Innlent

Hvetja Íslendinga til opinskárrar umræðu um kynlíf

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Íslendingar eru hvattir til opinskárrar umræðu um kynlíf í dag, á alþjóðakynheilbrigðisdeginum sem er haldinn víðsvegar í heiminum. Samtökin Kynís segja að markmiðið með deginum sé að hvetja til opinnar og uppbyggilegrar umræðu um kynheilbrigðismál þannig að upplýsingar byggðar á staðreyndum geti leitt til heilbrigðrar kynverundar og hvatt til jákvæðra sambanda.

Það eru Alþjóðasamtök um kynheilbrigði sem standa að baki deginum. Samtökin skipuleggja viðburði í 27 löndum í 5 heimsálfum. Hvetja samtökin Íslendinga til þátttöku með opinni umræðu um kynheilbrigði og réttindi kynverunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×