Fleiri fréttir

Armbandsúraþjófur tekinn á Skólavörðustíg

Karlmaður var handtekinn fyrir þjófnað á Skólavörðustíg um tvöleytið í dag. Maðurinn hafði á brott með sér armbandsúr úr verslun. Ekki vildi betur til en svo að laganna verðir voru á sama tíma staddir beint fyrir framan verslunina og hljóp þjófurinn seinheppni beint í flasið á þeim.

Brosandi umferðarljós á Lækjargötu

Fyrstu glaðlegu umferðarljósin voru tekin í notkun í dag á gatnamótum Bankastrætis og Austurstrætis við Lækjargötu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að glaðlegu umferðarljósin séu þannig úr garði gerð að í staðinn fyrir tákn gangandi vegfaranda kemur broskarl.

Fimm piltar brutust inn og stálu brennivíni

Fimm piltar á aldrinum 15 til 19 ára voru handteknir aðfaranótt laugardags grunaðir um innbrot og þjófnað á áfengi í Hótel Selfoss og fyrir að hafa brotist inn í mannlaust hús á Selfossi.

Einmana fólki virðist fjölga

Einmana fólki virðist hafa fjölgað. fleiri reyna sjálfsvíg, útköll vegna heimilisofbeldis aukast og efnahagsáhyggjur eru að fara með fólk. Þetta er tilfinning lögreglumanna höfuðborgarsvæðisins. Ísland í dag slóst í för með þeim aðfaranótt laugardags og afraksturinn má sjá í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:55

Hækka laun varaborgarfulltrúa

Laun 1. varaborgarfulltrúa verða hækkuð frá og með 1. september síðastliðnum. Þá munu þeir fá greidd 70% af grunnlaunum borgarfulltrúa með sömu ákvæðum um álagsgreiiðslum, skerðingum og starfsaðstöðu og áður giltu. Með þessu er fallið frá breytingum á kjörum og starfsaðstöðu fyrstu varaborgarfulltrua sem tóku gildi við upphaf þessa kjörtímabils um

Fjárhagsaðstoðin aukin í síðasta lagi um áramót

Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hefur fjölgað um 25% á einu ári. Aðstoðin verður hækkuð um áramót en Þorleifur Gunnlaugsson varaborgarfulltrúi Vinstri grænna vill að aðstoðin verði hækkuð strax, það sé forgangsatriði að fólk eigi fyrir nauðþurftum.

Segir samkeppni ekki virka og olíufélögin gefa villandi svör

Talsmaður neytenda segir að tölur um álagningu á bensíni sýni að samkeppnin á markaðnum sé ekki að virka. Álagning á bensínlítrann er umtalsvert hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Til dæmis er álagningin tvöfalt hærri hér en í Svíþjóð.

Ökumenn laumast um nýju Lyngdalsheiðina

Ökumenn eru byrjaðir að aka um nýja Lyngdalsheiðarveginn, milli Þingvalla og Laugarvatns, þótt ekki sé búið að opna veginn formlega, og reynir verktakinn ekki að stöðva bíla sem fara leiðina.

Vilja að ráðherrar láti af þingmennsku

Þingmenn þriggja flokka á Alþingi hafa lagt fram breytingatillögu við þingsályktunartillögu um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Tillagan gerir ráð fyrir því að ráðherrar gegni ekki þingmennsku samhliða ráðherradómi. Að tillögunni standa þau Siv Friðleifsdóttir, Eygló Harðardóttir og Höskuldur Þórhallsson, Framsóknarflokki. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki og Valgerður Bjarnadóttir, Samfylkingu.

Fangelsisdómur yfir ráðherrum ekki réttlættur

Mörg mistök voru gerð í aðdraganda bankahrunsins en það réttlætir ekki fangelsisdóm yfir þeim sem sátu í ríkisstjórn árið 2008, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Alþingi í morgun. Á þingfundi er verið að ræða tillögur um það hvort ákæra eigi Geir Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson sem öll sátu í ríkisstjórn í aðdraganda bankahrunsins.

Níðingspresturinn starfaði við trúboð

Presturinn sem játað hefur á sig kynferðisbrot starfaði fyrir Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Á vef sambandsins segir að 23. ágúst hafi þeim borist erindi þar sem fram komu ásakanir á hendur fyrrverandi starfsmanni og sjálfboðaliða sambandsins. Forsvarsmenn sambandsins héldu daginn eftir á fund fagráðs þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot. Fagráðinu var falin frekari umsjón málsins og samstarfsfélögum sambandsins erlendis tilkynnt um málið.

Tekist á um ákærur

Umræða um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum í ríkisstjórn Íslands hélt áfram á Alþingi í morgun. Umræðan um málið hófst á föstudaginn en var frestað vegna ágreinings um það hvort þingmenn ættu að fá að sjá gögn frá lögspekingum sem voru Atlanefndinni svokölluðu til ráðgjafar, en það er þingmannanefndin sem flytur þingsályktunartillögunar.

Hreyfingin ítrekar tillögu um að almenningur fái gögnin

Þingmenn Hreyfingarinnar ítreka tillögu sína um að trúnaðargögn þingmannanefndar Atla Gíslasonar verði sett á netið svo almenningur fái tækifæri til að kynna sér þau. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar lagði þetta til á fundi nefndarinnar síðastliðinn föstudag en því var hafnað á þeirri forsendu að virða verði trúnað við fræðimenn og sérfræðinga.

Tillaga um aðstoð við fátæka kolfelld

Tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar, fulltrúa VG, í Velferðarráði Reykjavíkurborgar um að hækka fjárhagsaðstoð til einstaklinga um 17 þúsund krónur á mánuði og 22 þúsund krónur á mánuði var kolfelld á fundi ráðsins á föstudaginn. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Besta flokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni en Þorleifur greiddi einn atkvæði með henni.

Opinn fundur í Háskóla Íslands um dóm Hæstaréttar

Lagastofnun og Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, standa fyrir opnum fundi í dag um dóm Hæstaréttar um vexti af gengistryggðum lánum. Fundurinn hefst klukkan tólf í Hátíðarsal háskólans.

Katrín er sammála Svandísi

Skýrsla Magma-nefndarinnar sýnir að kaup Magma á HS orku samræmdust lögum, að sögn Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. „Ég sé ekki betur en að nefndin komist að þeirri niðurstöðu að samningaleiðin sé sú eina færa,“ segir hún.

Óþægilegt að geta ekki rætt gögnin

Það er einkennileg og óþægileg staða að geta ekki rætt inntak trúnaðargagna þingmannanefndar Atla Gíslasonar með opinskáum hætti í þinginu vegna trúnaðar sem á þeim hvílir. Þetta segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Segja hugmyndir vel kynntar

Fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, og eiga jafnframt fulltrúa í nefndum og ráðum sveitarfélagsins, ættu að þekkja til niðurskurðaráforma bæjarins, segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Makrílnum líkt við engisprettufaraldur

Makríll sem veiddur var inni á Berufirði fyrir nokkrum dögum var troðinn af loðnuseiðum. Á sama tíma og samnorrænn rannsóknaleiðangur mælir milljónir tonna af makríl á ferðinni á hafsvæðinu kringum landið spyrja sjómenn hvaða áhrif göngurnar hafi á aðra stofna. Sú vitneskja fæst ekki nema með frekari rannsóknum, að sögn sérfræðinga.

Fénu slakað af bjargbrúninni

Það var margt um manninn og fólk á öllum aldri sem tók þátt í leiðangrinum út í Suðurey, suðvestur af Heimaey, um helgina. Þangað fóru fjárbændur á tveimur „tuðrum“, eins og bátarnir eru kallaðir, til að ná í fé sitt og flytja til lands og til að rýja og bólusetja féð sem verður í eynni í vetur.

Flestir tóku þátt

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi samgönguráðherra og forseti Alþingis, hvetur til þess að horft verði fram á veg fremur en að staldra um of við liðna atburði.

Bilun í stofnneti Mílu

Bilun kom upp í stofnneti Mílu um kl. 18.40 í kvöld. Bilunin er við Þverá og hefur áhrif á leiðina milli Þverár og Hegraness og Þverár og Brimness. Bilanagreining leiddi í ljós að líklega er um slitinn ljósleiðara að ræða, en frekari greining stendur enn yfir.

Meintir fjársvikarar yfirheyrðir

Yfirheyrslur héldu áfram um helgina yfir sexmenningunum sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um að hafa svikið út hátt í 300 milljóna króna endurgreiðslur á virðisaukaskatti.

Harður árekstur vegna starfsmanns hestaleigu

Hörð aftanákeyrsla átti sér stað fyrr í dag á Suðurlandsveginum nærri Hveragerði. Ástæðan var sú að starfsmaður hestaleigu hugðist stöðva umferð á veginum til þess að hleypa hestamönnum yfir.

Stöðugleikinn í uppnámi - brenndir eftir síðasta samstarf

„Við erum einfaldlega brenndir eftir síðasta stöðugleikasáttmála,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, en ríkisstjórnin hefur óskað eftir því að endurnýja stöðugleikasáttmálann en aðildarfélögum innan ASÍ hugnast það illa.

Maður á sextugsaldri afvopnaður á slysadeild

Maður á sextugsaldri var afvopnaður á Landspítalanum um klukkan ellefu í morgun. Maðurinn kom á spítalann til þess að sækja sér læknisþjónustu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Perlan reykræst í nótt

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Perlunni um klukkan eitt í nótt eftir að brunavarnakerfið fór í gang. Tveir dælubílar mættu á vettvang en í ljós kom að reim í loftræstikerfi hafði slitnað og úr varð mikill reykur í kjallara Perlunnar.

Henti sér fyrir bíla á Suðurlandsveginum

Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn af lögreglunni í nótt þar sem hann skapaði talsverða hættu. Maðurinn reyndi að húkka sér far með bílum sem fóru framhjá en þegar enginn stoppaði stökk maðurinn fyrir bíla og lét illa samkvæmt lögreglunni á Selfossi.

Dregið úr fellibylnum Karli í Mexíkó

Dregið hefur í krafti fellbylsins Karls sem skall á Mexíkó í gær en miklar rigningar fylgja óveðrinu. Rúmlega sextugur maður og tveggja ára stúlka létust þegar aurskriða féll á hús í bænum Nexti-capan vegna stormsins.

Sjá næstu 50 fréttir