Innlent

Vilja bjóða einkaaðilum að kaupa hlut í OR

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Staða OR er slæm. Mynd/ GVA.
Staða OR er slæm. Mynd/ GVA.
Ungir sjálfstæðismenn telja æskilegt að auka hlutafé Orkuveitu Reykjavikur og bjóða það hlutafé einkaaðilum til kaupa í opnu ferli.

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna segir að slíkt geti komið í staðinn fyrir þá tugi prósenta hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins sem boðuð hafi verið, auk þess sem slíkt gæti lækkað skuldir fyrirtækisins og fjármagnað frekari virkjanaframkvæmdir og atvinnuuppbyggingu.

Í ályktun frá stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna segir jafnframt að eðlilegt sé að kröfuhöfum Orkuveitunnar verði boðið að breyta skuldum í hlutafé, enda sé ljóst að gjaldskrárhækkanir og niðurskurður í rekstri muni lítið breyta gífurlegri skuldsetningu félagsins.

„Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hafnar þeirri hugmyndafræði sem meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík beitir á íbúa höfuðborgarsvæðisins. Að velta eigin vanda yfir á aðra sýnir í raun sama ráðleysi og sést hefur í fjármálum ríkisins. Gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar eru ekkert annað en dulbúin skattheimta," segir í ályktuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×