Innlent

Óþægilegt að geta ekki rætt gögnin

Birgir 
Ármannsson
Birgir Ármannsson

Það er einkennileg og óþægileg staða að geta ekki rætt inntak trúnaðargagna þingmannanefndar Atla Gíslasonar með opinskáum hætti í þinginu vegna trúnaðar sem á þeim hvílir. Þetta segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Birgir kynnti sér gögnin um helgina og segir að efni þeirra hafi í engu breytt afstöðu hans til hugsanlegrar málshöfðunar á hendur fyrrverandi ráðherrum. „Það sem vekur athygli er hvað þessi gögn eru rýr miðað við það hve mikla áherslu Atli Gíslason lagði á þau í ræðu sinni á föstudaginn,“ segir Birgir.

Í gögnunum sé þó mikið um lögfræðilegar vangaveltur álitsgjafa nefndarinnar sem Birgir hefði viljað ræða á Alþingi. Hluta þeirra hafi Atli vísað til í ræðu sinni en öðrum hafi hann sleppt. Birgir segir að æskilegt hefði verið að gögnin væru opinber svo ekki þyrfti að ræða efni þeirra í véfréttastíl eins og gera þarf með trúnaðargögn.

Umræða um málið hefst í dag. Ræðutími hvers þingmanns er takmarkaður en óvíst er hversu lengi umræðurnar munu vara. Atli Gíslason vill að þeim loknum fá málið aftur til þingmannanefndar sinnar, en Birgir er sammála formanni allsherjarnefndar, Róberti Marshall, um að skynsamlegt væri að fá málið í allsherjarnefnd. Þannig gæfist öðrum þingmönnum tækifæri til að leggja mat á störf þingmannanefndarinnar.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×