Innlent

Hitabylgja á norðanverðu landinu

Nítján stiga hita var á Ísafirði á miðnætti í gær
Nítján stiga hita var á Ísafirði á miðnætti í gær

Ekkert lát er á hitabylgjunni sem leikið hefur við landsmenn undanfarna daga, einkum á norðanverðu landinu. Nóttin var þannig óvenju hlý víða og var til dæmis yfir 19 stiga hiti á Ísafirði á miðnætti.

Á tíunda tímanum í morgun var hitinn að nálgast 18 gráður við norðurströndina, eins og á Húsavík, Siglufirði og Raufarhöfn, samkvæmt mælum Veðurstofunnar, en hún spáir 20 stiga hita norðaustanlands í dag.

Í gær fór hitinn hæst í 25 stig, á Möðruvöllum í Hörgárdal, og 24 stiga hiti var á Akureyri. Langtímaspá gerir ráð fyrir að hitabylgjan vari fram í miðja viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×