Innlent

„Þjóð sem á ekki bót fyrir rassinn þarf erlent fjármagn“

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni. Meðal þess sem Jón Baldvin ræddi voru þau verkefni sem stjórnvöld standa nú frami fyrir.

Nefndi hann þar sérstaklega auðlindamál og erlenda fjárfestingu, en gera má ráð fyrir að Jón vísi þar ekki hvað síst til Magma málsins, sem reynst hefur ríkisstjórninni erfitt. Hann leggur mikla áherslu á að þjóðin þurfi erlent fjármagn og skilur á milli eignarréttar og nýtingarréttar auðlinda.

"Ég skil ekki hvers vegna í ósköpunum þessi ríkisstjórn getur ekki gert hreint borð í auðlindamálum," segir Jón Baldvin. "Hún á að sjá til þess með löggjöf að auðlindir Íslands séu með ævarandi hætti eign þjóðarinnar.

Um nýtingarrétt gildir hins vegar það að þjóð sem er sokkin í skuldir, á ekki bót fyrir rassinn á sér og hefur engan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum - hún þarf á erlendu fjármagni að halda í fjárfestingu. Eða ætlum við bara að hætta? Ætlum við bara að hætta með öllu? Á ekkert að virkja? Á ekkert að skapa? Á ekkert að búa til?"




Tengdar fréttir

Ræða Jóns Baldvins í heild sinni

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×