Innlent

Handrukkari og meintur kynþáttahatari úrskurðaður í varðhald

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað mann á fertugsaldri í gæsluvarðhald vegna gruns um líflátshótanir í garð kúbverskra feðga og eignaspjöll á heimili þeirra.

Maðurinn var handtekinn í gær ásamt unglingspilti sem sleppt var að loknum yfirheyrslum. Í hádegisfréttum RÚV kom fram að maðurinn væri þekktur handrukkari og hefði áður komið við sögu lögreglu. Þar sagði einnig að fjölskyldufaðirinn, Alberto Borges Moreno, væri þjálfari hjá ÍR og að sonur hans væri afreksíþróttamaður.

Sonurinn hefur átt vingott við íslenska stúlku sem er nemi í Menntaskólanum í Kópavogi. Samband þeirra féll í grýttan jarðveg hjá nokkrum skólafélögum stúlkunnar sem voru andsnúnir drengnum vegna litarháttar hans að því er fram kemur í fréttum RÚV.




Tengdar fréttir

Krafist gæsluvarðhalds yfir meintum kynþáttahatara

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manni á fertugsaldri sem handtekinn var vegna gruns um að hafa hótað feðgum af kúbverskum uppruna lífláti og að hafa valdið eignaspjöllum á heimili þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur.

Í haldi grunaður um að ofsækja kúbverska fjölskyldu

Einn maður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa ofsótt fjölskyldu af kúbverskum uppruna í Reykjavík, með þeim afleiðingum að fjölskyldufaðirinn og eldri sonur hans, 17 ára, flúðu land í gær, í lögreglufylgd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×