Innlent

Skemmtibáturinn Gypsy Life bjargað úr hrakningum í nótt

Björgunarskipið Vörður-annar kom til Patreksfjarðar í nótt með skemmtibátinn Gypsy Life, sem lenti i hrakningum í slæmu veðri á leið sinni frá Grænlandi til Íslands.

Ekkert amaði að skipverjunum tveimur nema mikil þreyta eftir stöðugar vökur og óskuðu þeir í gærmorgun eftir aðstoð héðan.

Togarinn Guðmundur í Nesi kom að bátnum í gær og veitti honum var fyrir ölduganginum þartil björgunarskipið kom á vettvang og tók við.

Björgunarskipið í Grindavík kom líka til hafnar í nótt með fiskibát, sem hafði bilað suðvestur af Reykjanesi í gærkvöldi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×