Innlent

Klukkutíma tók að ná konu úr bílflaki eftir veltu

Kona slasaðist, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hennar valt ofan í skurð við þjóðveginn á milli Selfoss og Eyrarbakka á fimmta tímanum í morgun.

Bíllinn skoraðist svo ofan í skurðinum, að það tók björgunarmenn hátt í klukkustund að klippa bílfalkið til að ná henni út.

Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans. Tildrög slyssins eru ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×