Innlent

Tekist á um ákærur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tekist er á um það þessa dagana hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrir brot á ráðherraábyrgð. Mynd/ GVA.
Tekist er á um það þessa dagana hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrir brot á ráðherraábyrgð. Mynd/ GVA.
Umræða um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum í ríkisstjórn Íslands hélt áfram á Alþingi í morgun. Umræðan um málið hófst á föstudaginn en var frestað vegna ágreinings um það hvort þingmenn ættu að fá að sjá gögn frá lögspekingum sem voru Atlanefndinni svokölluðu til ráðgjafar, en það er þingmannanefndin sem flytur þingsályktunartillögunar.

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var fyrst í pontu í Alþingi í morgun. Hún styður tillögu minnihluta Atlanefndarinnar um að ákæra beri Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, og Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, en ekki Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×