Innlent

Landhelgisgæslan aðstoðar skemmtibát í vandræðum

Guðmundi Áskelssyni skipverji á Guðmundi í Nesi tók myndina.
Guðmundi Áskelssyni skipverji á Guðmundi í Nesi tók myndina.

Landhelgisgæslunni barst í morgun aðstoðarbeiðni frá erlenda skemmtibátnum Gypsy Life sem var í vandræðum um 90 sjómílur Vestur af Bjargtöngum.

Var báturinn á leið frá Grænlandi til Íslands. Tveir voru um borð.

Höfðu varðstjórar Landhelgisgæslunnar samband við togarann Guðmund í Nesi sem staddur var um 15 sjómílur frá bátnum. Vindhraði á svæðinu er nú 12 -14 m/sek með krappri öldu.

Fylgir nú Guðmundur í Nesi Gypsy Life á 5 - 7 sjómílna siglingu til Íslands.

Einnig hefur verið óskað eftir aðstoð Varðar, björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði sem mun taka við fylgd bátsins þegar kemur nær landi en reiknað er með að það verði eftir um þrjár og hálfa til fjórar klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×