Innlent

Ung stúlka slapp ómeidd úr alvarlegri bílveltu

17 ára stúlka, sem var ein í bíl sínum slapp nær ómeidd þegar bíll hennar fór út af Eyrarbakkavegi í gærkvöldi og valt nokkrar veltur uns hann nam staðar ofan í skurði.

Hún var í öryggisbelti og loftpúðar blésu út, sem lögregla telur að hafi bjargað stúlkuni, Því bíllinn er ger ónýtur.

Engan sakaði heldur um borð í bíl, sem fór útaf Laugavatnsvegi í gærkvöldi. Bíllinn skemmdist lítið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×