Innlent

Brosandi umferðarljós á Lækjargötu

Vegfarendur gleðjast án efa yfir nýju lósunum á Lækjargötu.
Vegfarendur gleðjast án efa yfir nýju lósunum á Lækjargötu.

Fyrstu glaðlegu umferðarljósin voru tekin í notkun í dag á gatnamótum Bankastrætis og Austurstrætis við Lækjargötu. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að glaðlegu umferðarljósin séu þannig úr garði gerð að í staðinn fyrir tákn gangandi vegfaranda kemur broskarl.

Nú stendur yfir Samgönguvika Reykjavíkurborgar og því þótti tilvalið að taka glaðlegu ljósin í notkun þegar kastljósið beinist að samgöngum í borginni. Þá var Suðurgata gerð að einstefnugötu í dag og er gatan nú einvörðungu fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi.

Hjólandi umferð verður hins vegar í báðar áttir og afmörkuð sérstök hjólarein til norðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×