Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefna Ragnari fyrir að kalla sig „féfletta“ Viðskiptafélagarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson hafa stefnt viðskiptafræðingnum Ragnari Önundarsyni fyrir meiðyrði. Tvímenningarnir, sem eru meðal stærstu eigenda Haga, krefjast hvor um sig átta hundruð þúsund króna í miskabætur, auk greiðslu fyrir opinbera birtingu dómsins. 21.12.2011 09:45
Þriggja mánaða skilorð fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær árásir á þáverandi sambýliskonu sína og hótanir í garð hennar. Fyrri árásin var gerð í ágúst eða september í fyrra en þá sló maðurinn hana í fataherbergi á heimili þeirra. Síðari árásin var gerð í nóvember í fyrra. Þá kýldi maðurinn konuna og sparkaði í maga hennar nokkrum sinnum fyrir framan son hennar sem var staddur á heimili þeirra. Maðurinn hætti ekki árásinni fyrr en konan var byrjuð að öskra og gráta. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en krafðist vægustu refsingar. 21.12.2011 09:43
Börðu tvo menn með bareflum Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir. 21.12.2011 09:15
Búið að kyrrsetja jarðir æðstu toppanna Dómurinn frá því í gær staðfestir einnig kyrrsetningu sýslumannsins í Reykjavík á fimmtungseignarhlut Magnúsar í félaginu Hvítsstöðum. Það var slitastjórn Kaupþings sem fór fram á kyrrsetninguna svo að eitthvað fengist upp í 717 milljóna króna skuldina sem hann hefur nú verið dæmdur til að greiða. 21.12.2011 09:00
Fjölga þarf leiguíbúðum á landinu um 16 þúsund Gríðarleg eftirspurn er eftir leiguhúsnæði. Um 70% fleiri Íslendingar vilja leigja íbúð en gera það í dag. Langflestir væntanlegir leigjendur vilja búa í Reykjavík. Um fimm þúsund íbúðir vantar í miðbæinn. 21.12.2011 08:30
Bannar alfarið veiðar á lúðu Lúðustofninn við Ísland minnkar ár frá ári. Beinar veiðar á lúðum hafa verið bannaðar frá því síðasta vor en leyft að hirða hana sem meðafla. 21.12.2011 08:00
Stökkbreytt veira vekur ugg hérlendis Hollenskir vísindamenn hafa þróað stökkbreytt afbrigði fuglaflensunnar H5N1 sem smitast milli manna með lofti. Bandarísk yfirvöld óttast faraldur og meta hvort birta eigi rannsóknirnar. Mér líst ekkert á blikuna, segir sóttvarnalæknir. 21.12.2011 08:00
Upplýsinganefnd fær lögfræðing til starfa „Það er eitt af okkar forgangsmálum að vinna á þessum hala,“ segir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, um tafir á afgreiðslu kærumála hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. 21.12.2011 08:00
Engin skýring á ammoníakslykt Engin skýring fannst á því í gærkvöldi, að ammoníakslykt fannst upp úr niðurföllum við fiskvinnsluhús við Fiskislóð á Grandanum upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. 21.12.2011 07:50
Fartölvum stolið í Garðabæ Bortist var inn í raftækja- og tölvuverslun í Garðabæ í Hafnarfirði í nótt og þaðan stolið fjórum til átta fartölvum og ef til vill einhverju fleiru. 21.12.2011 07:49
Útkall vegna jólabaksturs við Kleppsveg Eldvarnakerfi fór í gang í stigagangi í fjölbýlishúsi við Kleppsveg um tvö leitið í nótt, sem dró brátt að lögreglu- og slökkviliðsmenn. 21.12.2011 07:46
Jarðskjálftahrina í Bárðarbungu Jarðskjálfti upp á þrjá komma þrjá á Richter varð austur af Bárðarbungu í norðanverðum Vatnajökli laust fyrir klukkan eitt í nótt. 21.12.2011 07:44
ESB styrkir til Íslands nema tæpum 2 milljörðum Evrópusambandið hefur tilkynnt um styrki til þeirra landa sem eru í umsóknarferli að sambandinu. Hlutur Íslands nemur 12 milljónum evra eða tæpum 2 milljörðum króna í ár. 21.12.2011 07:29
TF-SIF væntanleg til landsins í dag Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er væntanleg til landsins í dag úr tveggja mánaða leiguverkefni á Miðjarðarhafi fyrir Landamærastofnun Evrópusambandsins, Frontex. 21.12.2011 07:27
Algert bann við lúðuveiðum frá áramótum Lúða mun nánast hverfa af borðum Íslendinga eftir áramót, samkvæmt nýrri reglugerð sjávarútvegsráðherra, þar sem sjómönnum er gert skylt að sleppa allri lifandi lúðu, sem kemur sem meðafli í veiðarfæri þeirra. 21.12.2011 07:24
Veita milljónir í forvarnir gegn ofbeldi Ríkið ætlar að verja 25 milljónum króna í vitundarvakningu gegn kynferðislegu ofbeldi á næsta ári. Öll börn í öðrum og tíunda bekk fá fræðslu, sem og kennarar og annað starfsfólk skóla. 21.12.2011 07:00
Eyjamenn greiða 1,3 milljarða Gangi áform stjórnvalda eftir um 27 prósent veiðigjald af framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 1.245 milljónir króna á ári miðað við fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári. 21.12.2011 07:00
Ákæran þingfest 10. janúar Þriðja ákæra sérstaks saksóknara, á hendur Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi 10. janúar, samkvæmt dagskrá dómsins. Tvímenningunum verður þá gert að mæta og taka afstöðu til ákærunnar. 21.12.2011 07:00
Þyrlum sagt ofaukið á kæjanum í Sundahöfn Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Atlantik segir marga vilja lóð eins og þá sem sóst er eftir undir þyrlupall við lægi skemmtiferðaskipa í Sundahöfn. Hann tekur undir með hafnarstjórnnni. Engin eftirspurn sé eftir þyrluþjónustu þar. 21.12.2011 06:00
Hærra verð fyrir Icelandic-starfsemi Framtakssjóður Íslands hefur gengið frá sölunni á starfsemi Icelandic Group í Bandaríkjunum og tengdri starfsemi í Asíu. Kaupandi er kanadíska fisksölufyrirtækið High Liner Foods, sem greiðir 28,4 milljarða króna fyrir starfsemina á núverandi gengi. 21.12.2011 05:00
Fiskveiðiárið fer vel af stað Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans var 287.370 tonn fyrstu þrjá mánuði fiskveiðiársins sem hófst 1. september. Það er heldur meiri afli en á sama tímabili í fyrra þegar 262.448 tonn veiddust. Aflinn var hins vegar svipaður á þessu tímabili árið 2009. 21.12.2011 04:00
Ammoníaksleki á Fiskislóð Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Fiskislóð 34 í kvöld vegna gruns um ammoníaksleka. Leki varð í sama húsnæði fyrir um tveimur vikum síðan en tilvikið er ekki sambærilegt og var minniháttar. Ein stöð frá slökkviliðinu fór á staðinn í kvöld. 20.12.2011 22:18
Borgaraleg handtaka í Reykjavík Um klukkan fimm í dag framkvæmdu nokkrir menn borgaralega handtöku vestan við Hofsvallagötu á gatnamótum Hringbrautar í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu ók maður á annan bíl og virðist sem maðurinn hafi ætlað að keyra í burt af vettvangi. Lögreglan segir að nokkrir menn hafi haldið manninum föngum þar til lögreglan kom á svæðið, en hún ku hafa verið fljót á staðinn þannig að engin átök brutust út. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Engin slys urðu á fólki. 20.12.2011 21:48
Hvít jörð á aðfangadagskvöld Áhugi Íslendinga um veðrið á aðfangadag hefur alltaf verið mikill enda vilja flestir hafa snjókomu fyrir utan gluggann þegar að jólasteikin er borðuð og jólapakkarnir opnaðir. Vísir sló á þráðinn á Veðurstofu Íslands nú í kvöld og spurði einfaldlega hvort að jólin yrðu hvít eða rauð. 20.12.2011 21:00
Davíð Oddsson verður á ÍNN milli jóla og nýárs "Þetta verður sennilega áhugaverðasta sjónvarpsviðtal ársins 2011 og ég tel mig ekkert vera að ofsegja á nokkrun hátt,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Gestur Björns Bjarnasonar í þætti hans á stöðinni þann 28. desember næstkomandi verður Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins. 20.12.2011 21:19
Fjöldi nauðungarsalna fjórfaldast frá árunum fyrir hrun Rúmlega tvö þúsund og tvö hundruð fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík frá bankahruni. Fjöldinn hefur nærri fjórfaldast frá árunum fyrir hrun. 20.12.2011 20:00
Ók á bíl eldri hjóna og stakk af - Um 30 árekstrar í dag Um þrjátíu árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag og þurfti að draga fimmtán bíla burt með kranabíl vegna skemmda, samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is. 20.12.2011 19:47
Mörg ljón enn í vegi Helguvíkurálvers Flóknar og erfiðar samningaviðræður eru framundan til yfirstíga þær hindranir sem enn eru í vegi álvers í Helguvík, ekki aðeins um orkusamninga heldur einnig um línulagnir og fjármögnun nýrra virkjana. Bæði Norðurál og HS Orka lýstu því yfir þegar gerðardómurinn lá fyrir í gær að þau myndu nú ganga til samninga. 20.12.2011 19:27
Ríkisstjórnin gegn vilja utanríkismálanefndar Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ósáttir við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fela utanríkisráðherra, forræði í Icesave málinu. Ákvörðun ríkistjórnarinnar kemur þvert á ályktun meirihluta utanríkismálanefndar um að málið yrði áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra. 20.12.2011 19:15
Viðskiptavinir börðu sjálfir harðfiskinn Bóndinn á Skálanesi á sunnanverðum Vestfjörðum hefur á æviskeiði sínu horft upp á yfir þrjátíu sveitabæi í kringum sig fara í eyði. Skálanes var áður miðstöð verslunar á stóru svæði en er nú orðinn endastöð byggðar, sem stórt skarð hefur rofnað í. 20.12.2011 19:02
Skuldarahjálp alþingis gagnslaus að mati dómstóla Dómstóll hefur nú tvívegis úrskurðað að lagaákvæði sem átti að hjálpa skuldurum gengislána - sé gagnslaust. Sýnir að björgunarlínan sem stjórnvöld ætluðu að kasta út til skuldara er ekki að virka, segir lögmaður Rafns Einarssonar, húsasmíða- og málarameistara, sem krafðist þess að nauðungarsala á húsi í hans eigu yrði endurupptekin. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfunni í dag. 20.12.2011 19:00
Ríkisstjórnin ekki sannfærandi frammi fyrir dómstólum Advice hópurinn, sem barðist fyrir því að Icesave-samningurinn yrði ekki samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir að ríkisstjórnin sé í þröngri stöðu, sérstaklega hvað varðar að halda uppi vörnum í málinu yfir EFTA dómstólnum. 20.12.2011 18:03
Stefnan birt Íslendingum Utanríkisráðuneytinu var í dag birt stefna Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í samningsbrotamáli um ábyrgð á lágmarkstryggingu á Icesave-reikningunum. 20.12.2011 17:50
Jólagjöfum stolið úr bíl Brotist var inn í tvo bíla í Reykjavík í gær en jólagjöfum var stolið úr öðrum þeirra. Lögreglan vill vara eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. 20.12.2011 17:46
Eimskip vann jólalagasamkeppnina Eimskip vann jólalagasamkeppnina Geðveik jól, sem samtökin Geðhjálp stóðu fyrir. Úrslitin voru kynnt í dag. Í öðru sæti var Actavis og Landsbankinn í því þriðja. 20.12.2011 17:02
Handrukkari í þriggja ára fangelsi Gestur Hrafnkell Kristmundsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi í dag fyrir stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða þolanda árásarinnar um 1,5 milljón í miskabætur. 20.12.2011 16:47
Nauðungarsalan stendur þrátt fyrir gengisdóm Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag kröfu Breiðverks ehf. um að nauðungarsala á fasteign við Dimmuhvarf 7 í Kópavogi yrði tekin upp að nýju. Breiðverk krafðist endurupptöku nauðungarsölunnar á grundvelli þess að þegar lögum um vexti og verðtryggingu var breytt á síðasta ári hafi falist í breytingunni heimild til endurupptöku á málinu. 20.12.2011 13:58
Helmingur borðar hamborgarhrygg Um helmingur landsmanna, eða 52,9% telja líklegast að þeir muni borða hamborgarhrygg, á aðfangadagskvöld, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Þeim mun fjölga lítillega frá því í fyrra en þá sögðust 50,7% borða hamborgarhrygg. 20.12.2011 13:12
Trölla mistókst að stela jólunum Svo virðist sem Trölli hafi reynt að stela jólunum í nótt, að minnsta kosti á Háskólatorgi. Óprúttinn aðili læddist þar inn og skemmdi skreytingar innanhús. Þegar húsverðir komu til vinnu í morgun lá jólatré sundurtætt og brotið á gólfinu, jólaskreytingar við matsöluna Hámu höfðu verið brotnar og glerbrot lágu því víða. Þá hafði viðkomandi brotið blaðastand og þeytt blöðum út um öll gólf. Húsverðirnir létu þó Trölla ekki eyðileggja jólin á Háskólatorgi, þrifu upp ruslið og skreyttu torgið greinum grænum á nýjan leik. 20.12.2011 12:55
Utanríkisráðherra mun bera ábyrgð á Icesave málinu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mun hafa stjórnskipulega umsjón með málarekstri Íslendinga í Icesave málinu þegar það verður rekið fyrir EFTA dómstólnum. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Deilt hefur verið um málið að undanförnu meðal annars á Alþingi, en stjórnarandstæðingar, bæði í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hafa lagt á það áherslu að Árni Páll Árnason, sem hafði umsjón með málinu áður en Eftirlitsstofnun EFTA ákvað að kæra, yrði áfram með málið á sinni könnu. 20.12.2011 11:00
Syngur sína síðustu jólamessu Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, syngur sína síðustu jólamessu í embætti nú um þessi jól. Karl gerir þetta að umtalsefni í jólakveðju sem hann sendi starfsfólki kirkjunnar í morgun. "Við hjónin minnumst Guði þakklát liðinna jóla og genginna ára. Andlit svo ótal margra sem hlýrri birtu stafar af koma fyrir sálarsjónir. Það er óumræðilegt þakkarefni að hafa fengið að kynnast góðu fólki sem bætt hefur lífið og gert bjartara. Alla vináttu og góðvild fyrr og síðar þökkum við af alhug og biðjum Guð að launa það allt og blessa,“ segir Karl í kveðju sinni. Í kveðju sinni minnist hann einnig sinnar fyrstu jólamessu sem hann söng árið 1973. "Þá var dimmt yfir eyjunum og altaristaflan þakin sóti af völdum kertareyks kynslóðanna og öskufallsins. En ásjóna hinnar heilögu fjölskyldu ljómaði gegnum sortann,“ segir Karl í kveðjunni. Sem kunnugt er hófst Vestmannaeyjagosið í janúar 1973. 20.12.2011 10:00
Einn tekinn úr umferð á Akureyri Einn ökumaður var tekinn úr umferð af lögreglunni á Akureyri vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna í nótt. Að öðru leyti var nóttin fremur tíiðindalítil hjá lögreglu og slökkviliði um land allt. 20.12.2011 07:00
Meira mjólkað í ár en í fyrra Mjólkurframleiðsla á Íslandi fyrstu ellefu mánuði ársins er örlítið meiri en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur 0,7 prósentum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu landsambands kúabænda. 20.12.2011 07:00
Meirihluti utanríkismálanefndar vill Árna Pál Meirihluti utanríkismálanefndar beinir því til ríkisstjórnarinnar að fyrirsvar í dómsmálum og öðru því sem snýr að Icesave gagnvart ESA og EFTA-dómstólnum sé áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta kom fram í bókun meirihlutans, en hann mynda tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks, tveir frá Framsóknarflokki og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Vinstri grænum. Fjórir fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu hinsvegar til að málið yrði hér eftir í forsvari utanríkisráðherra og Birgitta Jónsdóttir, Hreyfingu tók undir þau sjónarmið. Hún er hinsvegar aðeins áheyrnarfulltrúi í nefndinni. 20.12.2011 06:00
Segja skattheimtuna arfavitlausa og ala á mismunun Sérstakur gistináttaskattur sem Alþingi hefur ákveðið að leggja á ferðaþjónustuna er illframkvæmanlegur og mun leiða til mikilla undanskota, segja Samtök ferðaþjónustunnar. En með því að undanskilja alla gistingu ferðafélaganna, svo sem Ferðafélags Íslands og Útivistar og alla gistingu stéttarfélaganna séu þingmenn að gera skattheimtuna enn vitlausari en ella. Með því muni sumir samkeppnisaðilar greiða skattinn en aðrir ekki. 20.12.2011 10:00