Innlent

Kókaín á sextán þúsund grammið

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd: Hari

Kókaín hefur sjaldan verið dýrara en nú og kostar grammið um 15.800 samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Verð á kannabis hefur síðan lækkað mikið eftir sumarið og kostar nú 2.500 krónur. Ef miðað er við verðkannanir SÁÁ hefur hass ekki verið lægra síðan í árslok 2008. Kókaínverð er hins vegar í hæstu hæðum þessa mánuðina. Samkvæmt verðkönnun SÁÁ var verð á kókaíni 16 þúsund krónur í júní og var það hæsta verð frá upphafi kannana.

Verð á helstu fíkniefnum samkvæmt verðkönnun SÁÁ:

Hass 2.500

Gras 2.950

Amfetamín 5.160

Kókaín 15.800

Epillan 3.130

Rítalín 1.250

Kannað var verðlag á ólöglegum vímuefnum „á götunni." Spurt var hversu margir af innrituðum sjúklingum hafa keypt slík efni síðustu 2 vikur, og hvað þeir greiddu fyrir efnin. Meðaltal reiknað í tugum króna. Allir innritaðir sjúklingar, sem hafa heilsu til, tóku þátt í könnuninni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×