Innlent

Almenningur á ekki að borga

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands fór ekki dult með þá skoðun sína, í viðtali við kínverska blaðið Global Times, að almenningur á Íslandi ætti ekki að borga brúsann fyrir Icesave-reikninga Landsbankans.

„Fólk sem leggur peninga sína inn í einkabanka verður að átta sig á því að þetta er einkabanki. Þetta er ekki ríkisbanki. Og Evrópufyrirkomulagið um einkabanka er byggt á þeirri meginreglu að ríkisábyrgð sé ekki fyrir hendi,“ er haft eftir honum í viðtalinu.

Ólafur Ragnar segir jafnframt að þegar vel gangi í þessum bönkum þá gangi gróðinn alfarið til eigenda og stjórnenda bankans.

„Það er ósanngjarnt að krefja almenning á Íslandi, fólk sem býr í þorpum, landbúnaðarhéruðum eða sjávarútvegsbyggðum, kennara, hjúkrunarkonur, lækna og verksmiðjufólk, að greiða þessa reikninga ef bankarnir bregðast. Þetta fólk fékk engan hagnað frá bönkunum. Það er ekki skynsamlegt kerfi,“ segir Ólafur.

Samningaviðræður íslenskra stjórnvalda við Hollendinga og Breta um Icesave-málið hafa gengið afar hægt síðan lögum um samning var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun mars, sem efnt var til í kjölfar þess að Ólafur Ragnar neitaði að undirrita þau lög.- gb



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×