Innlent

Greiddu 100 þúsund í fundarlaun fyrir köttinn Mjása

Erla Hlynsdóttir skrifar
Kötturinn Mjási í fangi Júlíusar Sigurjónssonar
Kötturinn Mjási í fangi Júlíusar Sigurjónssonar

Kötturinn Mjási var orðinn hrakinn og horaður þegar hann fannst eftir tveggja vikna útlegð á Selfossi. Eigendur hans voru úrkula vonar um að hann kæmi aftur í leitirnar og ákváðu því að heita 100 þúsund krónum í fundarlaun. Stuttu síðar komu þrír fimmtán ára unglingar færandi hendi meö Mjása og tóku eigendur hans gleði sína á ný.

Kristine Sigurjónsson, annar eigandi Mjása, segist hafa verið mjög áhyggjufull enda hafði Mjási verið lengi týndur. Kristine og maðurinn hennar, Júlíus Sigurjónsson, búa í Kópavogi en þau höfðu sett Mjása í pössun hjá vinafólki á Selfossi. Greint var frá þessu í Dagskránni, fréttablaði Suðurlands.

Mjási, sem er 3ja ára gamall hvítur persi, er inniköttur og hefur því enga reynslu af því að veiða sér til matar eða bjarga sér úti á annan hátt.

„Hann komst út um glugga hjá þeim á öðrum degi. Við vorum strax mjög hrædd um hann því hann er ekki vanur að vera úti," segir Kristine í samtali við Visir.is.

„Til að hvetja til þess að fólk leitaði að honum ákváðum við að heita 100 þúsund krónum í fundarlaun. Við bjuggumst ekki við því að fólk myndi nenna að leita ef fundarlaunin væru lægri," segir hún.

Unglingarnir fundu Mjása á leiksvæði við Heiðaveg á Selfossi þar sem hann hafði komið sér upp bæli. Tvær vikur eru síðan Mjási fannst. Vegna takmarkaðrar veiðireynslu grenntist hann mikið á meðan hann var týndur en hefur nú náð aftur fyrri þyngd enda í góðu yfirlæti í Kópavoginum að nýju.

Kristine segir að þeim hjónum hafi fundist það vera skylda sín að gera allt sem þau gátu til að Mjási fyndist. „Okkur þykir alveg ofboðslega vænt um hann. Þess vegna ákváðum við að bjóða þessi fundarlaun," segir hún.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×