Innlent

Öllum erfitt að fjalla um mál ráðherrana

Með skýrsluna á lofti Atli Gíslason í ræðustól Alþingis. fréttablaðið/gva
Með skýrsluna á lofti Atli Gíslason í ræðustól Alþingis. fréttablaðið/gva

Mælt var fyrir skýrslu þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á Alþingi í gær. Atli Gíslason, þingmaður VG og formaður þingmannanefndarinnar, fór fyrst almennum orðum um vinnu nefndarinnar.

Sagðist hann hafa haft að leiðarljósi að ná samstöðu og einhug innan nefndarinnar. Kvaðst hann vonast til að umræður færu fram um aðalatriðið, þ.e. sjálfa skýrsluna en ekki aukaafurðina, það sem snýr að ráðherraábyrgðinni. Sagði hann þann þátt hafa reynst öllum erfitt verk.

„Það hefur ekki verið auðvelt fyrir neitt okkar og síst þá sem standa frammi fyrir því að þurfa að taka afstöðu til flokkssystkina sinna eða flokksfélaga sem þau hafa starfað með árum eða áratugum saman."

Atli var engu að síður spurður hvort hann teldi ákæru fyrir landsdómi standast mannréttindi. Kvað hann svo vera.

Atli sagði nefndina hafa komist að þeirri meginniðurstöðu að auka yrði sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu og auka fagmennsku við undirbúning löggjafar. „Það má segja að þetta sé sjálfstæðisyfirlýsing Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu," sagði hann. „Það er kominn tími til að iðka þrískiptingu ríkisvaldsins eins og hugmyndafræðingar þeirrar þrískiptingar lögðu upp með á sínum tíma."

Atli nefndi dæmi um umhugsunarverð táknræn atriði er varða samskipti þings og ráðherra. „Við köllum ráðherrana hæstvirta en okkur háttvirta," sagði hann og benti einnig á aukinn rétt ráðherra til að grípa inn í umræður. Þá upplýsti hann að vegna ágangs ráðherra hefði verið útlit fyrir að störf þingmannanefndarinnar hefðu raskast á síðustu metrunum. Því hefði tekist að afstýra.

Nefndarmenn skiptu með sér verkum við flutning skýrslunnar og voru stuttar athugasemdir leyfðar á milli ræðna. Málið er áfram á dagskrá þingsins í dag.

- bþs



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×