Fleiri fréttir

UJH segja landsdóm hengja bakara fyrir smið

Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði vilja að það verði réttað yfir þeim ráðherrum sem sátu í ríkisstjórnum Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar og segja það varhugavert að koma á landsdómi. Vilja þeir meina að þar sé bakari hengdur fyrir smið. Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem þeir sendu fjölmiðlum í dag.

Reyndu að sprengja páfann í loft upp

Benedikt páfi sextándi átti fund með David Cameron forsætisráðherra Bretlands á öðrum degi opinberrar heimsóknar sinnar til landsins í dag.

Piltur tekinn á ofsahraða

Ungur maður var stöðvaður af lögreglunni á Akureyri fyrir að aka á 107 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn var 50 kílómetrar.

Mikið um sjúkraflutninga í nótt

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu snúast í nótt en alls var slökkviliði kallað sextán sinnum til sjúkraflutninga. Þar af voru sex slasaðir færðir á spítala með forgangsflutningum.

Straumur fólks til Stígamóta

Hópur eldra fólks hefur leitað til Stígamóta undanfarið vegna kynferðisofbeldis sem það kveðst hafa orðið fyrir og þaggað hafi verið niður í skjóli embættisvalds. Aðsóknin er svo mikil að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti þurfa að bíða á þriðju viku áður en þeir komast að, sem er einstök staða. Þetta segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.

Það er enginn Evrópuher fyrir börnin

„Það er enginn Evrópuher til fyrir börnin að fara í og ef einhver myndi vilja neyða þau í her, þá gæti það einmitt verið NATO, sem Ísland hefur verið hluti af í sextíu ár,“ segir Alyson Bailes, fyrrum sendiherra Breta í Finnlandi og aðjúnkt við HÍ.

Málsvörn ráðherranna

Enginn ráðherranna fjögurra sem meirihluti þingmannanefndar telur hafa brotið lög í embætti á árinu 2008 kannast við slíkt. Þvert á móti vísa þeir öllum slíkum ásökunum út í hafsauga.

Furðar sig á vinnubrögðum

Lögskýringarleið sú sem sögð er sýna fram á að kaup Magma Energy í Svíþjóð á HS Orku kunni að hafa verið óheimil á ekki við samkvæmt því sem segir í minnisblaði lögfræðings iðnaðarráðuneytisins sem lagt var fyr

Framsóknarmenn verjast ásökunum

Það er rangt að breytingar á útlánareglum Íbúðalánasjóðs árið 2004 hafi ráðið úrslitum um þenslu í hagkerfinu. Bankarnir bera þar höfuðábyrgð. Þetta segja þrír fyrrum ráðherrar Framsóknarflokksins – hver í sínu lagi – í bréfum til þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Gagnaveitan unir úrskurði

Fjarskiptamál Gagnaveita Reykjavíkur hyggst una úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar þess efnis að greiða skuli vexti af láni Orkuveitu Reykjavíkur (OR) til fyrirtækisins tvisvar á ári. Lánið er tilkomið vegna aðskilnaðar Gagnaveitunnar og OR, sem Póst- og fjarskiptastofnun mælti fyrir um. Stofnunin gerði á miðvikudag alvarlegar athugasemdir við lánið.

Eldur í gaskút í Hafnarfirði

Eldur kviknaði gaskút við íbúðarhús í Hafnarfirði í kvöld. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til aðstoðar en ekki reyndist um mikinn eld að ræða. Þá var slökkviliðið kallað út vegna olíuleka eftir árekstur á Hringbraut um eittleytið í dag. Ekki var um mikinn leka að ræða.

Ómar opnaði sýningu á vistvænum fyrirtækjum

Ómar Ragnarsson, sem átti sjötugs afmæli í gær, opnaði í dag sýningu á vistvænum farartækjum Vetrargarðinum í Smáralind í tilefni af Evrópskri samgönguviku. Á sýningunni gefst almenningi möguleiki á að kynna sér kosti hinna ýmsu farartækja sem nota vistvæna orkugjafa, svo sem metan, vetni og rafmagns.

Laug að hún bæri barn undir belti

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu á þrítugsaldri í skilorðsbundið fangelsi fyrir ærumeiðandi aðdróttanir. Konan sendi bréf á fyrrum samnemanda sinn í flugumferðarstjórnarnámi og sagðist vera ófrísk eftir eiginmann hennar. Konan sem fékk bréfið var þá í miðjum próflestri.

Frjálsíþróttafólk slegið óhug

Fréttir af árásum á heimili kúbversku feðgana Alberto og Ramon Borges hafa vakið óhug á meðal íþróttafólks sem þekkir þá vel af góðu starfi þeirra innan frjálsíþróttahreyfingarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.

Vilja álit EFTA dómstólsins á hæstaréttardómnum

Stjórnarfundur Hagmunasamtaka heimila samþykkti einróma sídegis að leita til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna niðurstöðu Hæstaréttar frá því í gær. Jafnframt að leita leiða til að fá álit EFTA dómstólsins. Á annað hundrað manns staðfestu í dag þátttöku sína í hópmálsóknum Samtaka lánþega gegn fjármálafyrirtækjum. Talsmaður samtakanna segir viðskiptaráðherra ekki geta sett lög sem berji niður betri rétt lánþega.

Lengsta ferðasumarið á Vestfjörðum

Ferðaþjónustan á Vestfjörðum er að upplifa lengsta ferðamannasumarið til þessa. Erlendir ferðahópar eru enn að mæta í Hornstrandasiglingar, sem venjulega hafa hætt um miðjan ágústmánuð.

Vélstjórar hjá Hafró samþykktu kjarasamning

Kosningu um kjarasamning VM, vegna vélstjóra á skipum Hafrannsóknastofnunar, lauk klukkan þrjú í dag og var samningurinn samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Í fréttatilkynningu frá VM kemur fram að megininntak samningsins sé að kjarasamningur og launakerfi vélstjóranna verði endurskoðað. Stefnt er á að ljúka þeirri vinnu í febrúar á næsta ári.

Upprætti tvær fíkniefnaverksmiðjur

Lögreglan upprætti nýlega tvær kannabisverksmiðjur. Annars vegar í húsi i Árbæ. Þar fundust tæplega 400 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins.

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar á morgun

Herjólfur mun sigla samkvæmt áætlun til Landeyjahafnar í fyrramálið. Þetta var ákveðið eftir dýptarmælingar í höfninni síðdegis. Fyrsta brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan níu og frá Landeyjarhöfn klukkan hálfellefu.

Forseti Íslands tekur á móti forseta Slóvakíu

Forseti Slóvakíu Ivan Gašparovič kemur í heimsókn til Íslands síðdegis á sunnudaginn og á fundi með forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra auk þess sem hann heimsækir Alþingi.

Fékk nýtt hjarta í Svíþjóð

Pálfríður Sigurðardóttir greindist með veiru í hjarta fyrir tíu árum, þá aðeins 29 ára gömul. Hún fékk nýtt hjarta á sjúkrahúsi í Svíþjóð fyrir örfáum vikum eftir að hafa glímt við erfið veikindi á undanförnum mánuðum. „Ég er aðeins byrjuð að labba aftur. Þetta er allt í rétta átt. Það koma samt dagar þar sem heilsan er upp og niður," segir hún.

Bændur vilja sömu kjör og einstaklingar í gengislánum

Nauðsynlegt er að staða bænda sem tóku gengisbundin lán sé skýrð hið fyrsta. Eðlilegt sé að skuldamál bænda séu meðhöndluð á sama hátt og skuldamál einstaklinga. Þetta er mat Bændasamtaka Íslands í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í gær þar sem kveðið er á um vaxtakjör á ólöglegum gengisbundnum lánum.

Þrettán ára drengur gekk berserksgang

Þrettán ára drengur gekk berserksgang í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í morgun og var lögregla kölluð til. Drengurinn réðist bæði að samnemendum sínum og starfsfólki skólans. Hann braut einnig innanstokksmuni og rúðu en engin slys urðu á fólki.

Lögreglan leitar að þessu fólki

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að ná tali að fólkinu á meðfylgjandi mynd. Ef einhver kann deili á fólkinu er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1553.

Þingfundi óvænt frestað

Þingfundi á Alþingi var óvænt frestað eftir hádegi í dag og hefur ekki verið ákveðið hvenær þingfundur hefst að nýju. Heimildir Vísis herma þó að það verði ekki fyrr en á mánudaginn kemur. Atli Gíslason formaður Atlanefndarinnar svokölluðu mælti í morgun fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að fjóra fyrrverandi ráðherra skyldi draga fyrir landsdóm.

Meirihluti almennings vill að ráðherrar verði sóttir til saka

Meirihluti almennings er fylgjandi því að sakamál verði höfðað á hendur þeim sem gegndu ráðherraembætti í bankahruninu. Áberandi munur er á viðhorfi til málshöfðunar eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar sem Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. gerði.

Opið fyrir almenning á ráðstefnu um vistvænar samgöngur

Ákveðið hefur verið að fella niður aðgangseyri að alþjóðlegu Driving Sustainability ráðstefnunni um vistvænar samgöngur, sem hófst á Hilton hótelinu í Reykjavík í gær. Í tilkynningu segir að frá og með hádeginu í dag verði hún því opnuð öllum áhugamönnum um þróun vistvænna samgangna.

Kringluþjófur gómaður á kjúklingastað

Lögreglan handtók mann á Kjúklingastaðnum í Suðurveri nú um hádegisbilið. Maðurinn hafði hlaupið undan öryggisvörðum Kringlunnar, yfir Kringlumýrarbrautina og inn á kjúklingastaðinn.

Réttað að nýju yfir meintum fíkniefnasmyglurum

Hæstiréttur hefur úrskurðað að rétta þurfi að nýju yfir fimm mönnum sem ákærðir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Ástæðan er sú að héraðsdómari tók sér of langan tíma í að dæma málið.

Þingmenn vilja öll gögn upp á borðið

Þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks gera athugasemdir við að fá ekki að sjá öll þau gögn sem þingmannanefndin um ráðherraábyrgð hafði undir höndum. Þeir segjast ekki geta tekið ákvörðun um hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrr en trúnaði verði aflétt. Umræður um ákærur á hendur ráðherrunum hófust á Alþingi í morgun.

Nýr bæjarstjóri tekinn við í Fjarðabyggð

Páll Björgvin Guðmundsson hefur tekið við embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Helga Jónsdóttir, sem áður gegndi embættinu, afhenti honum lyklavöldin í lok bæjarstjórnarfundar í gær.

Skýrsla Magmanefndar fyrst kynnt þingflokkum

Skýrsla nefndarinnar sem falið var að meta lögmæti kaupa Magma Energy á HS Orku var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan kynnt þingflokkunum áður en hún verður gerð opinber, en ekki liggur fyrir hvort það verður í dag eða síðar.

Sólskinsdrengurinn tilnefndur til Voice-verðlaunanna

Sólskinsdrengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa drenginn Kela, hefur verið tilnefnd til Voice-verðlaunanna. Þau verða afhent í Paramount studios, Hollywood, þann 13. október, en margar stjörnur koma að þessari verðlaunahátíð. Má nefna að Richard Dreyfuss var kynnir hátíðarinnar í fyrra og Glenn Close kom fram.

Laus við kynþáttafordóma og reyndi að stilla til friðar

Jón Hilmar Hallgrímsson, sem var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints kynþáttahaturs og hótana gagnvart kúberskum feðgum var ekki viðstaddur þegar eignaspjöll voru framin á heimili feðganna og hann er blessunarlega laus við kynþáttafordóma. Þetta segir lögmaður Jóns, Sveinn Andri Sveinsson, í yfirlýsingu sem hann hefur sent fjölmiðlum.

Stúdentar mótmæla svæsnu klámi

Hópur háskólanemenda sem berst gegn klámvæðingu hefur hengt upp veggspjöld víða um Reykjavík þar sem vakin er athygli á því að klámefni með vísunum í barnaklám er fáanlegt í kynlífsverslunun í borginni. „Á sumum hulstrum er tekið fram að leikkonurnar séu orðnar 18 ára, en það er augljóslega viljandi verið að leika sér á gráa svæðinu eins og við sýnum vel á veggspjöldunum okkar. Eitt myndbandið gerir meira að segja út á sifjaspell!," segir einn meðlimur hópsins í samtali við Student.is

Presturinn játaði kynferðisbrot sín

Presturinn sem kallaður var fyrir fagráð um kynferðisbrot innan kirkjunnar játaði brot sín. Hann var sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn þremur einstaklingum en málin eru fyrnd. Þau rata því aldrei fyrir dómstóla.

Hrapaði til jarðar í hlíðum Mosfells

Svifdrekaflugmaður, sem var að svífa dreka sínum við vesturhlíðar Mosfells í gærkvöldi, missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann hrapaði til jarðar. Hann kom hart niður og var kallað á sjúkrabíl.

Sjá næstu 50 fréttir