendir inn. Þegar þangað var komið reyndist pottur vera á eldavél en íbúðin var mannlaus. 29.1.2012 19:02
Ætlar að bjóða sig fram til biskups Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli, ætlar að bjóða sig fram til biskups. Hún segir að margir hafi hvatt sig til þess að gefa kost á sér sem biskupsefni og hún sé til búin í það verkefni. 29.1.2012 18:13
Skemmdir á veginum um Skeiðarársand - unnið að viðgerð Lögreglan á Hvolsvelli vill beina því til ökumanna sem eiga leið um Skeiðarársand að keyra varlega, því skemmdir eru á veginum vegna vatnavaxta í Gígjukvísl í gær. Vegagerðin vinnur að viðgerð á þjóðveginum. Talið er að það hafi hlaupið úr Grímsvötnum í gær en Gígjukvísl var dökk að lit síðdegis í gær og vegfarendur sem áttu leið hjá fundu brennisteinslykt við brúna 29.1.2012 16:43
Snjóflóðahættu aflétt Veðurstofa Íslands hefur aflétt óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði féllu engin snjóflóð í nótt en snjórinn hverfur nú smá saman úr fjöllunum eftir hlýjuna um helgina. 29.1.2012 15:34