Innlent

Árni Páll ætlar að koma böndum á smálánin

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist geta tekið við eftirliti með smálánafyrirtækjum ef því fylgir aukið fjármagn til stofnunarinnar. Nýr efnahags- og viðskiptaráðherra undirbýr lagafrumvarp sem á að koma böndum á starfsemi lánafyrirtækjanna.

Tvö fyrirtæki, Kredia og Hraðpeningar, hafa náð góðri fótfestu á svokölluðum smálánamarkaði, en þau veita örlán, frá tíu upp í fjörutíu þúsund krónur sem greidd eru til baka á mun hærri vöxtum en þekkist í bankakerfinu. Eru lánin veitt án nokkurrar fyrirhafnar með textaskilaboðum. Auglýsingum þessara fyrirtækja hefur sérstaklega verið beint að ungu fólki og hefur það verið tilefni nokkurrar gagnrýni. Starfsemin er hins vegar lögleg og hvorki efnahags- og viðskiptaráðuneytið né FME hafa gert athugasemdir. Ástæða þess að FME hefur ekkert aðhafst er m.a sú að fyrirtækin teljast ekki vera eftirlitsskyldur aðili, samkvæmt lögum um FME.

Árni Páll Árnason, sem tók nýverið við starfi efnahags- og viðskiptaráðherra, var andvígur starfsemi þessara fyrirtækja í embætti félagsmálaráðherra en í kvöldfréttum Stöðvar 2 hinn 8. febrúar á þessu ári sagði hann orðrétt:

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum allt sem hægt er til þess að koma í veg fyrir að svona siðlaus sjóræningjastarfsemi fái þrifist." Árni Páll sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann hefði ekki skipt um skoðun. Óánægja með þessa starfsemi hefði farið vaxandi. Hann sagðist hafa óskað eftir því við embættismenn í sínu ráðuneyti að undirbúa lagafrumvarp um smálánastarfsemi. Markmiðið með því væri að starfsemi fyrirtækjanna yrði gerð leyfisskyld og henni yrðu sett eðlileg takmörk.

Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við fréttastofu að ef löggjafinn ákvæði að gera þessi smálánafyrirtæki að eftirlitsskyldum aðila með breytingum á lögum um Fjármálaeftirlitið þá gæti eftirlitið tekið við slíku verkefni ef því fylgdi fjármagn. Hann benti á að eftirlitið hefði áður tekið við verkefnum án þess að þeim fylgdi fjárveiting en að slíkt væri erfitt. Reglulegir samráðsfundir eiga sér stað milli FME og efnahags- og viðskiptaráðuneytisins en forstjóri FME hefur ekki fundað með nýjum ráðherra, enda er hann nýtekinn við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×