Innlent

Fimm piltar brutust inn og stálu brennivíni

Frá Selfossi.
Frá Selfossi.

Fimm piltar á aldrinum 15 til 19 ára voru handteknir aðfaranótt laugardags grunaðir um innbrot og þjófnað á áfengi í Hótel Selfoss og fyrir að hafa brotist inn í mannlaust hús á Selfossi.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að piltarnir hafi verið látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Í fórum þeirra fannst áfengi sem talið er vera frá hótelinu og voru barnaverndaryfirvöld kölluð til vegna þeirra sem voru undir 18 ára aldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×