Innlent

Reyndu að brjótast inn í bát

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tilraun var gerð til að brjótast inn í bát sem lá við festar í höfninni í Þorlákshöfn í nótt. Þjófavarnakerfi í bátnum fór í gang og við það hafa þjófarnir lagt á flótta. Sá sem var að verki mun hafa reynt að brjóta sér leið inn um glugga, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar.

Þá var lögregla kölluð til vegna þriggja manna sem voru með háreysti og í stympingum í íbúðarhverfi á Selfossi um miðja nótt um helgina. Einn mannanna var ósáttur við afskipti lögreglu og neitaði að fara að fyrirmælum hennar. Maðurinn var handtekinni og færður í fangageymslu. Hann verður kærður fyrir ölvun og ólæti á almannafæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×