Innlent

Atvinnuleysi mun aukast

Fátt bendir til þess að dekkstu spár um atvinnuleysi muni rætast að mati forstjóra vinnumálastofnunar. Hann á hins vegar von á því að atvinnuleysi muni aukast í vetur og ná hámarki í byrjun næsta árs.

Fyrir rúmu ári síðan spáðu sérfræðingar Alþýðusambandins og Seðlabankans að atvinnuleysi myndi ná hámarki á þessu ári og fara vel yfir tíu prósent. Þessar spár hafa ekki gengið eftir en atvinnuleysi var mest í febrúar og mars og mældist þá 9,3 prósent. Í síðasta mánuði mældist atvinnuleysi 7,5 prósent.

Gissur Pétursson, forstjóri vinnumálastofnunar, telur ólíklegt að dekkstu spár um atvinnuleysi muni rætast.

„Það eru auðvitað blikur á lofti, sérstaklega í opinbera geiranum og maður veit ekki hvernig það mun koma fram en t.d. þetta átak, Allir vinna sem mikið hefur verið kynnt. Það hefur hleypt heilmiklu lífi í viðhaldsvinnu og það er eftirspurn eftir fólki ýmiss störf. Við finnum það þannig að við erum bjartsýnni en við höfum verið oft áður," segir hann.

Hvert prósentustig í atvinnuleysi kostar ríkissjóð á bilinu tvo til þrjá milljarð á ári í atvinnuleysisbætur og það er því eftir miklu að slægjast fyrir stjórnvöld að draga úr atvinnuleysi.

Gissur á von á því að atvinnuleysis muni aukast í vetur og ná hámarki í byrjun næsta árs.

„Við getum búist við því að það sigi yfir átta prósent í hávetrar mánuðina en vonandi fer það ekki mikið hærra."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×