Innlent

Fénu slakað af bjargbrúninni

Fénu var slakað 65 metra niður í sókningsbátinn Lubbu.
mynd/óskar Pétur Friðriksson
Fénu var slakað 65 metra niður í sókningsbátinn Lubbu. mynd/óskar Pétur Friðriksson
Það var margt um manninn og fólk á öllum aldri sem tók þátt í leiðangrinum út í Suðurey, suðvestur af Heimaey, um helgina. Þangað fóru fjárbændur á tveimur „tuðrum“, eins og bátarnir eru kallaðir, til að ná í fé sitt og flytja til lands og til að rýja og bólusetja féð sem verður í eynni í vetur.

Bændur í Suðurey eru lundakarlar sem hafa féð þar til að halda eynni í ræktun, en einnig býr féð til göngustíga fyrir lundakarlana og éta gras frá lundaholunum svo þær lokist ekki.

Sókningsbáturinn Lubba náði í féð sem í land fór. Féð var sett í net og slakað niður 65 metra frá bjargbrúninni niður í bátinn.- kg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×