Fleiri fréttir

Nýtt kvennaframboð til umræðu

Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður jafnréttisráðs og fyrrum þingkona Kvennalista, er meðal frummælenda á Hitti Femínistafélags Íslands sem haldið verður í kvöld.

Vara við nýjum nígeríubréfum

Af gefnu tilefni vill embætti ríkislögreglustjóra vara við enn einni útgáfu af tölvubréfum í anda svonefndra nígeríubréfa.

Átján nauðungarsölur á Ísafirði

Fyrstu átta mánuði ársins voru 18 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum á Ísafirði. Á sama tíma í fyrra voru eignirnar aðeins átta. Þegar litið er yfir allt síðasta ár voru 23 eignir seldar nauðungarsölu. Því er ekki hægt að fullyrða miðað við þessar upplýsingar að ástandið hafi versnað milli ára.

Alexander vinsælasta nafnið

Alexander var vinsælasta nafngift nýfæddra sveinbarna í fyrra en Anna hjá meybörnum. Anna var einnig í efsta sæti ári áður, en Alexander tók við af Viktori sem var vinsælasta fyrsta nafn árið 2008 hjá sveinum. Árið 2009 féll Viktor hins vegar í 5. sæti. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Perlan bundin við bryggju í Eyjum

Sanddæluskipið Perlan, sem á að dæla sandi úr Landeyjahöfn til að gera hana siglingafæra fyrir Herjólf, liggur bundin við bryggju í Vestmannaeyjahöfn, þar sem ekki hefur enn viðrað til sanddælingar úr Landeyjahöfninni.

Innbrotsþjófar gómaðir rétt við lögreglustöðina

Þrír innbrotsþjófar voru gómaðir á staðnum, þar sem þeir létu greipar sópa í fyrirtæki, sem þeir brutust inn í, við Dalveg í Kópavogi á sjötta tímanum í morgun. Lögreglu barst tilkynning um ferðir mannanna og þurftu lögreglumenn ekki langt að fara, því fyrirtækið er rétt við lögreglustöðina.

Veiðiþjófi bjargað frá drukknun - myndband

Fágætum veiðiþjófi var nýverið bjargað frá drukknun í Skorradalsvatni, eftir að græðgin hafði leitt hann í ógöngur. Þetta var himbrimi, sem hafði á flugi sínu séð glitra á spriklandi silung í neti út af strönd bæjarins Drageyrar, og stakk sér eftir honum.

Vilja samkeppni í sölu metans

Útlit er fyrir að samkeppni komist á í sölu á metangasi á bifreiðar. Hingað til hefur bara verið hægt að kaupa metangas á tveimur afgreiðslustöðvum N1 á höfuðborgarsvæðinu.

Kynþáttahatur undirrót árásar á heimili

Ekkert bendir til annars en að kynþáttahatur hafi verið undirrót þess að tvívegis var ráðist inn á heimili feðga í Vesturbænum á laugardag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir eru ættaðir frá Kúbu en hafa búið hér á landi í ríflega áratug.

Almenningur á ekki að borga

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands fór ekki dult með þá skoðun sína, í viðtali við kínverska blaðið Global Times, að almenningur á Íslandi ætti ekki að borga brúsann fyrir Icesave-reikninga Landsbankans.

Stenst ekki kröfur

„Lögin um landsdóm og lögin um ráðherraábyrgð hafa runnið sitt skeið og uppfylla ekki þær kröfur sem almennar reglur sakamálaréttarfars og mannréttindareglur gera.“

Vilja styðja endurreisn Íslands

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, segir kínversk stjórnvöld hafa einsett sér að styðja við Ísland á tímum efnahagslegra erfiðleika, meðal annars með auknum innflutningi á íslenskum vörum til Kína sem og víðtækt samstarf í orkumálum.

Endurskoða þarf verklag ríkisstjórnarinnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi menntamálaráðherra, telur að athuga þurfi hvort rétt sé að viðhalda því fyrirkomulagi að ríkisstjórn Íslands sé ekki fjölskipað stjórnvald. Hún telur að tryggja þurfi að í stórum málum verði ríkisstjórn öll upplýst og meðvituð um ábyrgð sína.

Þeir hækki launin sem geta

Formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, vill að útflutningsfyrirtæki, sem njóta góðs af veikri krónu, veiti starfsfólki sínu launahækkanir. Vill hann að „sótt verði að þeim atvinnugreinum sem hafa borð fyrir báru til að hækka verulega laun sinna starfsmanna" eins og segir í frétt á síðu félagsins.

Öllum erfitt að fjalla um mál ráðherrana

Mælt var fyrir skýrslu þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á Alþingi í gær. Atli Gíslason, þingmaður VG og formaður þingmannanefndarinnar, fór fyrst almennum orðum um vinnu nefndarinnar.

Selja ríkisbíla í ýmsu ástandi

Uppboð á bílum og öðrum tækjum í eigu ríkisstofnana fer fram hjá Ríkiskaupum í dag. Í boði eru 24 tæki, flest bílar, sem samkvæmt vef Ríkiskaupa eru í ýmsu ástandi.

Verðhækkun á fóðri

Vegna mikilla verðhækkana á helstu hráefnum til fóðurgerðar er væntanleg hækkun á nokkrum fóðurtegundum Fóðurblöndunnar hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Stöðvaður fyrir að sveifla fiðlu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði karlmann á þjóðvegi í nágrenni höfuðborgarinnar eftir að tilkynning barst þeim um að hann hefði spilað á fiðlu á meðan hann ók bifreið sinni.

Skýrslan áfellisdómur yfir stjórnsýslu á Íslandi

„Það er sérlega dapurt að lesa í gegnum rannsóknarskýrslu Alþingis og sjá að þeir 147 aðilar sem komu fyrir nefndina, taldi enginn þeirra sig bera ábyrgð og vísuðu á hvorn annan. Það segir meira um íslenska stjórnsýslu en þúsund orð,“ sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Goslokum ekki enn lýst yfir

Ekki var talin ástæða til þess að lýsa formlega yfir goslokum á fundi Vísindamannaráðs Almannavarna fyrr i dag.

Kona og karlmaður skipta um kyn - myndband

Þau eru búin að breyta útliti sínu og nöfnum og bíða eftir að gangast undir kynleiðréttingaraðgerð. Hans Miniar Jónsson er 27 ára karlmaður sem fæddist í kvenlíkama. Ugla Stefanía Jónsdóttir er nítján ára og fæddist í karllíkama.

Fullyrðir að mannréttindi séu virt

„Ég sem þingmaður og lögmaður og með langa reynslu í þessum málum hefði aldrei lagt upp með þessa þingsályktun varðandi ráðherraábyrgðina nema að ég teldi hana standast mannréttindi," sagði Atli Gíslason í

Lögreglan minnir á endurskinsmerki og öryggishjálma

Í gangi er átak um allt land undir nafninu „Göngum í skólann“ og má búast við aukinni umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Lögregla mun fylgjast vel með notkun endurskinsmerkja og að öryggishjálmar séu notaðir við hjólreiðar.

Einhugur um að bæta vinnubrögðin á Alþingi

Einhugur var meðal þingmanna á Alþingi í dag að bæta þyrfti vinnubrögðin á þinginu og styrkja áhrif þess gagnvart framkvæmdavaldinu. Umræður um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum hefjast undir lok vikunnar.

Frægur gosflugstjóri heimsækir Ísland

Breski flugstjórinn Eric Moody, sem hlaut frægð er fyrir að bjarga Boeing 747 risaþotu úr eldfjallaösku á Indónesíu fyrir 28 árum, er væntanlegur til Íslands. Hann verður heiðursgestur alþjóðlegu flugráðstefnunnar, um Eyjafjallajökul og flugsamgöngur, sem fram fer á Vallarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli síðar í vikunni.

Starfsmenn í Laugarnesskóla vel vakandi

Ráðist var í mikla endurskipulagningu á gæslufyrirkomulagi á skólalóð Laugarnesskóla á síðasta ári, segir Sigríður Heiða Bragadóttir skólastjóri í samtali við Vísi.

Foreldrar velja ódýrari skólaföt á börnin

Velta dagvöruverslana hefur ekki enn náð sér á strik eftir hrun bankanna þrátt fyrir að töluvert hafi dregið úr verðhækkunum á matvælum . Velta í dagvöruverslun minnkaði um 10,4% á þriggja ára tímabili frá ágúst 2007 til ágúst 2010.

Greiddu 100 þúsund í fundarlaun fyrir köttinn Mjása

Kötturinn Mjási var orðinn hrakinn og horaður þegar hann fannst eftir tveggja vikna útlegð á Selfossi. Eigendur hans voru úrkula vonar um að hann kæmi aftur í leitirnar og ákváðu því að heita 100 þúsund krónum í fundarlaun. Stuttu síðar komu þrír fimmtán ára unglingar færandi hendi meö Mjása og tóku eigendur hans gleði sína á ný.

Reyndu að brjótast inn í bát

Tilraun var gerð til að brjótast inn í bát sem lá við festar í höfninni í Þorlákshöfn í nótt. Þjófavarnakerfi í bátnum fór í gang og við það hafa þjófarnir lagt á flótta. Sá sem var að verki mun hafa reynt að brjóta sér leið inn um glugga.

Handrukkari og meintur kynþáttahatari úrskurðaður í varðhald

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað mann á fertugsaldri í gæsluvarðhald vegna gruns um líflátshótanir í garð kúbverskra feðga og eignaspjöll á heimili þeirra. Maðurinn var handtekinn í gær ásamt unglingspilti sem sleppt var að loknum yfirheyrslum.

Krafist gæsluvarðhalds yfir meintum kynþáttahatara

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manni á fertugsaldri sem handtekinn var vegna gruns um að hafa hótað feðgum af kúbverskum uppruna lífláti og að hafa valdið eignaspjöllum á heimili þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur.

Búist við yfirlýsingu um goslok

Vísindamannaráð Almannavarna fundar í dag um hvort ástæða sé til að lýsa því yfir að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé lokið og hvort endurskoða eigi bann það sem í gildi er um ferðir í kringum eldstöðina.

Morð í Hafnarfirði: Enn beðið eftir niðurstöðum rannsókna

Lögregla bíður enn eftir niðurstöðum úr sýnatöku af vettvangi í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Fjölmörg sýni voru send til Svíþjóðar til rannsóknar en að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjónus vonast hann eftir niðurstöðu í vikunni.

Bjarni og Sigmundur samþykkja rannsókn á einkavæðingunni

Bæði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, telja vel koma til greina að fram fari rannsókn á einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans í upphafi aldarinnar.

Atli vildi ekki rjúfa samstöðu

Atli Gíslason tók ekki afstöðu til þess hvort fara ætti fram rannsókn á einkavæðingu bankanna vegna þess að hann vildi ekki rjúfa samstöðu innan nefndarinnar. Það vakti athygli þegar skýrsla þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis að ekki náðst samstaða um það í nefndinni að slik rannsókn færi fram.

Launabilið eykst - enn lægri laun í almannnaþjónustu

Launabilið milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur aukist milli ára. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hafa 18 prósent hærri laun en starfsmenn í almannaþjónustu. Í fyrra var munurinn 15 prósent en 20 prósent árið þar á undan.

Alþingi má ekki vera verkfæri framkvæmdavaldsins

Meginniðurstöður þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis er að það þarf að auka sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu og gera stjórnsýsluna faglegri. Alþingi má ekki vera verkfæri í höndum framkvæmdavaldsins. Þetta segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar. Umræða um skýrslu nefndarinnar hófst klukkan hálfellefu í morgun.

Þorgerður Katrín snýr aftur á þing

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins tók sæti á Alþingi í dag. Þorgerður hefur verið í leyfi frá þingstörfum frá því í apríl þegar hún sagði af sér sem varaformaður flokksins og vék af þingi tímabundið.

Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu.

Sjá næstu 50 fréttir