Fleiri fréttir

Kókaín á sextán þúsund grammið

Kókaín hefur sjaldan verið dýrara en nú og kostar grammið um 15.800 samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Verð á kannabis hefur síðan lækkað mikið eftir sumarið og kostar nú 2.500 krónur. Ef miðað er við verðkannanir SÁÁ hefur hass ekki verið lægra síðan í árslok 2008. Kókaínverð er hins vegar í hæstu hæðum þessa mánuðina.

Einn af hverjum sjö körlum hafa farið á Vog

Fjórtán prósent karla á aldrinum 60 til 70 ára hafa farið í meðferð á Vogi og sex prósent kvenna á sama aldri. Þeir sem eru látnir, jafnvel úr áfengissýki, eru ekki taldir með. „Það er því von að spurt sé við hverju megum við búast þegar kannabis- og amfetamínkynslóðirnar eru komnar á sama aldur," ritar Þórarinn Tyrfingsson í nýjum pistli á vef SÁÁ.

Viðar Már og Þorgeir metnir hæfastir í Hæstarétt

Viðar Már Matthíasson prófessor og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg eru hæfastir umsækjenda til að gegna embætti hæstaréttardómara. Dómnefnd sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda hefur komist að þessari niðurstöðu. Fjórir skiluðu inn umsóknum, en auk þeirra Viðars Más og Þorgeirs sóttust héraðsdómararnir Sigríður Ingvarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir, eftir embættinu.

Landeyjahöfn „eitt stórt klúður“

„Þetta er bara eitt stórt klúður," segir Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, sem varaði mjög við byggingu Landeyjahafnar fyrir Herjólf. Grétar á að baki þrjátíu ára reynslu sem sjómaður og þegar hann sat á þingi talaði hann gegn því að Landeyjahöfn yrði byggð á þann hátt sem gert var.

Mótmælanda Íslands minnst í kvöld

„Í dag er liðið ár frá andláti Helga Hóesasonar og við ætlum að minnast þess með lítilli minningarhellu,“ segir Alexander Freyr Einarsson, sem ásamt meðlimum Vantrúar og velgjörðarmanna af Facebook, mun afhjúpa minningarhellu á horni Langholtsvegar og Holtavegar í dag.

Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjahafnar

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjahafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina.

Eldur í bíl á Selfossi

Eldur gaus upp í bíl í gærkvöldi, sem verið var að rífa fyrir utan íbúðarhús við Eyrarveg á Selfossi.

Bílvelta á Grundarstíg

Bíl var ekið utan í handrið við Grundarstíg í miðborg Reykjavíkur um tvö leitið í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn valt.

Unnusta Hannesar: Játning Gunnars gríðarlegt áfall

„Ég er búin að vera að bíða eftir niðurstöðum úr þessu máli, hvort sem þetta hafi verið Gunnar eða einhver annar, en þetta eru þær verstu sem gátu verið," segir unnusta Hannesar Þórs Helgasonar sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst. Hún er einnig æskuvinkona Gunnars Rúnars Sigþórssonar, 23 ára gamals karlmanns, sem hefur nú játað á sig morðið. „En auðvitað er ég ánægð að það séu komin málalok."

Bið múslíma eftir mosku brátt á enda

Tíu ára bið múslima á Íslandi eftir lóð undir mosku í Reykjavík gæti senn verið á enda, en borgaryfirvöld eru vongóð um að geta fundið lóð á næstu vikum.

Sameinað átak gegn svartri vinnu hafið

Átaki gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði var hleypt af stokkunum um miðjan mánuðinn. Undir­búningur stendur yfir en á nýju ári verður nýjum reglum fylgt ákveðið eftir.

Umræða nái yfir landamærin

Fyrirkomulag og ákvarðanataka innan Evrópusambandsins er flókin málamiðlun 27 ríkja. Þau þurfa að ná samkomulagi um að hvers konar lýðræði nákvæmlega sé stefnt, áður en hægt er að minnka stofnanalegan lýðræðishalla sambandsins með kerfislægum umbótum. Þetta kom fram í máli Dr. Maximilians Conrad, lektors við Háskóla Íslands, í á vegum Alþjóðamálastofnunar skólans á föstudag. Conrad telur aðra leið að lausn vandans vera að auka umræðu sem nær milli landa.

Ákvörðun um ákærur tekin fyrir vikulok

Stefnt er að því að um næstu helgi liggi fyrir afstaða þingmannanefndar til þess hvort þeim ráðherrum, sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið taldi að gerst hefðu sekir um vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins 2008, verði stefnt fyrir landsdóm.

Skáksveit Rimaskóla Norðurlandameistari

Skáksveit Rimaskóla sigraði á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór um helgina í Osló í Noregi. Sveitin sigraði finnsku sveitina 3,5 - 0,5 í lokaumferðinni og hlaut 15 vinninga, 1,5 vinningi meira en Danir sem urðu aðrir.

„Þjóð sem á ekki bót fyrir rassinn þarf erlent fjármagn“

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni. Meðal þess sem Jón Baldvin ræddi voru þau verkefni sem stjórnvöld standa nú frami fyrir.

Ræða Jóns Baldvins í heild sinni

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni.

Árni Páll ætlar að koma böndum á smálánin

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist geta tekið við eftirliti með smálánafyrirtækjum ef því fylgir aukið fjármagn til stofnunarinnar. Nýr efnahags- og viðskiptaráðherra undirbýr lagafrumvarp sem á að koma böndum á starfsemi lánafyrirtækjanna.

Jóni Gnarr gengur vel að hætta að reykja

„Já, ég held að þetta gangi bara vel hjá honum, allavega síðast þegar ég vissi," segir Heiða Kristín Helgadóttir, aðstoðarkona Jóns Gnarr borgarstjóra í Reykjavík. Eins og Jón Gnarr sagði á Facebook síðu sinni þann 26. ágúst síðastliðinn hætti hann að reykja.

Íhuga að taka sýni í Grímsnesi og nágrenni

Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps íhugar að láta að framkvæma sýnatöku á stöðum þar sem bílar frá Holræsa- og stífluþjónustunni hafa vanið komur sínar. Þetta kemur fram á fréttavefnum Sunnlenska.is

Í stöðugu ástandi og fara á almenna deild í dag

Krakkarnir sem lentu í árekstri á Reykjanesbraut í gær og voru á gjörgæslu í nótt eru í stöðugu ástandi og eru á leið á almenna deild í dag. Þetta segir svæfingarlæknir á gjörgæsludeild Landspítala.

Morðvopnið ófundið - ekki lengur í einangrun

Morðvopnið sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson notaði til að bana Hannesi Þór Helgasyni er enn ófundið, að sögn Björgvins Björgvinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Atvinnuleysi mun aukast

Fátt bendir til þess að dekkstu spár um atvinnuleysi muni rætast að mati forstjóra vinnumálastofnunar. Hann á hins vegar von á því að atvinnuleysi muni aukast í vetur og ná hámarki í byrjun næsta árs.

Bera slasaðan ferðamann niður jökul

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hvolsvelli, Vík og Hellu voru kallaðar út klukkan korter í þrjú vegna manns sem slasaðist á göngu í skriðjökli sem gengur niður af Sólheimajökli.

Brunakerfi Þjóðleikhússins bilaði

„Þetta var sem betur fer bara falskt útkall, skulum við segja,“ segir Ari Matthíasson framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Sextíu ára afmælishátíð þjóðleikhússins er haldin í dag og eru margir komnir saman til að fagna þeim áfanga. Hinar ýmsu persónur leikrita þjóðleikhússins skemmta börnum og þá eru einnig grillaðar pylsur.

Ögmundur er andvígari ESB aðild en áður

Ögmundur Jónasson nýr innanríkisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var gestur í Silfri Egils í dag. Þar sagðist hann meðal annars vera andvígur því að viðræðuferlið við Evrópusambandið sé að breytast í aðlögurnarferli. Hann sagðist einnig hafa hitt Evu Joly í fyrrakvöld.

Hitabylgja á norðanverðu landinu

Ekkert lát er á hitabylgjunni sem leikið hefur við landsmenn undanfarna daga, einkum á norðanverðu landinu. Nóttin var þannig óvenju hlý víða og var til dæmis yfir 19 stiga hiti á Ísafirði á miðnætti.

Fullur sextán ára unglingur á stolnum bíl

Ljósnóttin í Reykjanesbæ gekk vel fyrir sig, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Mikið af fólki var í bænum en þó ekki jafn margir og í fyrra. Talið er að veðrið hafi spilað inn í það.

Keyrði fullur á ljósastaur í Reykjavík

Nóttin var nokkuð róleg hjá lögreglunin í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Fjórir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og tveir gistu fangageymslur vegna ölvunar.

Þúsund ganga til styrktar brjóstakrabbameini

Um þúsund manns ganga í dag, víðsvegar um landið, til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Stefnan er tekin á að styrkja íslenska rannsóknaraðila um fimm milljónir króna á þessu ári.

Fréttaskýring: Morðinginn hugfanginn af kærustu Hannesar

Morðið á Hannesi Þór Helgasyni var sérstaklega hrottafengið og á sér líklega fá fordæmi í íslenskri réttarsögu. Ýmsar vísbendingar eru um að um ástríðuglæp hafi verið að ræða en banamaður Hannesar Þórs var afar hugfanginn af kærustu hans. Í þessari fréttaskýringu verður atburðarrásin rakin.

Átti að fá ESB, en fékk Icesave

Svavar Gestsson var næstum því orðinn aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum um Evrópusambandið, en leiddi í staðinn fyrstu lotu Icesave-viðræðnanna. Jón Baldvin Hannibalsson gagnrýnir sitjandi ríkisstjórn fyrir að hafa tekist óhönduglega til í Icesave-málinu.

Gunnar segist hafa kastað hnífnum í höfnina

Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana hefur vísað lögreglunni á smábátahöfnina í Hafnarfirði þar sem hann segist hafa kastað morðvopninu.

Hitinn í 25 stig í Eyjafirði í dag

Hitabylgja er nú á norðanverðu landinu og hefur hitinn í dag farið hæst upp í 25 gráður í Eyjafirði, nánar tiltekið á Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem hitamælir sýndi nákvæmlega 24,9 gráður. Á Akureyri mældist 24 stiga hiti, á Mánárbakka norðan Húsavíkur fór hitinn í 24,3 gráður og raunar hefur verið um og yfir 20 stiga hiti um allt Norðurland.

Einn í lífshættu eftir árekstur á Reykjanesbraut

Allir þeir sem voru fluttir á slysadeild vegna slyssins við Álverið í Straumsvík í dag verða á Landspítalanum í nótt. Fjórir eru á almennum deildum og þá eru tveir sem eru á gjörgæslu. Annar þeirra er í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni.

Þrýstingur á að endurskoða gildi og lýðræði

Það er þrýstingur frá þjóðfélaginu að gildi, starfsaðferðir og lýðræði innan kirkjunnar verði endurskoðað segir guðfræðinemi. Eðlilegt sé að þeir sem skráðir eru í kirkjuna fá að taka þátt í kosningu á biskupi, í gegnum kirkjuþing.

Hvetja Íslendinga til opinskárrar umræðu um kynlíf

Íslendingar eru hvattir til opinskárrar umræðu um kynlíf í dag, á alþjóðakynheilbrigðisdeginum sem er haldinn víðsvegar í heiminum. Samtökin Kynís segja að markmiðið með deginum sé að hvetja til opinnar og uppbyggilegrar umræðu um kynheilbrigðismál þannig að upplýsingar byggðar á staðreyndum geti leitt til heilbrigðrar kynverundar og hvatt til jákvæðra sambanda.

Kominn úr öndunarvél

Ungur maður, sem hefur verið haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Nýbýlaveg í fyrrinótt, er komin úr öndunarvél. Hann er á batvegi, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans.

Ellefu gistu fangageymslur í Reykjavík

Nóttin var heldur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt þó voru ellefu sem gistu fangageymslur flestir vegna ölvunar. Eitthvað var um minniháttar pústra í miðborginni og einn gisti fangageymslur vegna líkamsárásar.

Keyrði fullur á blokk á Ljósanótt

Ljósanótt er í fullum gangi í Reykjanesbæ og segir varðstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum að talsverður fjöldi hafi verið í bænum. Þó hafi ekki verið jafn margir og á sama tíma og í fyrra. Búist er við því að fleiri komi í bæinn í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir