Innlent

Kynþáttahatur undirrót árásar á heimili

Húsbrot Mennirnir sem réðust inn á heimili feðga á laugardag brutu rúðu í útidyrahurð og notuðu svo slökkvitæki sem var á ganginum til að brjóta sér leið inn í íbúð feðganna. Búið var að negla fyrir glugga í húsinu í gær. Fréttablaðið/Valli
Húsbrot Mennirnir sem réðust inn á heimili feðga á laugardag brutu rúðu í útidyrahurð og notuðu svo slökkvitæki sem var á ganginum til að brjóta sér leið inn í íbúð feðganna. Búið var að negla fyrir glugga í húsinu í gær. Fréttablaðið/Valli

Ekkert bendir til annars en að kynþáttahatur hafi verið undirrót þess að tvívegis var ráðist inn á heimili feðga í Vesturbænum á laugardag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir eru ættaðir frá Kúbu en hafa búið hér á landi í ríflega áratug.

Lögreglan handtók á sunnudag tvo menn sem grunaðir eru um að hafa stýrt húsbrotinu. Öðrum mannanna var sleppt að loknum yfirheyrslum. Hinn maðurinn, karlmaður á fertugsaldri, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn hefur komið við sögu hjá lögreglu vegna ofbeldismála.

Hákon Sigurjónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, segir að krafist hafi verið gæsluvarðhalds yfir manninum vegna rannsóknarhagsmuna. Hinn maðurinn hafi skýrt frá aðkomu sinni að málinu með fullnægjandi hætti svo ekki hafi verið þörf á því að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum.

Málið má rekja til kynþáttafordóma sem kærasta sautján ára pilts, sem ættaður er frá Kúbu, varð fyrir frá samnemanda í Menntaskólanum í Kópavogi. Pilturinn staðfestir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi farið í skólann á fimmtudag ásamt fimm vinum sínum. Hann segir að tilgangurinn hafi verið að ræða við skólastjórann. Aðrir segja að tilgangurinn hafi verið að hitta á nemanda í skólanum sem hafi haft í hótunum við hann í gegnum kærustu hans.

Ekki kom til átaka í skólanum en til orðaskipta kom milli sexmenninganna og nemanda í skólanum. Sá mun vera frændi mannsins sem nú situr í varðhaldi.

Í kjölfarið fór pilturinn að fá símtöl frá manninum sem nú situr í varðhaldi þar sem honum var hótað. Á laugardag var svo tvívegis ráðist inn á heimili hans og föður hans, sem einnig er ættaður frá Kúbu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telur lögregla að maðurinn sem nú situr í varðhaldi hafi haft sig þar mest í frammi.

Lögreglan telur að tilgangur mannanna hafi verið að ógna feðgunum og hræða þá. Mennirnir voru ekki vopnaðir, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þeir með verkfæri meðferðis.

Feðgarnir flúðu land eftir aðfarirnar. Í samtali við morgunútvarp RÚV sagði faðirinn þá hafa fengið lögreglufylgd út á Keflavíkurflugvöll. Hákon segir það á misskilningi byggt. Þeir hafi ekki fengið lögreglufylgd, en lögreglumaður sem átt hafi erindi á Reykjanes hafi fylgt þeim á flugvöllinn.

Lögreglan hafi enga aðkomu átt að þeirri ákvörðun feðganna að fara af landi brott.

brjann@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×