Innlent

Málflutningur í Hæstarétti um greiðslur af myntkörfuláni

Málflutningur í máli Lýsingar gegn skuldara um hvernig greiða beri af myntkörfuláni hefst fyrir Hæstarétti klukkan níu nú á eftir.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi að lánsféð skyldi bera óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands í stað samningsvaxta.

Samkvæmt lögum um meðferð einkamála skal kveða upp dóm í máli fyrir Hæstarétti ekki seinna en fjórum vikum eftir að mál er dómtekið.

Dómarar í málinu eru Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.

Óhætt er að segja að dóms Hæstaréttar í þessu máli sé beðið með mikilli eftirvæntingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×