Innlent

Hvalur næstum búinn að veiða upp í kvóta ársins

Hvalveiðiskip Hvals eru búin að veiða hátt í 140 langreiðar í sumar, en kvótinn í ár er 150 dýr.

Veiðarnar hafa gengið betur en í fyrrasumar og horfur á að kvótinn náist í ár, en 25 dýr voru skilin eftir af kvóta síðasta árs.

Ekki er hægt að veiða nema í björtu, þannig að veiðitíminn á slólarhring styttist nú óðum.

Tvö skip stunda veiðarnar og er hvalurinn skorinn í Hvalfirði og síðan frystur á Akranesi og í Hafnarfirði. Um það bil 150 manns vinna við hvalvertíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×