Innlent

Umræða nái yfir landamærin

Dr. Maximilian Conrad
Dr. Maximilian Conrad
Fyrirkomulag og ákvarðanataka innan Evrópusambandsins er flókin málamiðlun 27 ríkja. Þau þurfa að ná samkomulagi um að hvers konar lýðræði nákvæmlega sé stefnt, áður en hægt er að minnka stofnanalegan lýðræðishalla sambandsins með kerfislægum umbótum. Þetta kom fram í máli Dr. Maximilians Conrad, lektors við Háskóla Íslands, í á vegum Alþjóðamálastofnunar skólans á föstudag. Conrad telur aðra leið að lausn vandans vera að auka umræðu sem nær milli landa.

„Rödd Evrópuborgara sem slík heyrist ekki nema skoðanamyndun verði á Evrópugrundvelli, að hún nái yfir landamærin,“ segir hann. Conrad hefur borið saman fjölmiðlaumræðu um Evrópumál í Svíþjóð og í heimalandi sínu, Þýskalandi. Það hafi leitt í ljós að skoðanalegur ágreiningur um þessi mál fari ekki eftir þjóðerni heldur mismunandi hugmyndafræði.

„Við þurfum að vita meira um hverjir eru skoðanabræður okkar í öðrum löndum, en ekki bara um hvað ríkisstjórnin okkar vill,“ segir Conrad.

Í umræðum að fyrirlestrinum loknum var Conrad meðal annars spurður út í möguleika Íslands til að hafa áhrif innan ESB og sagði hann smáríki vera í góðri stöðu til að koma málum á dagskrá. Þá gætu Norðurlöndin til dæmis myndað bandalag í atkvæðagreiðslum.

- kóþ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×