Innlent

Engin niðurstaða í Kópavogi

Fjögurra klukkustunda fundi bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Sjálfsæðisflokks í Kópavogi lauk í gærkvöldi án þess að marka upphaf formlegra meirihlutaviðræðna.

Helstu áherslur flokkanna voru viðraðar á fundinum og í dag verða málin væntanlega rædd í flokkunum þremur og viðræðum síðan haldið áfram, í kvöld eða á morgun, því ekki var girt fyrir frekari viðræður á fundinum í gærkvöldi.

Nú er hálfur mánuður síðan meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs sprakk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×