Fleiri fréttir

Flestir látast 3. janúar

Talsverðar sveiflur má sjá þegar dánartíðni á Íslandi er skoðuð eftir dögum. Flestir hafa látist í janúar á ári hverju síðastliðin fjórtán ár, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Stöðvaði stéttargerð með aðkomusteypu

Björn Steinar Pálmason bæjarstjóri stöðvaði í fyrradag steypuvinnu við endurnýjun á gangstéttum utan við bygginguna þar sem bæjarstjórnarskrifstofurnar í Grundarfirði eru til húsa.

Át og drakk fyrir fé vistmanna

Ríflega fimmtug kona hefur verið ákærð fyrir að draga sér tæpar 400 þúsund krónur af sameiginlegum bankareikningi vistmanna verndaðs heimilis þar sem hún starfaði. Hún hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa.

Helmingur sneri aftur í ofbeldissambúðina

Um það bil helmingur kvenna, sem dvöldu í Kvennaathvarfinu á síðasta ári vegna ofbeldis í nánum samböndum, fór aftur heim í óbreyttar aðstæður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn á þjónustu félagasamtaka sem aðstoða konur sem beittar hafa verið ofbeldi af hendi karla í nánum samböndum.

Kveiktu viljandi í fornri kirkju

Fjögur ungmenni stóðu á bak við brunann þegar Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í janúar síðastliðnum. Þetta upplýsti Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, á bloggsíðu sinni í gær. Segir Þórhallur að ungmennin hafi farið til Krýsuvíkur í þeim eina tilgangi að kveikja í kirkjunni, sem var byggð árið 1857.

Hótaði að skera börnin á háls

Karlmaður um tvítugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sjö mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði, fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann, hóta honum og öðrum lögreglumönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls.

Danir setja hundrað milljónir í fyrstu mynd Rúnars

Einsdæmi þykir að kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fái hundrað og fjórar milljónir króna í styrk fyrir myndina The Volcano frá kvikmyndasjóðnum New Danish Screen, sem er stofnun innan dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar.

Sigmundur Ernir: Embættismenn eiga ekki að ráða

„Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hyggt leggja fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aukið sjálfstæði Alþingis.

Ráðherra fagnar áhuga Reykjavíkurborgar

Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, fagnar áhuga Reykjavíkurborgar á samstarfi um útfærslu á þjónustu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins enda sé það í samræmi við óskir hans um að heilsugæslan eigi samvinnu við borgina.

„Peningar vaxa ekki á neinum trjám í Reykjavík“

Peningarnir vaxa ekki á trjánum í Reykjavík segir formaður velferðarráðs sem fyrr í vikunni felldi tillögu um að auka fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Sveitarfélagið eigi ekki eitt og sér að glíma við fátæktina.

Tugir skattamála voru í biðstöðu vegna Jóns Ásgeirs og félaga

Tugir skattamála sem hafa verið í biðstöðu á meðan beðið var dóms í skattamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessarsonar og viðskiptafélaga hans, komast aftur á skrið í dómskerfinu eftir að Hæstiréttur hafnaði að fella niður ákæru í málinu. Fjárhæðirnar í málunum hlaupa á tugum milljóna króna.

Rússar vilja Drekann

Þótt Ísland geri engar kröfur um yfirráð á Norðurheimskautinu gæti landið haft umtalsverðar tekjur af umsvifum sem þar verða á komandi árum. Pútín Rússlandsforseti lýsir áhuga rússneskra orkufyrirtækja á olíuleit á Drekasvæðinu.

Upplýst um frambjóðendur í byrjun nóvember

Landskjörstjórn mun upplýsa fyrir 3. nóvember næstkomandi hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings en framboðsfrestur rennur út 18. október. Í tilkynningu frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu kemur fram að þingið skuli skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum og persónukjörnum fulltrúa. Þeir sem ætla að bjóða sig fram verða að vera með minnst 30 meðmælendur en kosið verður til þingsins þann 27. nóvember næstkomandi.

Gjaldeyristekjurnar dafna í Dýrafirði

Þrjúhundruð þúsund regnbogasilungar vaxa nú upp í sjókvíum á Dýrafirði, sem vonast er til að breytist í sex til sjöhundruð milljóna króna útflutningsverðmæti og skapi tíu störf á Þingeyri.

Mugabe svæfði Össur

Robert Mugabe, forseta Zimbabwe, tókst að svæfa Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og sendinefnd Íslands á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna þegar hann tók til máls í gær. Fjallað er um málið á þýska fréttavefnum Die Ziet en myndin sem birtist með fréttinni hefur vakið mikla athygli.

Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Börn náttúrunnar sýnd í Malaví

Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður sýnd á kvikmyndahátíð í Malaví sem er að hefjast. Þetta er önnur kvikmyndahátíðin sem haldin er í landinu.

Sjófugli fækkar við Ísland

Sjófuglinum stuttnefju hefur fækkað um 44 prósent hér við land frá miðjum níunda áratugnum. Fýl og langvíu hefur á sama tíma fækkað um 30 prósent, álku um 18 prósent og ritu um 16 prósent.

Bátur laus af strandstað

Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt sunnan við Raufarhöfn. Björgunarsveitirnar Pólstjarnan frá Raufarhöfn og Hafliði frá Þórshöfn voru kallaðar út auk þess sem björgunarskip Landsbjargar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn var á staðnum.

Forsetinn fundaði með Putin

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í dag með Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, í Rússlandi í dag. Þar eru þeir staddir á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu.

Strandaði nálægt Raufarhöfn

Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt fyrir utan höfnina í Raufarhöfn. Að sögn lögreglu er Landhelgisgæslan í viðbragðsstöðu og lögreglumaður er á leið á vettvang. Að því er fram kemur á mbl.is eru fjórir í áhöfn bátsins.

Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni

Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi.

Steingrímur J: Ranghugmyndir hafa litað skattaumræðuna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ranghugmyndir hafi litað umræðu um skatta á síðustu misserum. Að hans mati setja ranghugmyndirnar nokkuð mark sitt á tilllögur forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í skattamálum.

Jón Stóri gæti krafið ríkið um skaðabætur

Fari svo að rannsókn á máli gegn Jóni Hilmari Hallgrímssyni, eða Jóni Stóra, verði látið niður falla eða hann sýknaður af ákæru um ofbeldi gegn kúbverskum feðgum getur hann átt skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Jón hefur verið sakaður um að hafa

Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum

Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna.

Segir breytingar á skattkerfinu lýsa vanþekkingu á efnahagslífinu

Þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur gert á skattkerfinu lýsa ótrúlega mikilli vanþekkingu á efnahagslífinu. Skattkerfið hafi verið fært áratugi aftur í tímann, einfaldleika þess og gagnsæi hafi verið fórnað. Þetta kom fram í ræðu Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á opnum fundi samtakanna og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál fyrirtækja.

Kúbversku feðgarnir koma heim á morgun - þora ekki aftur í íbúðina

„Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem þjóðin, nágrannar og allir hafa sýnt okkur,“ segir sambýliskona kúbverska föðurins sem flúði land vegna meintra ofsókna þar síðustu helgi. Að hennar sögn snúa þeir feðgar aftur heim á morgun en þeir hafa verið í tæplega hálfan mánuð í útlöndum.

Betur verði hugað að umfangi og afrakstri

Ríkissaksóknari hefur ritað lögreglustjórum í landinu bréf þar sem hann hvetur þá til að kynna sér nýgengna dóma í Hæstarétti þar sem refsing var þyngd yfir tveimur kannabisræktendum í átta og tólf mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu úr þriggja mánaða skilorðsbundinni fangelsisrefsingu.

Myllan hækkar brauð um 8,1%

Myllan hefur hækkað verð á framleiðsluvörum sínum um 8,1 prósent. Að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu má að stóru leyti rekja hækkunina til uppskerubrests í Rússlandi í kjölfar skógarelda í mestu þurrkatíð í landinu í 130 ár. Þar hafi yfirvöld bannað útflutning á korni. Heimsmarkaðsverð á

Safnar áfram tækjum fyrir sjúklinga

Samfélagsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fékk góðar gjafir á dögunum, en Þorbjörg Elín Friðriksdóttir og fjölskylda afhentu stofnuninni ytri öndunarvél, vökvadælu, og tvo hjólastóla. Þessi tæki eru afrakstur söfnunar sem Þorbjörg hefur staðið fyrir, en hún er sjálf sjúklingur á HSS.

Kate Winslet stofnar samtök fyrir Sólskinsdrenginn

Breska Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet í samstarfi við Margréti Dagmar hefur stofnað alþjóðlegu góðgerðasamtökin The Golden Hat Foundation, eða Gullna hattinn, sem eiga að styðja við og styrkja einhverf börn og foreldra þeirra.

Bankinn blés lífi í kvikmyndahúsið

Nýtt kvikmyndahús Sambíóanna opnar í Egilshöll í Grafarvogi snemma í nóvember. Nokkur ár eru síðan fyrirhugað var að opna dyr kvikmyndahússins en verkið var margsinnis lagt í salt.

Lóðin fyrir PrimaCare til reiðu

Samningar um lóð í Sólvallalandi í Mosfellsbæ fyrir einkasjúkrahús og hótel PrimaCare ehf. verða undirritaðir á næstu vikum, að sögn Gunnars Ármannssonar, framkvæmdastjóra félagsins.

Átakið framlengt til áramóta

Ferðamenn Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist hafa borið nokkurn árangur í því að bæta ímynd Íslands á erlendri grundu, að því er fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdanefnd átaksins. Vísað er til nýlegrar könnunar MMR sem mældi viðhorf til Íslands í Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku.

Fjölskyldan úr Múlakaffi í Hörpuna

„Þetta er hápunkturinn á mínum ferli,“ segir Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi, sem varð hlutskarpastur í útboði á veitingaþjónustu í tónlistarhúsinu Hörpunni.

Ákært fyrir amfetamínafbrigði sem olli vanda

Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þeim er gefið að sök að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á tæpum fjórum kílóum af svokölluðu 4-flúoroamfetamíni frá Hollandi hingað til lands.

Sjá næstu 50 fréttir