Innlent

Brunakerfi Þjóðleikhússins bilaði

Boði Logason skrifar
„Þetta var sem betur fer bara falskt útkall," segir Ari Matthíasson framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Sextíu ára afmælishátíð þjóðleikhússins er haldin í dag og eru margir komnir saman til að fagna þeim áfanga. Hinar ýmsu persónur leikrita þjóðleikhússins skemmta börnum og þá eru einnig grillaðar pylsur.

Á þriðja tímanum í dag fór brunaviðvörunarkerfi leikhússins í gang. Lögregla, slökkvilið og sjúkrabílar komu á vettvang en fóru skömmu síðar. Enginn eldur var þó í húsinu. Ari segir að þetta hafi allt endað á farsælan hátt en þó hafi hann ekki getað fylgst mikið með enda á fullu að grilla ofan í börnin. „Mér skilst að kerfið hafi líklega farið í gang vegna þess að hér eru börn liggur við streymandi út úr gluggum, það er svo mikið af fólki hérna."

Ari segir að leikarar Þjóðleikhússins séu vanir því að kerfið farið í gang og hafi brugðist rétt við. „Þeir róuðu fólkið og þetta gekk allt saman vel á endanum," segir Ari.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var það bilun í skynjara sem olli því að kerfið fór í gang.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×